Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Skipstjórinn sem gerðist skæruliði: Páll Steingrímsson lagði nafn sitt við skrif annarra

Skipstjórinn sem gerðist skæruliði: Páll Steingrímsson lagði nafn sitt við skrif annarra

Varla er til það manns­barn á Íslandi í dag sem ekki hefur rekið augun í harð­vít­ugar en næsta eðli­legar opin­berar vanga­veltur eftir það offors sem kunn­ugir segja hafa ríkt í ætl­uðum áróð­urs- og harð­línu­skrifum Páls Stein­gríms­sonar, skip­stjóra hjá Samherja, und­an­farna mán­uði sem svo reynd­ust að miklu leyti rit­aðar af öðrum starfs­manni Samherja, Þorbirni Þórð­ar­syni, lög­manni og fyrr­ver­andi frétta­manni.

Fæstir þekkja til Páls sem nú er alræmdur fyrir að vera hluti Skæru­liða­sveitar Samherja og hafa sett nafn sitt ítrekað við greinar og athuga­semdir sem aðrir höfðu samið. Þetta varð opin­bert þegar Stundin og Kjarninn birtu gögn sem fengin voru úr síma Páls. Þar kemur fram að svo­nefnd Skæru­liða­sveit Samherja skipu­lagði aðför að frétta­mönnum og vildi hafa áhrif á kjör for­manns í Blaða­mann­fé­lagi Íslands. Þá vildu skæru­lið­arnir, með vel­þóknum for­stjóra Samherja, tryggja að Njáll Trausti Frið­berts­son fengi ekki odd­vita­sæti hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Sjálfur hefur Páll full­yrt að síma hans hafi verið stolið þegar hann lá fár­veikur í önd­un­ar­véla á sjúkra­beði. Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, hefur ítrekað svarið af sér þann þjófnað og segir að gögnin séu frá þriðja aðila. 

En hver er þessi Páll Stein­gríms­son sem hóf störf sem skip­stjóri og gerð­ist síðar leppur yfir­boð­ara sinna? Páll sagð­ist í hlað­varp­inu Sjóarinn sann­færður um að í lagi væri að taka einn dag­inn frá linnu­lausum Sam­herjaum­fjöll­unum. Þessi orð og fleiri lét skip­stjór­inn falla í íta­legu við­tali við Stein­grím Helgu Jóhann­es­son nú í des­em­ber þar sem hann rekur meðal ann­ars upp­vöxt sinn á Rauf­ar­höfn, segir frá fyrstu tog­ara­ferð­inni með föður sínum, Garðari Frið­geirs­syni heitnum, þá níu eða tíu ára gam­all og segir sjó­inn hafa fangað hug sinn strax á barns­aldri. 

Samherjaævintýrið byggir á þrjátíu ára grunni

Þorstein Má Bald­vins­son ber á góma í við­tal­inu og kemur meðal ann­ars fram að for­stjór­inn var forðum daga jafnt hvati þess að Páll réði sig sem stýri­mann á frysti­tog­ara en þó ekki fyrr en að skyldu­námi loknu, gekk hart á eftir því að Páll lyki prófum hið snarasta þegar náms­árið var yfir­staðið í Stýri­manna­skól­anum og lét sig ekki fyrr en sá síð­ar­nefndi hafði sam­þykkt að taka öll þrjú loka­prófin á einum og sama deg­inum. Var til­von­andi stýri­manni í kjöl­farið ekið upp að land­gangi tog­ar­ans og þar hófst þriggja ára­tuga fer­ill sem ekki sér með öllu enn fyrir end­ann á og Páll segir hafa haldið lífi sínu í föstum skorðum bróð­ur­part full­orð­ins­ára sinna.

Þorsteinn Már helsti hvatinn að stýrimannanámi Páls skipstjóra 

Upphaf alls segir Páll í við­tali hafa verið árið 1991. „Ég fer á grá­sleppu með vini mínum og á þeirri ver­tíð fæ ég sím­talið sem hefur haldið lífi mínu í föstum skorðum í þrjá­tíu ár. Þá hringir Þor­steinn Már í mig og spyr hvort ég vilji koma á Víði. Þá voru þeir rétt búnir að fá hann úr breyt­ing­unum í Póllandi. Sem frysti­tog­ara. Ég er þar árin 1991 til 1993 og þá er ég að brasa um borð, skipin voru öll við bryggju fyrir Sjó­manna­dag­inn. Þá kemur Þor­steinn Már til mín á bryggj­unni og segir: „Þú þarft að gera svo­lítið fyrir mig. Þú þarft að fara í Stýri­mann­skól­ann. Ha, – segi ég og hann segir – Já, mig er farið að vanta stýri­mann. Ég held að þú ættir að skoða þetta”.   

Ætlaði að hafa það huggulegt á Íslandi í kjölfar fimmtán ára fjarveru 

Í við­tal­inu kemur einnig fram að síð­asta túr Páls skip­stjóra á vegum Samherja ætti hann að taka um síð­ustu ára­mótin og sagð­ist hann þá ekki vita með vissu hvað tæki við þegar tog­ar­inn loks kæmi í land. Að eftir fimmtán ára dvöl erlendis á vegum vinn­unnar yrði gott að snúa heim. 

Lítt hefur Páli senni­lega grunað í des­em­ber að fáeinum mán­uðum seinna yrði nafn hans á allra vit­orði skömmu eftir að hann ræddi skel­eggur búferla­flutn­inga heim eftir fimmtán ára úthald á sjó frá erlendum hafn­ar­bökkum. 

Sjómennskan átt hug skipstjórans allt frá ellefu ára aldri 

„Ég hafði alltaf áhuga á sjónum, krakkar byrja snemma að vinna þarna á þessum slóðum,” klykkir Páll út með í upp­hafi við­tals og á þar við Rauf­ar­höfn þar sem hann bjó til tví­tugs. „Svo var ég að vinna hjá fyr­ir­tæki eins og ger­ist á þessum stöðum, 11 eða 12 ára gam­all og var að landa úr trillum,” heldur Páll áfram. “Svo logn­ast það fyr­ir­tæki út af en sá sem var áður eig­andi þar fer sem verk­stjóri á frysti­húsi í Rauf­ar­höfn. Hann dregur sig með sér og ég ákvað í fram­hald­inu að fara í Fisk­vinnslu­skól­ann í Hafn­ar­firði.” 

Sextán ára gam­all flutt­ist Páll suður og eyddi tveimur árum í höf­uð­borg­inni, sneri svo aftur heim, tók við vinnu sem úti­verk­stjóri í frysti­húsi og hljóp í skarðið sem háseti á tog­ara að beiðni Valdi­mars heit­ins Þor­valds­sonar, sem þá fór með fram­kvæmd­ar­stjórn Jökuls. „Ég fer þarna sem háseti með minn fyrsta túr og ég held ég hafi nán­ast aldrei unnið laun­aða vinnu í landi síðan.” 

Segir íslenska vélstjóra frábæra starfskrafta og njóta virðingar erlendis

Ekki hafði Páll þó enn sagt skilið við skóla­bæk­urnar, en skip­stjór­inn lauk grunn­deild raf­iðn­aða og er með lítil vél­stjóra­rétt­indi. „Ég hef dundað mér við ýmis­legt með­fram því að vera á sjó. Þetta er nauð­syn­legt, að stökkva í flest verk um borð, þegar maður hefur verið í erlenda hluta af Samherja þar sem margir vél­stjór­arnir eru ekki með sömu þekk­ingu og menntun og íslenskir vél­stjórar. Íslenskir vél­stjórar eru frá­bærir starfs­kraftar.” 

Þá segir Páll íslenska sjó­menn með stýri­manna­próf njóta virð­ingar í erlendum skips­höfnum þar sem íslensk vél­stjóra­menntun og slysa­varna­nám okkar hér sé fram­úr­skar­andi og langtum ítar­legra en þekk­ist í nágranna­löndum okkar. 

Mig vantar stýrimann – taktu bara þrjú próf í einu og komdu strax

Ekki fékk Páll þó að ljúka burt­far­ar­prófum úr Stýri­manna­skól­anum með eðli­legum hraða forðum daga, því for­stjór­inn gekk hart á eftir útskrift. „Hann [Þor­steinn Már] hringir í mig og spyr mig hvenær ég sé búinn í próf­unum og ég átti þrjú próf eftir. Hvað hann væri að spá? Hann spyr mig þá hvort ég geti ekki tekið þrjú próf í einu á sama degi.” Páll seg­ist hafa dregið úr orðum Þor­steins enda hafi hann haft metnað til að skila góðum ein­kunnum. Hann hafi þó rætt við kennar­ann og að lokum hafi orðið að sam­komu­lagi að öll skyldu prófin tekin sam­dæg­urs. 

„Ég hringi svo aftur í Þorstein og segi honum að ég geti fengið þetta í gegn en að ég verði ekki búinn fyrr en 4 eða fimm þann dag­inn, en skipið átti að fara klukkan tvö. Hann [Þor­steinn Már] hlustar og segir svo bíddu ég hringi eftir smá. Hann hringir svo aftur og segir – Heyrðu, settu bara dótið þitt um borð. Þeir pikka þig bara upp og senda svo sódíakinn og sækja þig þegar þú ert búinn í próf­unum.” 

Þreytti þrefalt lokapróf samdægurs að beiðni Þorsteins Más 

Þar með var fram­tíðin ráðin, Páll sætt­ist á að þreyta þrefalt loka­próf í Stýri­manna­skól­anum einn og sama dag­inn, var sóttur af áhöfn og um borð fór hann og hefur verið á sjó síðan að upp­lagi Þor­steins Más, for­stjóra Samherja. Staðan sem nú er komin upp hefur hins vegar engum órað fyrir í upp­hafi og það þrátt fyrir umdeild áróð­urs­skrif Samherja með til­heyr­andi pompi og prakt. Páll skip­stjóri fer hins vegar hvetj­andi orðum um slysa­varna­skóla sjó­manna hér á landi í við­tal­inu og segir meðal ann­ars: 

„Slysa­varnir sjó­manna hafa batnað síð­ustu ár. Menn eru meira með­vit­aðir um kröfur til sjálfs síns og útgerð­innar og yfir­manna sinna í brú. Það sem mér finnst skemmti­leg­ast eftir fimmtán ár erlendis er að ég mæti þessum sömu skoð­unum t.d. í Bret­landi. Þegar menn þar sjá skír­teinin þín þá færðu þetta við­mót; við vitum að það er eitt­hvað á bak við skír­teinin þín því þú ert frá Samherja.” Því fer ekki á milli mála að Páll er stoltur af stöðu sinni hjá útgerð­ar­fé­lag­inu og þeirri menntun sem sjó­mönnum á þeirra vegum býðst. 

Vildi ekki svara hvað tæki við þegar heim til Íslands kæmi 

Þá segir Páll einnig frá því að allir skip­stjórn­ar­menn Samherja sem starfi erlendis og jafn­vel þeir sem ekki séu búsettir á Íslandi fari alltaf í íslenska slysa­varna­skól­ann. „Það er ákveðið gar­antí á bak við íslensk skír­teini. Það er svona pínu skrýtið hvað þessi skóli [Slysa­varna­skóli sjó­manna] er búinn að skapa sér gott orð og líka erlendis. Það finnst mér líka ákveð­inn gæða­stimp­ill á skól­ann, óháð því hvað menn segja. Þú getur skoðað þetta úr fjar­lægð þó þú takir ekki töl­fræð­ina inn í mynd­ina. Hvert sem þú kemur, hvernig við­mótið er í Bret­landi, Þýska­landi, Póllandi, hvert sem þú kemur þegar þú flaggar þínum [íslensku] skír­teinum”. 

Aðspurður sagð­ist Páll telja tíma­leysið helsta vanda nútím­ans og að hann hefði séð unga menn á sjó berj­ast við að taka eina kríu á túrum. „Ég hef ekki verið heima í fimmtán ár,” sagði skip­stjór­inn nú í des­em­ber. „Nú er ég að fara að taka minn síð­asta túr en ég er að hætta úti”. 

Umræddur túr Páls Stein­gríms­sonar um síð­ustu ára­mót var til Falklandseyja en þegar spurn­ingin var borin upp var honum ekki svara­vant. 

„Veistu, ég veit ekki hvað ég er að fara að gera. Ég er að koma heim.”

Viðtal Stein­gríms Helgu Jóhann­es­sonar þar sem ferða­lag þeirra Þor­steins Más for­stjóra er rakið, ásamt frá­sögn af starfi Páls skip­stjóra hjá útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja til þrjá­tíu ára er nokkuð lit­ríkt og fróð­legt á köflum. Viðtalið er á Spotify: Smellið HÉR

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina