Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Eiga rétt á að fá pakkaflugferðir endurgreiddar vegna COVID-19

Breki Karlsson, formaður Neytenda­samtakanna, hvetur stjórn­endur fyrir­tækja til að koma til móts við neytendur með sann­gjörnum hætti á tímum kóróna­veirunnar. Hann segir að fyrstu daga ferða­bannsins hafi borist ótal fyrir­spurnir vegna pakka­ferða og flugs. Þar stendur fólk nokkuð vel hvað réttindi varðar.

„Þeir sem hafa keypt sér ferða­pakka, það er samtengda þjónustu, svo sem flug og bíl eða flug og hótel, eru best varðir. Þeir eiga mestan rétt vegna aðstæðna. Þar er alla jafna hægt að afpanta og fá endur­greitt að fullu,“ útskýrir hann. Það sé lagalegur réttur fólks.

Á vef Neytenda­samtakanna segir að sumar ferða­skrifstofur hafi brugðist við ástandinu með sóma­samlegum hætti en aðrar síður. Vísað er í lög um pakka­ferðir þar sem segir meðal annars að ferða­maður geti afpantað pakkaferð áður en ferð hefst gegn greiðslu sann­gjarnar þóknunar. Þar segir einnig: „Skipuleggjandi eða smásali á ekki rétt á greiðslu þóknunar af hendi ferða­manns ef afpöntun er vegna óvenjulegra og óviðráðanlegra aðstæðna sem hafa veruleg áhrif á framkvæmd pakka­ferðar eða flutning farþega til ákvörðunar­staðar …“

Fram kemur að skipuleggjandi ferðarinnar skuli endur­greiða ferða­manni greiðslur sem honum ber innan 14 daga frá afpöntun. Neytenda­samtökunum þykir ljóst að nú séu uppi óvenjulegar og óviðráðanlegar aðstæður. Þau benda á mikilvægi þess að hafa samskipti skrifleg, til að draga úr hættu á misskilningi en á síðunni er að finna dæmi um bréf sem hægt er að senda ferða­skrifstofu vegna afpöntunar pakka­ferðar.

Nánar um málið í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kortaskilmálar geti bætt flugfargjöld

Breki bendir í samtali við Mannlíf á að fólk sem hefur keypt flug glími við aðrar aðstæður. „Ef flug er fellt niður á flug­félagið að endur­greiða farþegunum að fullu. En ef það er flogið, og farþeginn fer ekki, þá á hann rétt á að fá flugvalla­skatta og -gjöld endur­greidd, en hann á ekki rétt á fargjaldinu.“ Breki segir að við þær aðstæður geti viðskipta­vinurinn oftast sótt rétt sinn í gegnum korta­skilmála, forfalla- eða heimilis­tryggingu. Það fari þó eftir skilmálum hverju sinni. „Það er í flestum tilfellum skilmáli sem segir að ef komið er í veg fyrir ferð vegna opinberra hafta sem leiða af farsótt, þá beri að endur­greiða fólki fargjaldið,“ útskýrir hann.

Í helgar­blaðinu Mannlífi er farið yfir hvernig nokkur af stærstu fyrir­tækjum landsins á sviði fjar­skipta, heilsu­ræktar og afþreyingar­þjónustu hafa brugðist við þeirri stöðu sem uppi er í íslensku samfélagi vegna kóróna­veirunnar. Auk þess er farið yfir réttindi flug­farþega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi