Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Morðið við Rauðagerði: Einn hinna handteknu á skammbyssu – Gaf sig sjálfur fram

Morðið við Rauðagerði: Einn hinna handteknu á skammbyssu – Gaf sig sjálfur fram
Skjáskot af mynd­skeiði Rík­is­sjón­varps­ins / ruv.is

Fjórir voru hand­teknir til við­bótar í tengslum við hrotta­legt morð sem framið var um helg­ina í Rauða­gerði. Áður höfðu fjórir verið úrskurð­aðir í varð­hald vegna máls­ins. Einn hinna hand­teknu á skamm­byssu. Lög­reglan úti­lokar ekki að fleiri en einn hafi verið að verki er Armando var myrtur en einnig gæti verið um deilur á milli tveggja ein­stak­linga að ræða.

Aftakan var framin við Rauða­gerði um mið­nætti á laug­ar­dag. Ungur maður á fer­tugs­aldri var tek­inn af lífi á hrotta­legan og kald­rifj­aðan hátt. Hinn myrti var Íslend­ingur, Armando Beqiri, sem á ættir að rekja til Albaníu. Hann sett­ist hér að annan jóla­dag árið 2014, lærði tungu­málið, kynnt­ist konu og gift­ist, eign­að­ist barn og átti von á öðru kríli í fangið örfáum mán­uðum síðar, eig­in­maður, faðir og fyr­ir­tækja­eig­andi í Gerðunum. Unnusta hans er nú gengin 24 vikur. Eig­in­kona Armando og lítið barn þeirra voru inni í hús­inu þegar hann var myrtur.

Lögregla hand­tók erlendan karl­mann síðar um nótt­ina en hann hafði komið til lands­ins fyrir rúmum þremur vikum. Sá sem var hand­tek­inn fyrstur og var um tíma í frönsku útlend­inga­her­sveit­inni mun sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs, ekki hafa þekkt neitt til Armando. Hann var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald. Um sól­ar­hring síðar voru þrír hand­teknir í sum­ar­bú­stað skammt frá Selfossi. Voru þeir úrskurð­aðir í viku­langt gæslu­varð­hald.

Talið er að Armando hafi verið myrtur með skamm­byssu en hljóð­deyfir hafi verið skrúf­aður á byss­una. Í gær hand­tók lög­regla fjóra til við­bótar. Mannlíf hefur heim­ildir fyrir því að einn hinna hand­teknu eigi skamm­byssu og mun hafa sýnt vopnið við hin ýmsu tæki­færi. Þekkti hann Armando vel. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hafði lög­regla lagt mikla áherslu á að hafa hendur í hári hans. Hann gaf sig sjálfur fram í gær­kvöldi og mætti niður á lög­reglu­stöð.

Lögregla gerði hús­leitir á þremur stöðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og var ýmis­legt hald­lagt. Allt frá öku­tækjum niður í smá­hluti.

Margeir sagði í sam­tali við RÚV að rann­sóknin væri umfangs­mikil og nú væri skoðað hvort fleiri en einn ættu þátt í morð­inu.

„Við erum að skoða alla þætti, sama hvort það teng­ist ein­hverjum hópum sem eru í und­ir­heimunum, eða hvort þetta sé eitt­hvað ein­stakt dæmi á milli ein­hverra örfárra aðila eða hvernig það er.“

Lögregla hand­tók eins og áður segir fjóra til við­bótar síð­asta sól­ar­hring­inn og tekin hefur verið ákvörðun um að krefj­ast gæslu­varð­hald yfir þremur. Ekki hefur verið tekin ákvörðun hvort farið verði fram á varð­hald yfir fjórðu mann­eskj­unni. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs voru tveir hinna hand­teknu nýlega komnir til lands­ins en hin búsett á Íslandi. Margeir tjáði sig einnig við Frétta­blaðið:

„Hvort þetta sé stakt til­vik tveggja ein­stak­linga í deilum eða hvað það er. En við erum að skoða alla þætti sem koma til greina.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð