Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sambandið byggðist á lygi

Ég leidd­ist út af spor­inu í nokkur ár þegar ég var ung­lingur. Ég var í vondum félags­skap og var farin að drekka meira en góðu hófi gegndi og nota eit­ur­lyf. Mér tókst að slíta mig frá þessu lífi og byggja upp nýtt líf. Þegar ég kynnt­ist góðum og heið­ar­legum strák þorði ég hins vegar ekki að segja honum frá þessu.

Þegar við Nonni byrj­uðum að vera saman var hann mjög hrein­skil­inn við mig. Hann sagði mér ekki bara frá því góða sem hann hafði gert heldur því slæma líka. Hann lagði mikla áherslu á að við værum opin og heið­ar­leg hvort við annað. Hann sagð­ist ekki geta þolað að vera kannski búinn að tengj­ast mér sterkum böndum og kom­ast síðan að ein­hverju úr for­tíð minni sem hann gæti ekki sætt sig við. Það væri best að vita þessa hluti strax.

Ég sagði honum undan og ofan af sumu af því sem hafði hent mig þegar ég var ung­lingur en þagði um margt. Hann vissi að ég hafði drukkið og notað hass en hann vissi ekki að ég hafði um tíma selt mig til að eiga fyrir leig­unni, mat og vímu­efnum. Ég sagði honum heldur ekki frá því að ég hafði látið eyða fóstri þegar ég var sextán ára, enda hafði ég ekki hug­mynd um hver fað­ir­inn var. Um tíma bjó ég líka með tveimur mun eldri mönnum sem sáu mér fyrir vímu­efnum og hús­næði gegn greiða á móti eins og sagt er.

Alltaf erf­ið­ara að þegja
Í upp­hafi fannst mér þögnin ekki erfið, enda sam­band okkar Nonna þá ungt og alls ekki farið að taka á sig mynd. Þegar ég fór að kynn­ast honum betur fann ég að hann myndi alls ekki skilja margt af því sem ég hafði gengið í gegnum. Hann var sjálfur alinn upp við mikið öryggi og reglu­festu þannig að honum hefði blöskrað sá bragur sem var á heim­ili mínu allan minn upp­vöxt. Mamma var ekki alkó­hólisti en hún var ein með mig og systur mína og skemmti sér ærlega um helgar. Stjúp­feður og kærastar komu og fóru og við syst­urnar vorum því vanar að ókunn­ugir menn væru í rúm­inu hennar á morgn­ana.

„Hann vissi ekki að ég hafði um tíma selt mig til að eiga fyrir leig­unni, mat og vímu­efnum.“

Hans hug­myndir um sið­ferði voru allt aðrar en mínar og stundum sagði ég honum ýmis­legt sem mér fannst bara fyndið og heimsku­legt en honum þótti svo hneyksl­an­legt að hann starði á mig opin­mynntur meðan ég sagði frá. Margt af því sem ég gekk í gegnum fannst mér ekki vert að minn­ast á því að fyrir mér voru þeir hlutir svo ómerki­legir en seinna kom í ljós að í hans augum voru þeir mikið mál. Auk þess var ansi margt í minni for­tíð sem ég ein­fald­lega mundi ekki eftir því ég hafði verið svo full eða útúr­reykt að ég vissi hvorki í þennan heim né annan. Ég var líka orðin ást­fangin af honum og það var orðið mér svo mik­il­vægt að honum lík­aði við mig að ég gat ekki hugsað mér að segja honum frá ein­hverju sem ég vissi að myndi hneyksla hann. Ég vildi að hann hefði gott álit á mér.

Ég þagði þess vegna um ansi margt og tím­inn leið. Við giftum okkur og ég var ánægð­ari og ham­ingju­sam­ari en nokkru sinni fyrr. Oft fann ég reyndar að ég vildi gjarnan geta hreinsað loftið á milli okkar og þegar ein­hverjir sem þekktu mig frá fornu fari komu inn í líf okkar var ég bók­staf­lega á nálum um að þeir myndu segja Nonna eitt­hvað sem hann mætti ekki vita. Og auð­vitað gerð­ist það. Hann fékk að heyra eitt hér og annað þar og alltaf kom hann og spurði hvort þetta væri nú satt. Ég ját­aði flesta hluti en reyndi að fegra þá eins og ég gat. Stundum sá ég að það hafði tek­ist en í sumum til­fellum fann ég að eitt­hvað hafði snert hann svo djúpt að hann gat ekki litið mig sömu augum og áður. Ég vildi að ég hefði notað tæki­færið í eitt­hvert sinn þegar ljót saga hafði borist honum til eyrna og sest niður með honum og sagt honum allt.

Hann gat ekki gleymt for­tíð minni
Ég hefði getað útskýrt fyrir honum að ástandið á æsku­heim­ili mínu, vin­irnir í kringum mig og van­líðan sjálfrar mín hefðu stuðlað að því að ég gerði hver mis­tökin á fætur öðrum. Ég var ekki annað en barn sem hafði búið við óör­yggi allt sitt líf og sjálfseyð­ing­ar­hvötin náði tökum á mér um tíma. Ég flutti ung að heiman. Strax og ég komst á kyn­þroska­aldur mynd­að­ist mikil tog­streita milli mín og mömmu og við rif­umst heift­ar­lega mörgum sinnum á dag. Það varð til þess að ég flutti út fimmtán ára gömul. Mér fannst ég ekk­ert of ung þá. Ég var viss um að ég gæti staðið á eigin fótum en þess í stað dróst ég inn í alls konar vit­leysu með vinum mínum.

„Auk þess var ansi margt í minni for­tíð sem ég ein­fald­lega mundi ekki eftir því ég hafði verið svo full eða útúr­reykt.“

Fyrst eftir að ég fór að heiman leigðum við átta saman litla íbúð sem búin hafði verið til í verk­smiðju­hús­næði. Aðstaðan var ekki upp á marga fiska og hús­næðið lélegt en okkur var alveg sama. Við sönk­uðum að okkur alls konar drasli og svo var slegið upp partíi dag eftir dag. Ég drakk sífellt meira og sökk dýpra og dýpra í fenið. Við misstum auð­vitað hús­næðið fljót­lega því bæði var umgengnin hræði­leg og oft hafði eng­inn sinnu á að borga leig­una. Þá flutti ég heim til tveggja karla ásamt einni vin­konu minni úr hópnum.

Þetta voru bræður sem bjuggu saman í stórri og flottri íbúð. Á yfir­borð­inu vorum við leigj­endur að for­stofu­her­bergi í íbúð­inni þeirra en í raun sáu þeir okkur fyrir víni og dópi gegn því að við svæfum hjá þeim. Vinkona mín eign­að­ist fljót­lega kærasta og flutti til hans en ég bjó þarna í átta mán­uði. Að þeim tíma liðnum var ég komin með svo mikið ógeð á sjálfri mér og körlunum að ég fór.

Á göt­unni
Ég bjó á göt­unni næstu mán­uði og gerði það sem ég þurfti til að kom­ast af. Ég stal, betl­aði og blekkti fólk. Dag nokkurn fékk ég ein­fald­lega nóg af þessu líf­erni og leit­aði mér hjálpar. Ég fór til læknis og bað hann um að koma mér eitt­hvað í burtu frá þessu og hann fékk pláss fyrir mig í með­ferð á Vogi. Í með­ferð­inni kynnt­ist ég konu sem varð nokk­urs konar móð­urí­mynd mín. Hún var mér óskap­lega góð og studdi mig með ráðum og dáð. Þegar með­ferð­inni lauk fékk ég að búa heima hjá henni end­ur­gjalds­laust á meðan ég var að koma undir mig fót­unum.

Þessi kona hvatti mig til að læra og hún kenndi mér að fara með pen­inga og skipu­leggja líf mitt. Þegar við Nonni kynnt­umst hafði ég með hennar hjálp farið á nám­skeið sem gerðu mér kleift að fá góða vinnu á skrif­stofu og ég hafði lagt fyrir í sjóð til kaupa á íbúð. Ég hafði líka tekið aftur upp sam­band við mömmu mína og við mæðgur náð betur saman en nokkru sinni fyrr. Líf mitt var því í góðum far­vegi og Nonni því alger­lega óvið­bú­inn því rugli sem hafði verið á mér áður.

„Í raun sáu þeir okkur fyrir víni og dópi gegn því að við svæfum hjá þeim.“

Spennan í sam­bandi okkar hlóðst upp eftir því sem hann heyrði fleiri sögur. Dag nokkurn kom hann heim ösku­reiður og hóf að pakka ofan í töskur. Einhver hafði sagt honum að ég hefði stundað vændi og hann trúði því. Ég var ger­sam­lega eyðilögð og grét og bað hann að hlusta á mig en hann vildi það ekki. Hann sagð­ist vera ákveð­inn í að skilja við mig og flutti heim til for­eldra sinna.

Til allrar lukku reynd­ist ást Nonna á mér nægi­lega sterk til þess að hann hafði sam­band um leið og honum var runnin reiðin. Við hitt­umst skömmu seinna og töl­uðum saman af full­kominni hrein­skilni. Að þessu sinni sagði ég honum allt. Ég dró ekk­ert undan og reyndi ekki að fegra sjálfa mig. Hann tók þessu betur en ég hafði þorað og vona að ég skildi að óvissan hafði í raun verið verst. Hann hafði skynjað að ég sagði ekki allan sann­leik­ann og þess vegna reynt að geta í eyð­urnar og það hafði farið illa með hann. Við erum saman í dag og erum að reyna að vinna í því að gera sam­band okkar enn betra. Ég finn líka að ég á margt eftir að gera upp í for­tíð minni og það mun taka mig tíma að vinna mig frá því. Það borgar sig aldrei að þegja um hlut­ina því þeir munu ávallt koma upp á yfir­borðið að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina