Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Borgin siðferðislega vafasöm í nýrri auglýsingu: „Erfitt er að nota mynd af raunverulegu fólki“

Einar Þorsteinsson fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur
Einar Þor­steins­son fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri Reykja­víkur

Reykja­vík­ur­borg not­aði nýverið myndir teikn­aðar af gervi­greind til að aug­lýsa laus störf hjá sveit­ar­fé­lag­inu en í henni er verið að leita eftir hjúkr­un­ar­fræð­ingi í heima­hjúkrun. Notkun á slíkum myndum þykir mjög umdeild, sér­stak­lega meðal lista­manna og lög­fræð­inga, en margir sér­fræð­ingar telja að brot á höf­und­ar­rétti sé að ræða þegar slíkar myndir eru not­aðar því for­ritin sem búa til mynd­irnar skanna list gerða af mann­fólki og setja hana í gagna­banka til að vinna úr síðar.

Þá er ljóst að verði notkun á slíkum myndum tekin með opnum örmum af borg­inni að ljós­mynd­arar og graf­ískir hönn­uðir munu missa miklar tekjur á næstu árum.

Aug­lýs­ingin umdeilda

Mannlíf hafði sam­band við Reykja­vík­ur­borg til að spyrj­ast fyrir um aug­lýs­ing­una.

„Þessar myndir voru not­aðar til að aug­lýsa störf sem erfitt er að nota mynd af raun­veru­legu fólki í og er þetta í fyrsta sinn sem not­ast hefur verið myndir teikn­aðar af gervi­greind,“ sagði Eva Bergþóra Guð­bergs­dóttir sam­skipta­stjóri Reykja­vík­ur­borgar, um málið. „Þessar myndir voru teikn­aðar eftir pöntun en sam­kvæmt lög­fræði­á­liti var þannig ekki talið að gengið væri að höf­und­ar­rétti.“

En mun borgin halda áfram að nota slíkar myndir?

„Þetta var ein­stakt til­felli á einu sviði borg­ar­innar og ákveðin til­raun sem verður skoðuð nú þegar henni er lokið. Engin ákvörðun hefur verið tekin um notkun á gervi­greind í útgefnu efni eða starfs­aug­lýs­ingum,“ en eftir bestu vit­und Evu er þetta eina verk­efnið sem borgin hefur látið gervi­greind teikna fyrir sig myndir.

Ekki búið að marka stefnu

„Reykja­vík­ur­borg á eftir að marka sér stefnu um notkun gervi­greindar þegar kemur að útgefnu efni en má ætla að það verði hluti af umfangs­meiri stefnu­mörkun um notkun gervi­greindar sem er í und­ir­bún­ingi,“ sagði Eva um hvort borgin hafi sett sér reglur í þessu sam­hengi. Þá sagði hún að þar sem ekki hafi verið mörkuð stefna í þessum málum lægi ábyrgð á mynd­unum ekki hjá einni ákveðni deild innan borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir