Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

„Þetta eru verk fólks sem er alger­lega ófært um að líta í eigin barm“

Tómas Þór Þórðarson
Tómas Þór Þórð­ar­son Mynd: Víkingur

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, félags og hús­næð­is­mála­ráð­herra, mælti í fyrra­dag fyrir breyt­ingum á húsa­leigu­lögum sem rík­is­stjórnin segir ætlað að auka hús­næð­is­ör­yggi leigj­enda, draga úr vægi verð­trygg­ingar og auka fyr­ir­sjá­an­leika um þróun hús­næð­is­kostn­aðar.

Rétt er þó að hafa í huga að um er að ræða mark­mið og mat rík­is­stjórn­ar­innar á áhrifum frum­varps­ins. Enn á eftir að koma í ljós hvort breyt­ing­arnar muni í fram­kvæmd skila þeim árangri sem stjórn­völd boða og hvort þær muni raun­veru­lega draga úr hækk­unum á leigu­mark­aði.

„Frum­varpið er lagt fram á grund­velli stefnu­yf­ir­lýs­ingar rík­is­stjórn­ar­innar um að styrkja stöðu leigj­enda og setja heim­ilin í for­gang,“ sagði Ragnar Þór í fram­sögu­ræðu sinni á Alþingi.

Ráðherra sagði breyt­ing­arnar fela í sér lög­fest­ingu á því sem hann kall­aði trausta og vel útfærða leigu­bremsu á íslenskum hús­næð­is­mark­aði.

Að sögn ráð­herra á leigu­bremsan að stöðva sjálf­virkar mán­að­ar­legar hækk­anir og veita leigj­endum aukið öryggi og fyr­ir­sjá­an­leika. Þá full­yrða stjórn­völd að breyt­ing­arnar muni verja heim­ilin gegn stjórn­lausum hækk­unum og draga úr óör­yggi á leigu­mark­aði.

Hvort þær fyr­ir­ætl­anir gangi eftir verður hins vegar ekki ljóst fyrr en breyt­ing­arnar hafa tekið gildi og reynsla er komin á fram­kvæmd þeirra.

Ekki einhugur um málið

Einn þeim sem var ósam­mála Ragnari er Tómas Þór Þórð­ar­son, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina harð­lega í ræðu undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær. Sakaði hann stjórn­ar­liða, og sér­stak­lega Sam­fylk­ing­una, um að beina athygl­inni að Sjálf­stæð­is­flokknum í stað þess að líta í eigin barm.

Tómas Þór vís­aði í umræðu um fyr­ir­hug­aða leigu­bremsu og sagði Sjálf­stæð­is­flokk­inn ekki þurfa að hafa áhyggjur af henni þar sem flokk­ur­inn byggi „leigu­laust í höfð­inu“ á rík­is­stjórn­inni og þá sér­stak­lega Sam­fylk­ing­unni.

„Þetta eru verk fólks sem er alger­lega ófært um að líta í eigin barm, fólk sem sagði eitt fyrir kosn­ingar en gerir annað núna, allt þvert á það sem var lofað. Ég skil að þetta særi stoltið, ég átta mig fylli­lega á því, en að taka það út á stjórn­ar­and­stöð­unni með skít­kasti og stundum hreinu bulli er lít­il­mann­legt.“

Þing­mað­ur­inn gagn­rýndi jafn­framt efna­hags­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar og sagði hana hafa staðið fyrir umfangs­miklum skatta­hækk­unum sem hefðu áhrif á efna­hags­lífið. Hann vís­aði meðal ann­ars til banka­skatts, veiði­gjalda og svo­kall­aðs bað­lóna­skatts.

Tómas Þór sagði rík­is­stjórn­ina þurfa að standa með ákvörð­unum sínum og taka ábyrgð á áhrifum þeirra. Að hans sögn hefðu auknar álögur á ein­stak­linga og fyr­ir­tæki áhrif á meðal ann­ars vexti, verð­bólgu og atvinnu­leysi.

Hann sagði þjóð­ina nú standa frammi fyrir ögur­stund í kjara­málum og lauk ræðu sinni á því að segja að réði rík­is­stjórnin ekki við verk­efnið ætti hún að við­ur­kenna það. Góð byrjun væri að hans mati að stjórn­ar­liðar litu inn á við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Viðreisn mælist með 9,2 prósenta fylgi og Miðflokkurinn með 15,1 prósent. Atli Þór segir Miðflokkinn „hreinlegri“ kost.
  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

  • Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu