Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Solla Eiríks segist vera sleiklaus, „freestyle snoozari“ sem kunni ekki að mála sig

Heilsugúrú­inn, hrá­fæði­kokk­ur­inn og mat­gæð­ing­ur­inn, Sólveig Eiríks­dóttir eða Solla Eiríks, eins og hún er gjarnan kölluð, er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.

Í tugi ára hefur Solla miðlað visku sinni um heilsu­sam­legt fæði og boðið lands­mönnum meðal ann­ars upp á dásam­legan mat á veit­inga­staðnum Gló. Þá hefur hún verið kosin besti hrá­fæði­kokkur í heimi oftar en einu sinni.

Solla hefur einnig gefið út fjöldan allan af upp­skrifta­bókum, en glæsi­leg ný bók úr smiðju hennar er einmitt vænt­an­leg í apríl næst­kom­andi. Bókin heitir Vegan at home og kemur út um allan heim, en nú þegar er hægt að forp­anta hana hér. Það er dóttir Sollu, Hildur Ársæls­dóttir, sem tók allar myndir fyrir bók­ina og stíliser­aði og má með sanni segja að þær mæðgur hafi skapað ein­stak­lega fal­lega bók með ómót­stæði­legum upp­skriftum.

Mannlíf komst að því að Sollu dreymir um líf­rænt Ísland, hún er nýbúin að læra á bor­vél og hún elskar að gleyma sér í eld­hús­inu og eyða tíma með barna­börn­unum.

Fjöl­skyldu­hagir? Ég er sleik­laus, á þrjár þrjár dætur, tvo tengda­syni og tvö barna­börn.

Menntun/atvinna? Ég lauk lands­prófi frá Haga­skóla, Sam­vinnu­skóla­prófi frá Bifröst, Hand­mennta­kenn­ara­prófi frá Hånd­ar­bejdets Fremmes, Textíl­hönnun frá Lista­há­skól­anum (gamla Mynd og Hand) ásamt því að hafa menntað mig sem Hrá­fæði­kokkur í Kali­forníu.

Hef starfað sem veit­inga­kona og mat­ar­hönn­uður síð­ast­liðin 30 ár, stofnað, átt og rekið veit­inga­staði, haldið mat­reiðslu­nám­skeið og fyr­ir­lestra hér heima og erlendis. 

Upp­á­halds sjón­varps­efni? Chefs Table og No Reservation m/Anthony Bourdain.

Leikari? Emma Thompson og Daniel Day Lewis.

Rit­höf­undur? Hermann Hesse og Auður Jóns­dóttir.

Bók eða bíó? 50/50

Kók eða Pepsi? Hvorugt.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Kerl­ing­ar­fjöll.

Hvað er skemmti­legt? Gleyma mér í eld­hús­inu og sam­vera með barna­börn­unum.

Hvað er leið­in­legt? Skafa bíl­inn.

Hvaða flokkur? Það er ekki búið að stofna hann.

Hvaða skemmti­staður? Swett tjaldið í Birki­hofi.

Kostir? Úrræða­góð og jákvæð.

Lestir? Freestyle snoozari og kann ekki að mála mig.

Hver er fynd­inn? Ari Eldjárn.

Hver er leið­in­legur? Tuðarinn.

Trúir þú á drauga? Nei.

Stærsta augna­blikið? Þegar dætur mínar fædd­ust.

Mestu von­brigðin? Að það er eng­inn alvöru umhverf­is­vernd­ar­flokkur á Íslandi.

Hver er draum­ur­inn? Lífrænt Ísland.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Lærði á bor­vél.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Ekki öllum, en lygi­lega mörgum.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Nei, ég rugla þeim öllum saman og bý til nýja sem eng­inn skilur, að mér með­tal­inni………..

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið?

Þegar ég var 6 ára var engin stelpu fót­bolti. Ég þráði að æfa fót­bolta svo ég fór í spari­b­auk­inn, náði í pen­ing og ark­aði til rak­ar­ans og lét hann klippa á mig drengja­koll, fór svo í föt af bróður mínum og ætl­aði að svindla mér inn á stráka­æf­ingu. Þjálf­ar­inn fatt­aði að ég væri stelpa, rak mig útaf og ég eld­roðn­aði og fór grát­andi heim.

Sorg­leg­asta stundin?

Þegar læðan mín slapp út þar sem hún var í pössun og hefur ekki sést til hennar síðan. Það eru liðin 10 ár, og þegar ég keyri fram­hjá hús­inu kíki ég alltaf eftir henni. Þrátt fyrir mikla leit fannst hún aldrei.

Mesta gleðin?

Þegar stelp­urnar og barna­börnin mín fædd­ust.

Mik­il­væg­ast í líf­inu?

Fjöl­skyldan, fjöl­skyldan, fjöl­skyldan og nán­ustu vinir og vin­konur 🙂

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers