Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Twitter logaði eftir að Magnús spurði: „Er ég versti pabbi á Íslandi?“

Twitter logaði eftir að Magnús spurði: „Er ég versti pabbi á Íslandi?“

„Er ég versti pabbi á Íslandi eða hringja allar stofn­anir alltaf bara fyrst í mömmur barn­anna? Sama hvað ég hef reynt að láta hringja í mig þá er alltaf hringt fyrst í kon­una mína .“

Þessi spurn­ing Magnúsar Sig­ur­jóns Guð­munds­sonar, betur þekktur sem Maggi peran, hefur vakið mikla athygli á Twitter. Er þráð­ur­inn ansi langur, ummælum verið deilt víða og má draga þá ályktun að enn sé móð­irin í aðal­hlut­verki hvað þetta varðar. Þau sem taka þátt í umræð­unum segja nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust fyrst reynt að ná tali af móð­ur­inni. Svo eru aðrir sem halda fram að fað­ir­inn hafi engan áhuga á að sinna þessu hlut­verki. Einnig er bent á að um vit­und­ar­vakn­ingu sé að ræða og henni langt í frá lokið. Þá skín í gegn að feður eru einnig lang­þreyttir á að lítið þok­ist áfram í þessum efnum.

Maggi peran og faðir hans

Magnús sem er tóm­stunda­fræð­ingur að mennt fær peru­nafnið í beinan karl­legg en faðir hans var kall­aður Gummi Peran. Maggi peran útskýrði þetta nánar í sam­tali við Nútímann: „[Pabbi] var að vinna í fyr­ir­tæki þar sem þrír aðrir hétu Guð­mundur Magn­ús­son. Pabbi var að sjóða peru­stefni á skip og þótti stefnið líkj­ast belgnum á honum. Köllunum þótti fyndið að slengja nafn­inu á hann.“

Egill Ósk­ars­son, fyrr­ver­andi for­maður Vantrúar svarar vanga­veltum Magnúsar:

„Þú ert ekki versti pabb­inn. Þetta er ótrú­lega rót­gróið og við sem vinnum með börn þurfum að vera með­vituð um þetta. Ég reyni að vera það sjálfur.“

Sigrún Þor­steins­dóttir segir að á hennar vinnu­stað fari það eftir starfs­stéttum for­eldra og er þá frekar hringt í það for­eldri sem vinnur í banka ef hitt til dæmis starfar á sjúkra­húsi.

„Ég hef séð svo mik­inn mun á því hvað for­eldrar eru að gera þetta saman og þakka fæð­ing­ar­or­lof­inu fyrir. Ábyrgðin er sam­eig­in­leg en við getum líka gert betur,“ segir Sigrún.

„Ég spyr líka oft­ast hvort for­eldri sé betra að ná í, það er alltaf að verða jafn­ara,“ segir Egill.

Eva María bendir á að einnig fari eftir hvernig Mentor raðar en þar er yfir­leitt alltaf móð­irin ofar á lista.

„Svo hefur þetta verið kerf­is­lægur vandi held ég. Sjálf reyni ég að hringja til skiptis eða í það for­eldri sem hefur oftar sam­band,“ segir Eva María og bætir við að hún hafi séð oftar en einu sinni, kerfið raða móður fyrir ofan þó svo að faðir skrái sig á undan.

Hringir alltaf í móðurina

Arnór Heið­ars­son kveðst hafa gert sam­fé­lags­lega til­raun um tíma og þá alltaf hringt í föður hafi vantað upp­lýs­ingar.

„Í 19 af hverjum 20 skiptum vissi hann lítið og bað mig um að hafa sam­band við mömm­una. Ég sá að þetta var tíma­sóun og hringi núna alltaf í mömm­una, nema ég viti betur.“

Hildur Ýr Ísberg kenn­ari þver­tekur fyrir að slíkt sé tíma­sóun. Hún segir:

„Þetta er liður í vit­und­ar­vakn­ingu og normalís­er­ingu á þátt­töku feðra í skóla­starfi.“

„Ég er ekki endi­lega viss um að það að ég hringi fyrst í pabba en mömmu hafi úrslita­á­hrif þar,“ svarar Arnór og bætir við: „Þetta er samt í öllu falli eyðsla á tíma sem ég hef ekki. Skil­virkni og nýt­ing á tíma skiptir máli líka.“

Óskað sérstaklega eftir að hringt sé í föður

Þá segir Edda Rós: „Það er alveg sama hvað. Það er alltaf hringt í mig en ekki mann­inn minn. Jafnvel þegar við biðjum um það. Jafnvel þegar við ítrekum að við séum búin að biðja um það.“

Donna sem deildi umræð­unum á sína síðu svarar Eddu: „Þetta er svo illa bia­sed kerfi. Mjög mikið að búa til vanda­mál sem ætti ekki að þurfa að vera til staðar. Hvað ef að það næst bara stundum betur í mann­inn og er það ekki bara full­komn­lega eðli­legt? Svona hugs­un­ar­háttur er bara að setja okkur í ein­hver hlut­verk

Sóley tjáir sig

Sóley Tóm­as­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi

Hallbera Eiríks­dóttir vitnar í við­tal við Andreu Róberts­dóttur er vann í Hjalla­stefnu­skóla. Þar var verk­lagi breytt og alltaf hringt í föð­ur­inn fyrst.

Sóley Tóm­as­dóttir femínisti, aktí­visti og mann­rétt­indasinni deilir færslu Magnúsar og segir:

„Mjög áhuga­verðar umræður um hvernig til­finn­inga­vinna kvenna við­heldur sér…“

Hildur Ýr Ísberg tjáir sig á ný og segir: „Mömm­urnar vita bara meira“ krist­allar svo fokk­ing vel af hverju konur eru fastar með „mental load“ fyrir fjöl­skyldur sínar.“

Þessu svarar Sigrún Skafta­dóttir og segir pirr­andi að ætl­ast sé til að mæður séu alltaf verk­efna­stjórar heim­il­is­ins og með allt á hreinu. Allir tapi á slíku.

Svona var símtalið

Jóhann Thorsson tjáir sig um sína upp­lifun og vitnar í sam­tal við skóla vegna barns­ins síns.

„Sæll Jóhann, þetta er X hjá Xskóla.“

„Sæl.“

„Afsakaðu að ég sé að hringja í þig, ég náði ekki í kon­una þína.“

Jóhann segir sam­talið hafa átt sér stað á þessum nótum og hann svarað starfs­manni skól­ans að sjálf­sagt væri að hringja í hann þar sem hann væri einnig for­eldri barns­ins.

Þá heldur Helga Lilja því fram að 90% af körlum hafi ekki áhuga á að deila ábyrgð með móð­ur­inni. Segir hún lítið þok­ast í rétta átt í þessum efnum.

Halldóra segir: „Væri mjög áhuga­vert að sjá í hvort okkar leik­skól­inn mun hringja næst (gerð­ist síð­ast fyrir meira en ári og þá var hringt í mig). Kærast­inn minn er núna í mestum sam­skiptum við starfs­fólk, bæði fer með strák­inn og sækir hann nán­ast alla daga.“

Hvað segja lesendur?

Sé tekið mið af umræð­unum eru sterkar vís­bend­ingar um að í flestum til­vikum sé haft sam­band við móður ef upp­lýs­ingar vantar um barn eða eitt­hvað kemur uppá.

Séð og heyrt á Mannlíf spyr: Hvernig er þín upp­lifun á þessu?

Er oftar hringt í móður eða föður þegar kemur að þínu barni?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina