Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Refsivöndur Tómasar læknis

Tómas Guðbjartsson læknir.
Tómas Guð­bjarts­son læknir.

Margir undr­ast þá með­ferð sem Tómas Guð­bjarts­son hjarta­skurð­læknir hefur fengið á Land­spít­al­anum þaðan sem hann var hrak­inn í leyfi vegna plast­barka­máls­ins svo­kall­aða.  Fjöl­margir telja sig eiga Tómasi líf og heilsu að þakka og telja rangt að refsa honum með þeim hætti sem nú hefur gerst, 13 árum eftir plast­barkaða­gerð­ina.  „Ég þekki Tómas ekki sjálfur per­sónu­lega, en er honum þakk­látur og væri hugs­an­lega ekki á lífi í dag ef ég hefði ekki kom­ist undir hans lækn­is­hendur,“ segir Tómas Ponzi, for­rit­ari, list­mál­ari og garð­yrkju­bóndi, við DV. Tómas er afar ósáttur við umfjöllun um mál Tómasar skurð­læknis að und­an­förnu og telur um aðför að ræða.

Brott­hvarf Tómasar er rakið til umfjöll­unar  RÚV sem greindi frá því á Rás 1, að Tómas væri kom­inn í leyfi vegna máls­ins. Mikil umfjöllun hefur orðið í kjöl­far heim­ilda­þáttar­aðar um ítalska skurð­lækn­inn Paulo Macchiarini, sem ber ábyrgð á plast­barka­ígræðslum í sjúk­linga sem lét­ust í kjöl­far aðgerð­anna. Tómas, sem starf­aði undir stjórn Ítalans, hefur við­ur­kennt mis­tök í mál­inu og seg­ist hafa verið blekktur. Hann baðst afsök­unar og hefur verið fús til að upp­lýsa um sinn þátt.

Í umfjöllun RÚV nú er gert út þá það að Tómas hafi stært sig af störfum sínum og staða hans sé til skoð­unar hjá stjórn­endum Land­spít­al­ans. Spít­al­inn hefur beðist afsök­unar á aðkomu sinni að aðgerð­inni og for­stjór­inn hefur vísað því til rík­is­lög­manns að kanna hvort rétt sé að greiða skaða­bætur.

Mikil kergja er innan spít­al­ans vegna máls­ins þar sem menn skipt­ast í fylk­ingar og ýmist for­dæma fram­göng­una gegn Tómasi eða vilja losna við hann úr starfi og kalla eftir ábyrgð hans. Aðrir benda á að Tómas hafi fyrir löngu tekið út refs­ingu sína og mál að linni.

Tómas Ponzi segir aðför vera gerða að nafna sínum skurð­lækn­inum og RÚV sé notað sem refsi­vöndur.

„Nú er verið að taka út einn færasta hjarta og lungna­skurð­lækni lands­ins, Tómas Guð­bjarts­son og RÚV notað óspart,“ skrifar Tómas Ponzi um nafna sinn. 

Víst er að margir taka undir með list­mál­ar­anum og telja að upp­á­koman nú sé dæmi um norna­veiðar og sjá ekki rétt­lætið við að refsa Tómasi lækni meira en orðið er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Slúður