Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásta var ein fyrsta metoo kona Íslands: „Það hefur enginn leyfi til að snerta líkama annarra“

Ásta var ein fyrsta metoo kona Íslands: „Það hefur enginn leyfi til að snerta líkama annarra“

„Það sem ekki hefur breyst í gegnum öll þessi ár er að þolendum virð­ist ekki trúað nema af litlum hópi fólks. Mér verður hrein­lega flök­urt við að heyra þessa frasa að það sé ,,verið sé að taka menn af lífi” og að fólk sé „sak­laust uns sekt er sönnuð,” segir Ásta Knúts­dóttir, ráð­gjafi hjá Dreka­slóð sem hefur í yfir tvo ára­tugi verið öfl­ugur tals­maður gegn kyn­ferð­is­of­beldi.

Sumir vilja kalla Ástu fyrsta metoo tals­mann Íslands þótt hún sé nú ekki alveg sam­mála þeirri nafn­gift. „Það voru auð­vitað hug­rakkar konur og karlar á undan mér sem veltu hlössum og brutu múra og þar er auð­vitað nær­tæk­ast að minn­ast á bisk­ups­málið. Það er í kringum 1995-96 sem það kom upp í fjöl­miðlum og sú sem hafði kjarkinn til að tala fyrir hop þess­ara kvenna þurfti að flýja land. Við vorum afar nánar vin­konur, hún er því miður látin í dag”.

Hótanir og svívirðingar

Ásta segir að á tíma bisk­ups­máls­ins hafið áreitið og ofsókn­irnar á hendur þolendum verið með öðru sniði.,,Þá voru engir sam­fé­lags­miðlar, fólk var ekki einu sinni með gsm síma,bara  heima­síma og sím­svara og þar voru hót­an­irnar og sví­virð­angarnar að ber­ast. Aðrir mættu hrein­lega heim til hennar”. Hún segir það sama hafa gerst árið 2010 þegar lands­þekktur trú­ar­leið­togi var ásak­aður um kyn­ferð­is­brot.

Ásta segir að það hafi aldrei verið ætlun sín að feta þessa slóð. „Ég var nýlega byrjuð innan trú­fé­lags þegar for­stöðu­konan í þeim söfn­uði kom til mín og bað mig að hitta þrjár til fjórar konur sem höfðu verið í sál­gæslu hjá henni. Sjálf var hún ekki þol­andi kyn­ferð­is­of­beldis og bað mig að hitta þessar konur og veita þeim jafn­ingja­stuðn­ing, þol­andi til þol­anda þar sem ég hafði orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi sem barn. Og svo springur þetta út og end­aði hóp­ur­inn í sjö þolendum sem ég varð stuðn­ings­að­ili fyrir. Mig óraði aldrei fyrir hversu stórt og alvar­legt sam­fé­lags­vanda­mál var og er um að ræða”.

Gerendur brugðust eins við

Ásta segir erfitt að lýsa ótta þeirra kvenna sem komu fram undir nafni á þessum tíma. „Sumar þorðu ekki að vera einar heima, það var komið heim til þeirra, það var hangið á hurð­inni, bankað, hringt og hótað. Þarna voru 14 ár liðin frá bisk­ups­mál­inu og hafði lítið sem ekk­ert breyst. Það er reyndar merki­legt að bera saman þessi tvö mál því báðir ger­endur brugð­ust eins við. Fyrst var reynt að þagga niður í kon­unum með hót­unum og svo var farin dóm­stóla­leiðin. Í fyrra mál­inu dró bisk­upinn sig til baka og hætti mála­rekstri áður en dómur féll en hinn, trú­ar­leið­tog­inn, tók málið alla leið og dró mig, ásamt fleirum, til að mynda fjöl­miðlum og öðrum sem fjöllum um málið, fyrir dóm þar sem hann krafð­ist sam­tals 15 millj­óna króna í miska­bætur”.

Svo fór að trú­ar­leið­tog­inn fékk aðeins fimm ummæli af 21 dæmd dauð og ómerk og áttu þessi fimm ummæli það sam­merkt að hafa nota orða­lagið, „gerst sekur um refsi­verða hátt­semi”. Þarna var um laga­tækni­legar for­sendur að ræða.

Ásta segir trú­ar­leið­tog­ann engan sigur hafa unnið, aftur á móti hafi þolendur hans fengið að segja frá sinni reynslu frammi fyrir dóm­ara og í dóms­nið­ur­stöðu var tekið fram að frá­sagnir þeirra væru trú­verð­ugar. ,,Það var kannski stærsti sig­ur­inn. Þær voru búnar að fara kæru­leið­ina en öll brotin voru fyrnd þannig að það fór engin rann­sókn í gang. En þær báru vitni og á þær var hlustað, það var skjal­fest og verður svo um ókomna tíð”.

Þekkti tónlistarmaðurinn

Hún vill meina að þessi dómur hafi haft for­dæm­is­gildi. „Ég tala nú ekki um í tengslum vi það sem er að ger­ast í dag í tengslum við þekktan tón­list­ar­mann sem hefur ákveðið að kæra en ég tel að hann muni ekk­ert hafa upp úr því. Þetta var reyndar einka­mál sem for­stöðu­mað­ur­inn höfð­aði gegn mér og fleirum en sjálf­sagt verður það sama að segja um tón­list­ar­mann­inn ef hann heldur þessu til streitu”.

Ásta segir að þessi mál hafi öll verið skref í bar­átt­unni, þolendur í dag sætti sig ekki við að í þeim sé þaggað né að þeim sé ógnað. „Breyt­ingin á sem hefur orðið síð­ast­liðin ára­tug er aðal­lega sá að þolend­urnir eru fyrri til að opna sig sem er gríð­ar­lega jákvætt. Í dag eru stelp­urnar að átta sig á því að þær höfðu fullan rétt á að vera fullar á úti­skemmtun eða hvar sem er. Það gefur engum leyfi fyrir áreiti eða mis­notkun. Þær sætt sig ekki lengur við að á þær sé ekki hlustað. Og það vil ég þakka þeim spor­göngu­mönnum sem brutu niður múr­ana smátt og smátt. Þegar ég vann með kon­unum árið 2010 var til dæmis yngsta brotið 11 ára gam­alt. Þarna sé ég mik­inn mun”.

„Ég sé að það muni líka ger­ast í þessu máli tón­list­ar­manns­ins, að þessir þolendur, sem ég kýs að trúa, enda trúi ég alltaf þolendum, fái að koma fram fyrir dóm­ara og segja frá sinni reynslu, jafn­vel þótt það sé ekki hægt dæma því málin sé ann­að­hvornt fyrnd eða ekki taldar nægar sann­anir”.

Ekki karlar á móti konum

Ásta leggur ríka áherslu að umræðan megi ekki fara í það sem hún kýs að kalla sorg­legar skot­grafir karla á móti konum. ,,Þetta snýst ein­fald­ega um þetta sam­fé­lags­lega mein sem við erum að glíma við, að fólk skuli ekki vera að virða mörk ann­arra. Það hefur eng­inn leyfi til að snerta lík­ama ann­arra og það má ekki gleyma að konur beita líka gríð­ar­lega miklu og margs konar ofbeldi.

Ég hef velt fyrir mér fram og til­baka af hverju ofbeldi karla gegn konum sé svona áber­andi, af hverju er ekki verið að fjalla um ofbeldi kvenna gegn körlum eða ofbeldi karla gegn körlum? Gæti það verið út af því að konur eru hug­rakk­ari og þora frekar? Eða er það vegna þess að karlar eru sterk­ari og geta borið byrð­arnar lengur? Ég veit það ekki. Eða er það vegna þeirra mýtu í þjóð­fé­lag­inu að karl­menn eigi að vera sterk­ari aðil­inn og opin­bera ekki til­finn­ingar sínar?”

Ásta er segir að þótt það sé dýr­mætt að æ fleiri karl­menn komi hafi komið fram með sína reynslu á síð­ustu 10-15 árum, séu of margt óbreytt. ,,Ég veit per­sónu­lega til karl­manna sem hafa verið mis­not­aðir kyn­ferð­is­lega af konum, barðir af konum, ég veit líka um dæmi um að móðir hafi mis­notað börn sín.  Þetta snýst ekki um kynin. Ég myndi svo gjarnan vilja sjá okkur taka kynin út og tala ein­fald­lega um ofbeldi, ger­endur og þolendur, án kyn­grein­ingar. Ég vann til dæmis á skemmti­staðnu 22 fyrir um 30 árum og sam­kyn­hn­eygðir vinir mínir urðu fyrir gríð­ar­lgu kyn­ferð­is­of­beldi af hendi kvenna og það hvarflar ekki að mér að það hafi breyst. Þð er bæði furðu­legt og sorg­leg að það sé meira umburð­ar­lyndi gegn brotum kvenna. Konur grípa í kyn­færi karla. Er það í lagi? Nei það er aldrei í lagi”.

Fór í kulnun

Aðspurð hvort henni hafi þótt erfitt að stíga fram og ræða kyn­ferð­is­brot opin­ber­lega segir hún svo ekki vera. ,,Ég var knúin af ein­hverjum innri styrk. Ég held að það hafi fyrst og fremst verið upp­eldi mitt. Ég var alin upp í hafa sam­kennd með öðrum og rétta hjálp­ar­hönd þegar ein­hver þarfn­ast hjálpar. Síðan er það trúin mín, ég á sterka trú á Jesú Krist og í þessu máli árið 2010 hafði það mest áhrif að þessi trú­ar­leið­togi hafði svo mikil völd. Ég var í öðrum söfn­uði en þekkti þennan ákveðna söfnuð, bar mikla virð­ingu fyrir for­stöðu­mann­inum og leit upp til hans. En að leið­togi geti staðið fyrir framan hóp fólks og predikað orð Guðs, ver­andi með svona verknað á sam­visk­unni. Það var of mikið. Ég hef undir höndum bréf frá aðila sem sagði mér að fyrstu upp­lýs­ing­arnar um gjörðir hans hafi verið 36 ára gamlar, þá þegar var farið að vara við þessum ein­stak­lingi”.

Hún við­ur­kennir þó að þetta hafi verið ákaf­lega erf­iður tími, sér­stak­lega fyrir þolend­urnar. ,,Ég var ótrú­lega keik, sterk og hug­rökk á þessum tíma en eftir því sem tím­inn leið fann ég hvað þetta tók stóran toll af mér og hafði mikil áhrif. Tveimur árum eftir að dóm­ur­inn féll, árið 2016, var ég komin í kuln­unar­á­stand og er með 50% skerta starfs­getu í dag, auð­vitað ekki alfarið vegna þessa máls, en það hafði klár­lega áhrif.

Ég hafði gengið í gegnum margt en ég held að það hafi verið þessi bar­átta sem end­an­lega kláraði mig”.

„Ljót og heimsk“

Ásta segir stóran part af úrvinnsl­unni að að koma fram og segja sögu sína sem þol­andi og það sé mjög mis­jafnt hvenær fólk komi að þeim tíma­punkti. ,,Það sem allir þolendur eiga sam­merkt er skömin að hafa lent í þessu, hvort sem það er karl eða kona eða hán. Þol­and­inn ásakar sjálfan sig fyrir að hafa verið ein­hvern vegin klæddur, drukk­inn eða á vit­lausum stað og á vit­lausum tíma. Sjálfs­myndin brotnar og oft kemur mikil andúð á manni sjálfum”.

Hún seg­ist hafa upp­lifað þetta sjálf, fund­ist hún ljót og heimsk og ekki eiga neitt gott skilið

„Ég hugsa að það hafi tekið mig um 25 ár að vinna úr minni reynslu og er eflaust enn að. Ég hef enga þörf fyrir að kyn­greina minn ger­enda og búin að aðskilja brotið frá þeim aðila. Ég get hitt við­kom­andi án þess að upp­lifa kveikjur frá ofbeld­inu“.

Ásta var 10 ára gömul þegar hún lenti í sínu fyrsta áfalli. ,,Ef við­kom­andi hefi ekki verið á ung­lings­aldri, heldur ein­hver í valda­stöðu eins og prestur eða kenn­ari, ég veit ekki hvernig ég hefði tæklað það. Því dáist ég óskap­lega að þeim komum sem bæði eru að stiga fram í dag, kon­unum mínum árið 2010 svo og í bisk­ups­mál­inu, ég dáist að hug­rekki þeirra og styrk, að þora gegn svona valda­miklum mönnum.

Það fylgja því mikil völd og tengsla­net að vera opin­ber per­sóna á Íslandi. Og í hvert skipti sem við­kom­andi kemur fram opin­ber­lega rífur það ofan af sári þol­anda og það fer að blæða, aftur og aftur”.

Enn langt í land

Ásta bætir við að þegar þol­andi sé kom­inn á veg í úrvinnsl­unni, þá komi að þeim tíma­punkti að hann sé búinn að losna við skömm­ina, vit­andi að að þetta hafi ekki verið á þeirra ábyrgð né þeim að kenna og þá komi bar­áttu­and­inn smám saman. ,,Og þá langar suma að takast á við ger­and­ann. Það er aftur á móti mjög mis­mun­andi hvað það tekur fólk langan tíma að ná þangað. Engir tveir þolendur fara á sama hátt í gegnum þetta ferli þótt afleið­ingar ofbeldis séu næstum und­an­tek­inga­laust þær sömu”.

Ásta segir að þótt skref hafi verið tekin í rétta átt sé enn langt í land. ,,Við búum við veik­burða rétt­ar­kerfi í þessum málum en bara það að fyrn­ing­ar­frestur í kyn­ferð­is­brota­málum gegnum börnum hafi verið afnum­inn er stórt skref. Við verðum að horfa á það sem er gott í dag en það sem er aftur á móti svo merki­legt með kyn­ferð­is­brot  er að það er eins og þau séu tekin út fyrir sviga, það er alltaf meira vafa­mál í kringum þau. Ef ein­hver er bar­inn eða stun­ingin niður í bæ er ekki talað um ,,mein­tan” ger­anda en þannig er það alltaf í kyn­ferð­is­brota­málum; „meintir” ger­endur og „meintir” þolendur. Þetta er alveg stór­merki­legt. Ég vil taka þetta orð, „meintur” út úr orða­bók”.

Ásta segir enn þann dag í dag mjög sárs­auka­full reynslu að ganga í gegnum kæru­ferli í rétt­ar­kerf­inu. Það taki gríð­ar­lega á og margir sem gangi í gegnum það lýsi því sem ann­ars konar ofbeldi. Fólk sé spurt um enda­laus smá­at­riði sem það muni ekki þar sem heil­inn eigi ein­fald­lega til að frjósa við slíkt áfall. „Svo kemur nið­ur­staðan og mál­inu þá kannski vísað frá því það eru kannski ekki neinar sann­anir, brotið firnt eða málið ekki talið lík­legt til sak­fell­ingar. Það er annað áfall. Það er er ekk­ert skrítið að ungt fólk sem hefur orðið fyrir nauðg­unum veigri sé fyrir að fara þessa leið. Ferlið er gríð­ar­lega erfitt”.

Sannleikurinn sigrar að lokum

Ásta segir hót­anir vera óbreyttar þótt þær hafi að sumu leyti breyst eftir að sam­fé­lags­miðlar komu fram. „Í máli trú­ar­leið­tog­ans vissi ég um ein­stak­ling sem svaf með bar­efli undir rúm­inu. Í dag er það dóm­stóll göt­unnar með sínu hatri og heift. Svo er það óttin við að vera dregin fyrir dóm­stóla, ótti við atvinnu­missi, fjár­hags­ör­yggi, líðan fjöl­skyldu og illt umtal. Það hefur ekk­ert breyst. En aftur á móti finnst mér fjöl­miðlar standa sig vel í dag”.

Hvaða ráð hefur Ásta að gefa eftir allar sína reynslu? „Við þolendur vil ég segja, haldið áfram, standið keik, ekki láta brjóta ykkur niður og fagnið því að fá kær­urnar. Farið með sann­leik­ann alla leið. Við þá sem finna sig knúna til að tjá sig opin­ber­lega, sér­stak­lega á sam­fé­lags­miðlum, segi ég: Ef þið þekkið ekki til máls­ins. Látið kyrrt liggja, ekki bæta á sárs­auka þolenda með því að tjá ykkur um sekt eða sak­leysi. Sann­leik­ur­inn sigrar alltaf að lokum,” segir Ásta Knúts­dóttir að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu