Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Þrír unglingspiltar gengu berserksgang í Grafarvogi: „Þeir lyktuðu af bensíni og voru alveg óðir“

Grafarvogur. Mynd / Reykjavik.is
Graf­ar­vogur. Mynd / Reykja­vik.is

Þrír 17 ára piltar gengu ber­sersks­gang í Graf­arnótt aðfar­arnótt föstu­dag­ins 13. maí árið 1994 og skildu eftir sig slóð eyði­legg­ingar.

Ríflega þrí­tugur maður slapp vel eftir að hafa haft afskipti af þremur ung­lings­piltum í ann­ar­legu ástandi í maí 1994. Eftir að hafa komið að þeim róta í bif­reið sem var fyrir utan heim­ili manns­ins, fóru drengirnir á brott en þegar mað­ur­inn hóf að elta þá, réð­ust þeir að honum með hamri og grjóti. Lét mað­ur­inn segj­ast og hætti eft­ir­för­inni en eig­in­kona hans hafði þá þegar hringt í lög­regl­una, sem hand­tók þá. Kom þá í ljóst slóð eyði­legg­ingar eftir pilt­ana en þegar þeir voru hand­teknir og settir inn í lög­reglu­bíl, létu þeir öllum illum látum og neydd­ist því lög­reglan til að hringja eftir auka mann­skap, til að hafa hemil á þeim.

DV fjall­aði um málið á sínum tíma en hér má lesa frétt­ina:

Þrír piltar gengu ber­serks­gang í Graf­ar­vogi í nótt:

Réðust að manni með hamri og grjóti – Kalla þurfti að aukalið lög­reglu til að hemja þá í lög­reglu­bíl

„Ég veitti þeim eft­ir­för og þegar ég náði þeim í annað skiptið tókst mér að halda einum þeirra í skamman tíma. Hinir komu þá með hamar og skrúf­járn og köst­uðu að mér grjóti. Þeir slógu til mín en ég hafði vit á að forða mér og lét þetta gott heita og fylgd­ist bara með þeim. Þeir virt­ust hafa það eitt í huga að standa saman,“ sagði 32 ára gam­all maður í Graf­ar­vogi sem varð vitni að því þegar þrír 17 ára piltar brut­ust inn í bíl fyrir utan heim­ili hans. Hann vill ekki láta nafns síns getið af ótta við að pilt­arnir reyni að koma fram hefndum. „Þeir sögðu mér að halda mig á mott­unni ann­ars hlyti ég verra af seinna meir.“ Pilt­arnir voru að róta í bílnum þegar mað­ur­inn sá til þeirra og fór hann út til að hafa afskipti af þeim. Konan hans hringdi hins vegar í lög­regl­una á meðan. Pilt­arnir fóru í burtu en mað­ur­inn veitti þeim eft­ir­för eins og fyrr sagði. „Þeir voru búnir að stela olíu­vörum úr bílum, rífa upp trjá­gróður. stela fatn­aði af þvotta­snúrum og úr einum bíl­anna stálu þeir sam­kvæmi­s­kjól – sem þeir kveiktu reyndar í. Ég held þeir hafi farið yfir um á ein­hverri bensín vímu því þeir lykt­uðu af bens­íni og voru alveg óðir. Það var eyði­legg­ing­ar­slóð eftir þá enda vakn­aði fólk í hverf­inu upp við hávað­ann í þeim.“

Einn af ber­serkj­unum.

Samkvæmt upp­lýs­ingum lög­reglu i morgun gerðu pilt­arnir víð­reist um hverfið og stálu meðal ann­ars reið­hjólum sem þeir voru á og fleiru. Átti lög­reglan allt eins von á því að til­kynn­ingar um fleiri spell­virki pilt­anna bær­ust í dag. Þegar lög­reglan kom á vett­vang klæddu pilt­arnir sig í fatnað sem þeir höfðu stolið svo að lög­reglan ætti erf­ið­ara með að þekkja þá. Hlupu þeir hver í sína átt­ina en voru hand­teknir og færðir í lög­reglu­bíl. Þar létu þeir mjög ófrið­lega og þurfti að kalla til auka­mann­skap til að ráða við þá. Það tókst og gistu þeir fanga­geymslur í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni