Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Foreldrar Hönnuh Jane neita að kalla harmleikinn á Krýsuvíkurvegi slys

Gregory og Samantha Large vilja skýrari svör um tildrög andlátsins

Blóm og kerti við Krýsuvíkurveg
Blóm og kerti við Krýsu­vík­ur­veg For­eldrar Hönnuh Jane Large vilja fá skýr­ari svör um atburða­rás­ina þegar hún lést þar ásamt tveimur íslenskum ung­mennum. Mynd: Golli

Foreldrar Hönnuh Jane Large, írsku stúlkunnar sem lést í hörmulegu bílslysi á Krýsuvíkur­vegi í ágúst ásamt tveimur íslenskum ungmennum, segjast ekki geta sætt sig við að atburðurinn sé skilgreindur sem slys. Vísbendingar séu um að bifreiðinni hafi verið ekið á rúmlega 200 kílómetra hraða.

Þetta kemur fram í viðtali við foreldrana, Gregory og Samantha Large, í nýjasta tölublaði Heimildarinnar.

Foreldrarnir segja að þau hafi í fyrstu verið afar reið út í ökumann bifreiðarinnar. Gregory telur að ekki sé hægt að tala um slys þegar ekið sé á slíkum ofsahraða.

„Ég get ekki kallað þetta slys. Ég bara get það ekki,“ segir Gregory í samtali við Heimildina.

Ofsaakstur eftir minningarathöfn

Foreldrarnir lýsa einnig sárri reynslu eftir minningar­athöfn um dóttur þeirra í Hafnar­firði. Athöfnin hafi verið falleg en hegðun nokkurra ungra ökumanna að henni lokinni hafi vakið reiði þeirra.

„Þeir þöndu vélarnar og þutu í burtu á ofsahraða. Það var bara vanvirðing við þann harmleik sem átti sér stað,“ segir Gregory.

Foreldrarnir segjast hafa fengið takmarkaðar upplýsingar frá lögreglu um tildrög slyssins. Þau telja að sjö til átta bifreiðir hafi verið í samfloti umrætt kvöld og vilja fá skýrari svör um atburða­rásina.

Sorgin er jafnframt yfir­þyrmandi þegar þau hugsa til fram­tíðarinnar sem dóttir þeirra fékk aldrei að upplifa.

„Minningar sem aldrei urðu til. Að hún verði aldrei 21 árs. Að hún muni aldrei giftast. Að við munum aldrei fá í hendurnar börnin hennar,“ segir Samantha við Heimildina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi