Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Margrét Gnarr trúir ekki á leiðinlegt fólk: „Sumu fólki líður mjög illa og kemur þá þannig fram“

Einka­þjálf­ar­inn og fit­ness-drottn­ingin Margrét Edda Gnarr er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Óhætt er að segja að Margrét Edda sé ókrýnd drottn­ing fit­ness-heims­ins hér á landi, en hún hefur náð lengst allra Íslend­inga í fit­ness-íþrótt­inni. Nú hefur hún sagt skilið við íþrótt­ina, en er þó enn á fullu í annarri hreyf­ingu, til að mynda taekwondo. Margrét er með, hvorki meira né minna, svarta beltið í taekwondo, en hún var einnig í lands­lið­inu í nokkur ár og hefur nokkrum sinnum landað sigri á Íslands­meist­ara­mót­inu í taekwondo.
Mannlíf komst að því að Margréti elskar ávexti, hún trúir ekki á leið­in­legt fólk og glímir við félags­fælni.

Fjöl­skyldu­hagir? Trúlofuð. Á eina 13 ára stjúp­dóttur, einn tveggja ára strák og á von á barni í júlí 2022.

Menntun/atvinna? 2. dan í taekwondo, „certfied nutritional consultant“ og „certified health coach“. Starfa sem einka­þjálf­ari í Hreyf­ingu ásamt því að bjóða upp á fjar­þjálfun.

Upp­á­halds­sjón­varps­efni? Nýbúin með Dopesick, sem ég mæli með að allir kíki á!

Leikari? Tom Hanks, Johnny Depp og Jennifer Lawrence.

Rit­höf­undur? Eckhart Tolle og Jón Gnarr.

Bók eða bíó? Bíó heima í stofu.

Besti matur? Ávextir.

Kók eða pepsí? Kristall með vatnsmelónu- og peru­bragði (drekk ekki sykrað gos).

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Jök­ulsár­lón og „Old Town“ í Prag.

Hvað er skemmti­legt? Taekwondo er mjög skemmti­legt.

Hvað er leið­in­legt? Ein­angrun.

Hvaða flokkur? Flokkur fólks­ins.

Hvaða skemmti­staður? Mudo Gym í Kópavogi.

Kostir? Lausn­a­miðuð og dug­leg.

Lestir? Félags­fælni.

Hver er fynd­inn? Pabbi minn, Dagur Kári, bróðir minn, Jim Gaffigan, Bill Burr, Chris D’Elia og svo var ég að upp­götva Dusty Slay um dag­inn.

Hver er leið­in­legur? Ég trúi ekki á leið­in­legt fólk, en sumu fólki líður mjög illa og kemur þá þannig fram.

Trúir þú á drauga? Heldur betur.

Stærsta augna­blikið? Fæðing sonar míns 13. jan­úar 2020 <3

Mestu von­brigðin? Hef nokkrum sinnum keppt í fit­ness og verið sagt eftir for­keppni að ég sé pott­þétt að fara að vinna, en enda svo í 2. sæti eða neðar. Þurfti að breyta keppn­is­hug­ar­far­inu til þess að verða ekki aftur fyrir von­brigðum. Hætti að spá í hvaða sæti ég gæti endað í og gerði bara mitt besta og þá skipti í raun­inni ekki máli í hvaða sæti ég end­aði. Miklu skemmti­legra að keppa með þannig hug­ar­far 🙂

Hver er draum­ur­inn? Að halda áfram að eiga fal­legt líf.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Komast í gegnum ein­angrun. 

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Alls ekki. Elska að setja mér ný mark­mið og vinna að þeim.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Ég man eig­in­lega bara brand­ara sem litla systir mín sagði okkur fjöl­skyld­unni þegar við vorum að keyra langar vega­lengdir út á land, en þeir voru yfir­leitt mjög lang­dregnir og end­uðu alltaf á því að ein­hver kúkaði á sig. Þetta var fyrir tíma snjall­síma svo maður varð bara að hlusta.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Fyrir ekki svo löngu var ég í göngutúr með syni mínum í Graf­ar­vog­inum. Í fjarska sá ég stelpu ganga á móti okkur með hund­inn sinn og ég hélt að þetta væri stelpa sem ég var einu sinni að þjálfa, en ég vissi að hún bjó í Graf­ar­vog­inum og átti hund. Var samt ekki 100% viss því ég var ekki með gler­augun. Ég hélt áfram að ganga í átt að henni en þá fór sonur minn að láta heyra í sér. Ég tékk­aði á honum og sneri þá baki í þessa stelpu. Á meðan ég var að hugga hann heyrði ég að hún var komin mjög nálægt og sagði „hæ“. Ég sneri mér þá við ásamt því að sveifla hár­inu og sagði skæl­bros­andi „Hæ!“ á móti. Þá fatt­aði ég að þetta var ekki stelpan sem ég var að þjálfa og hún sagði ekki „hæ“ við mig heldur var hún að segja „hæll“ við hund­inn sinn.

Sorg­leg­asta stundin? Öll dauðs­föll minna nán­ustu.

Mesta gleðin? Sonur minn.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Fjöl­skylda og vinir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers