Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Krabbamein Magnúsar dreifði sér í hryggjarlið: „Ég sætti mig bara við þetta“

Magnús Þór Sigmundsson Mynd / Aðsend
Magnús Þór Sig­munds­son Mynd / Aðsend

Magnús Þór Sig­munds­son, einn dáð­asti tón­list­ar­maður Íslands, greind­ist með krabba­mein fyrir sjö árum síðan en hann greinir frá þessu í við­tali á RÚV en þar ræðir hann einnig um þegar hann reyndi að slá í gegn erlendis með hljóm­sveit­inni Change.

„Við fengum tæki­færi til að fara í topp­stúdíó til að vinna með pródúser og svona. Þetta var rosa­lega fínt og skemmti­legt líf,“ sagði Magnús. „Við vorum allir komnir þarna út um ‘74 og vorum ‘74, ‘75 og ein­hvern part af ‘76. Svo fóru allir heim um jólin en ég ákvað að fara ekki heim því mig lang­aði ekki heim,“ og kjöl­farið tók hann upp og gaf út plöt­una Still Pho­tographs en hún var að koma út á streym­isveitum.

Lifir fyrir hvern lifandi dag

En um krabba­meinið segir Magnús að það hafi greinst í blöðru­háls­kirtli og hann hafi verið sendur til Sví­þjóðar til frek­ari rann­sókna og í þeim kom í ljós að krabba­meinið hafi dreift sér í hryggjar­lið.

„Sem voru ekki góðar fréttir. Ég var sendur í geislun í sjö vikur sem var dálítið „töff“ tíma­bil. Maður verður þreyttur og úrvinda og kvíð­inn auð­vitað.“

„Ég ákvað að taka æðru­leysið á þetta og gerði samn­ing við hryggjar­lið­inn,“ sagði Magnús um málið í Rokk­landi á Rás 2. „Ég sagði við krabba­meinið: „Þú ert í þessu húsi. Þú mátt vera þarna en ég vil ekki að þú sért að æða út um allt. Ég sætti mig við að þú sért þarna, ég skal vera með þér í því, en ég vil ekki að þú sért að þvæl­ast. Síðan hef ég bara haldið haus. Þetta er spurn­ing um það.“

„Ég sætti mig bara við þetta. Maður getur ekki farið fram á það í líf­inu að það gangi allt hjá manni í hag­inn,“ sagði Magnús. „Maður verður að passa sig að fara ekki fram úr sér og skilja sjálfan sig eftir í örvænt­ing­ar­polli og eft­ir­sjá. Það bara gengur ekki. Þú lifir fyrir hvern lif­andi dag og reynir að gera það besta úr honum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027