Lík af karlmanni fannst í Reynisfjalli seint í gærkvöld. Ekki var hægt að nálgast líkið landleiðina og var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til aðstoðar. Leitað hefur verið að Illes Benedek Incze, ungverskum ríkisborgara búsettum í Vík, frá því í byrjun vikunnar. Síðast sást til hans um klukkan þrjú aðfararnótt mánudagsins 16. september. Lögreglan hefur ekki staðfest að líkið sé af Ungverjanum.
Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar við rannsókn málsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir