Ice Pic Journeys er fyrirtækið sem var með 23 manna hóp á Breiðamerkurjökli þegar bandarískur ferðamaður lét lífið og unnusta hans slasaðist. Konan er úr lífshættu. Gríðarleg leit var gerð eftir að stjórnendur Ice Pic gáfu upp að 25 manns hefðu verið að staðnum þar sem ísveggur hrundi með hinum skelfilegu afleiðingum. Í ljós kom að hópurinn var tveimur færri en gefið hafði verið upp og enginn undir ísfarginu. Mannlíf hefur reynt að ná sambandi við fyrirtækið til að fá sjónarmið eigendann en ekki fengið svar. Mike Reid, stofnandi fyrirtækisins, hefur ekki svarað skilaboðum og tekur ekki síma. Á heimasíðu Ice Pics Journeys má sjá að ekki eru í boði fleiri ferðir í ágúst. Hér að neðan er klippa af Facebook þar sem Mike Reid kynnir happdrætti um að fara í íshella um hásumar.

Ice Pic Journeys gefur sig út fyrir að sérhæfa sig í ævintýralegum jöklaferðum á því svæði sem slysið varð. Gert er út á sumarferðir á jökulinn sem þykir vera háskalegt. Flest fyrirtæki á þessu sviði fara ekki í íshellaferðir á meðan bráðnun er mest. Gagnrýnt er að ferðamenn séu lagðir í þann háska sem fylgir slíkum ferðum á þessum árstíma. Meðal Þeirra sem var við slíku er Helgi Björnsson, jöklafræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Hann segir við Morgunblaðið að stórhættulegt sé að bjóða upp á ferðir í íshella yfir sumartímann þar sem hellarnir taki miklum breytingum yfir sumarið þegar jökullinn er á meiri hreyfingu. Hann telur að bíða eigi fram á haust með slík ferðalög.
Fyrirtækið þjónustar meðal annars ferðaþjónusturisann Guide to Iceland, samkvæmt upplýsingum Vísis. Lögreglurannsókn fer nú fram vegna slyssins og háværar kröfur eru uppi um að banna jöklaferðir yfir sumartímann.
Athugasemd 9. nóvember 2026: Mike Reid, eigandi Ice Journey ehf, hefur gert kröfu um leiðréttingu á fréttinni. Reid, sem svaraði ekki fyrirspurnum Mannlífs í ágúst 2024, segir nú að það sé rangt að stjórnendur félagsins hafi gefið upp að 25 manns hafi verið í ferðinni, sem leiddi til lengri leitar. „Stjórnendur fyrirtækisins gáfu ekki upp töluna 25. Talan kom frá okkar eigin leiðsögumönnum á vettvangi. Farþegalisti fyrirtækisins var réttur,“ segir Reid í yfirlýsingu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir