Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Þetta eru viðbrögð þeirra sem Ingó kærði: „Vaknaði bara við að Ingó veðurguð er búinn að kæra mig“

Fyrr í dag var greint frá nöfnum þeirra fimm sem Ingólfur veð­urguð fékk lög­mann sinn, Vilhjálm H. Vil­hjálms­son, til að senda kröfu­bréf. Í þeim er farið á leit að við­kom­andi biðji Veð­urguð­inn afsök­unar á æru­meið­andi ummælum í hans garð, dragi þau til baka og greiði honum miska­bætur og lög­fræði­kostnað.

En það voru Edda Falak áhrifa­valdur, Sindri Þór Sig­ríð­ar­son Hilm­ars­son við­skipta­fræð­ingur, mark­aðs­stjóri, bar­áttu­maður og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Pírata, Ólöf Tara Harð­ar­dóttir, einn for­svars­maður aðgerða­hóps­ins Öfga, Kristlín Dís Ingi­lín­ar­dóttir blaða­maður á Frétta­blað­inu og Erla Dóra Magn­ús­dóttir, blaða­maður á DV, sem fengu kröfu­bréf send til sín.

Fólk er farið að tjá sig um málið á sam­fé­lags­miðlum, þar á meðal nokkrir af fimm­menn­ing­unum hér að ofan.

„Vaknaði bara við að Ingó veð­urguð er búinn að kæra mig. Getur ein­hver gefið mér kaffi?“ Skrifaði Kristlín blaða­maður fyrr í dag og bætti svo við: „Hef fimm daga til að borga þrjár millj­ónir í miska­bætur. What a day.“

Ólöf Tara þakk­aði fyrir stuðn­ing­inn eftir að fréttir bár­ust af kæru Ingós. „Ég veit eig­in­lega ekki hvað ég get sagt. Kvenna­sam­staðan er alveg hreint mögnuð.
Stuðn­ings yfir­lýs­ingar frá fólki og konum sem ég er nýbúin að kynn­ast
Þetta er eins og vera partur af einni stórri fjöl­skyldu.
Þið vitið hver þið eruð… takk fyrir ykkur öll/allar.“

Erla Dóra virð­ist ekki vera að stressa sig á þessu. „Jæja þá á maður víst von á pósti en eng­inn heima. Geta kettir kvittað undir hjá stefnu­vottum? (Notabene, annar kött­ur­inn kann sko að opna hurð­ina svo það gæti komið til álita.“

Sindri Þór, eða Siffi G,  hefur tjáð sig um málið á Twitter reikn­ingi sínum, en þar skrifar hann: „Jæja þá skuldar maður bara sjö millj­ónir fyrir að tweeta „bingó reð­ur­snuð“.“

Jón Trausti, rit­stjóri Stund­ar­innar, segir það ágætt að Ingó taki það á sig að vera for­dæmi fyrir hvernig ekki eigi að bregð­ast við kyn­ferð­is­brota ásök­unum.

„Ágætt að Ingó tekur það á sig að verða PR skóla­bók­ar­dæmi fram­tíð­ar­innar um það hvernig á ekki að bregð­ast við ásök­unum um kyn­ferð­is­brot. Skref fyrir skref. Lið fyrir lið. Ekki að hann sé sá fyrsti sem gerir það, bara sá fræg­asti.“

Hrafn Jónsson hæð­ist að kröfu Ingós. „Ég vil að Ingó veð­urguð greiði mér þrjár millj­ónir og birti opin­bera afsök­un­ar­beiðni á Facebook síðu sinni í 48 klukku­stundir fyrir að vera „a huge piece of shit“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið í vikunni

Innlent

Öskurapi með vesen

Tveir gistu í fangageymslum lögreglu í nótt.
Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu