Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Guðmundur Kristjánsson í Brimi spáir endalokum kvótakerfisins: „Það deyja allir“

Guðmundur Kristjánsson í Brimi.
Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi.

„Ertu undir eiði blaða­manns,“ spurði Guðmundur Kristjánsson útgerðar­maður, oft kenndur við Brim, í upphafi viðtals við blaðamann Stundarinnar, Ölmu Mjöll Ólafs­dóttur. Var hann þá búinn að spyrja ítarlega um menntun og réttindi viðkomandi, hvernig maður fái starf sem blaða­maður og hvort ekki þurfi löggildingu til.

Þunga­miðja viðtalsins er eignar­hlutur Guðmundar af fisk­veiðikvóta í íslenskri útgerð. Guðmundur svaraði öllum spurningum blaða­manns, en í raun má velta fyrir sér hvort blaða­maður hafi verið nokkru nær í lok viðtals. Þó má segja Guðmundi til hróss að hann svarar símanum sjálfur, í stað þess að tefla fram einhverjum lágt settum hirðmanni.

„Þú verður að senda mér útreikningana svo ég viti þetta. […] Ég hef bara ekki hugmynd um það. Pæli ekkert í því,“ sagði Guðmundur beðinn um viðbrögð við þeirri full­yrðingu að hann ætti 7,7% alls kvóta á Íslandi, stærstan hluta allra einstaklinga: „Ég hef bara gaman af því að vera í útgerð“.

Aðspurður hvort honum fyndist kvótinn vera að safnast á fáar hendur sagði Guðmundur að sagan sýndi að völd og verðmæti lentu á einhverjum tíma­punkti í kjöltu ákveðinna karaktera; ráðamanna, banka­stjóra, kirkju­leiðtoga eða skóla­stjóra. „Svo springur það allt aftur. […] En kvótinn er bara veiði­réttur sem fiskiskip eiga. Svo má hver sem er eiga fiskiskipið. […] Svo springur þetta af því að það enda allir á sama stað, undir sex fetunum. Það deyja allir.“

Þegar blaða­maður þrýsti á Guðmund um svör vegna 7,7% eignar­hluta hans í veiði­kvóta og upplýsti hann um að fimmtán manns ættu meira en 1% og næsti maður fyrir neðan hann ættu 2,4%, svaraði Guðmundur: „Ég er þá kannski bara skrýtinn.“ Guðmundur benti blaða­manni á að hann ætti þetta kannski ekki allt því hann væri hluthafi með öðrum í félagi: „Sumir hafa gaman af því að reikna allt mögulegt […] sem þú getur túlkað á alla vegu líka“.

Undir lok viðtals ítrekaði blaða­maður að persónu­legur hlutur Guðmundar væri 7,7%; það hefði verið reiknað út og svaraði Guðmundur að bragði: „[É]g pæli ekkert í þessu og það er gaman að vera í útgerð.“

Þess má geta að í umfjöllun Stundarinnar segir að stærsta blokkin í útgerð á Íslandi saman­standi af Samherja hf., Síldar­vinnslunni, Bergi-Hugin, Gjögri og fleirum, og 20,49% kvótans heyri undir hana. Í öðru sæti er samstæða Útgerðar­félags Reykja­víkur, Brims, Ögurvíkur og fleiri með 15,62%. Þriðji risinn, en jafnframt sá minnsti, samanstendur af FISK-Seafood, Vinnslu­stöðinni og fleirum með 10,81%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi