Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Bogi og Bryndís rukkuð um milljónir í meðlag af barnsmóður: „Við erum viðbúin næstu árásum“

„Fyrsta færslan var ákall eftir hjálp. Það er ekkert í kerfinu sem grípur fólk í okkar stöðu, hvergi á leiðinni er eitthvað sem stoppar af þetta óréttlæti. Alls staðar löbbuðum við á veggi og svörin sem við fengum yfirleitt á þá leið að svona eru jú bara lögin. Skiptir þá engu sú augljósa staðreynd að barnið hafði allt frá sambúðar­slitum verið í jafnri umgengni við móður og föður og öllum kostnaði skipt á milli beggja foreldra“.

Svo segir Bryndís Rán Birgis­dóttir í færslu á samfélags­miðlum en dómur er fallinn í máli þar sem barns­móðir Boga Hallgríms­sonar fór fram á greiðslu meðlag sjö ár aftur í tímann.

Mannlíf sagði fyrst frétt af málinu í apríl síðastliðin.

Beið í sjö ár og krafði þá um milljónir

Bryndís segir að þau hafi aldrei, og muni líklega aldrei fá að vita af hverju barns­móðirin lagði upp í þessa vegferð. Aldrei hafi verið hægt að sýna fram á að þau hafi ekki staðið við sínar skuld­bindingar, fyrir utan þá staðreynd að Bogi hafi ekki greitt meðlag síðan þau skildu í árslok 2013. „Vissulega er það satt en ekki af því að Bogi sveikst undan skyldum sínum, það var bara samið um annað fyrir­komulag. Barns­móðirin hafði á hvaða tíma­punkti sem er frá því að sambúða­slita­pappírar voru undir­ritaðir til að krefjast meðlags.

En hún beið í 7 ár og krafði okkur þá um milljónir“.

Mál þeirra hjóna er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi sem fór fyrir dómstóla. „Ég ætla ekki að staðhæfa að aldrei áður hafi lögheimilis­foreldri farið þessa leið að rukka inn meðlag, líklega er fullt af fólki þarna úti sem hefur lent í svipaðri stöðu og þá annaðhvort greitt þegjandi og hljóða­laust eða orðið gjald­þrota. Ofbeldi lögheimilis­foreldris er löngu orðið þekkt í okkar samfélagi og birtingar­myndin oftast tálmun og/eða fjárkúgun. Á meðan þessar glufur eru í kerfinu þá mun alltaf vera til fólk sem notfærir sér það sem er ekkert annað að misnotkun á lögunum. Réttast væri að þessi misnotkun væri refsiverð en í staðinn samþykkir kerfið það”.

Aðeins lögfræðingarnir græddu

Bryndís spyr hvor ekki sé löngu orðið tímabært að stöðva þessa tegund af ofbeldi.

„Málinu okkar lauk á þann veg að við vorum dæmd til að greiða henni meðlag 4 ár aftur í tímann eða aftur til ársins 2016. Þegar hér var komið við sögu vorum við búin að greiða henni mánaðarlegt meðlag í rúm tvö ár og því stóð eftir tæplega 2 ár sem voru til greiðlsu. Greiðsla meðslags samtals kr.571.758 plús dráttar­vextir og því heildar­upphæð meðlags 884.975. Við vorum auðvitað krafin um 3 milljónir svo vissulega var þetta mikill léttir. Það má ekki gleyma að eftir stendur lögfræði­kostnaður upp á hundruði þúsunda sem hvor um sig greiðir. Hér græddu lögfræðingar, engin annar”.

Bryndís segir að í hinum fullkomna heimi hefði málið verið látið niður falla, enda galið í alla staði. „En við vissum áður en út í þetta var farið að það væri borin von, enda lögin ekki með okkur. Þessir peningar eiga vissulega að fara til barnsins en við munum líklega aldrei vita hvort þeir einhvern tímann rötuðu þangað”.

Hún bendir ennfremur á að sambúða­slitapappír hjá sýslu­manni sé ekki samningur eins og hann kallast heldur ekkert annað en ávísun sem gildir í fjögur ár hið minnsta. Ávísun sem lögheimilis­foreldri hefur í höndunum og getur notað til hótana og fjár­kúgunar.

Var þetta þess virði?

„Daginn eftir að dómur féll fengum við bréf frá sýslu­manni þar sem okkur er tilkynnt að kröfunni hennar um tvöfalt meðlag og tvöfalt meðlag ár aftur í tímann var hafnað”.

Bryndís spyr hvort þetta hafi allt verið þess virði? Allur skaðinn sem þetta hefur valdið til langstíma, sálarlíf allra sem búið er að setja á útsölu fyrir einhverjar krónur?

„Við erum sátt með þá lendingu sem málið okkar fékk og göngum sátt frá borði. Atlaga var gerð að heimili okkar og fjölskyldu­lífi. Við tókum ákvörðun að samþykkja ekki þetta ofbeldi og fara með þetta fyrir dómstóla. Við stöndum upprétt og sterkari sem aldrei fyrr. Við erum viðbúin næstu árásum eins og við höfum verið síðasta árið”.

Takk fyrir stuðninginn

Bryndísi þykir miður að í dómnum stendur að barnið hafi verið í jafnri umgengni til ársloka 2019 en rétt er að barnið var í jafnri umgengni til ársloka 2020. Þessu fengum við ekki breytt”.

„Í leiðinni langar mig að þakka öllum þeim fjölda sem létu sig málið varða. Þetta mál nefninlega snertir ekki bara okkur, heldur ótal aðra sem lenda í ósann­gjörnum meðlags­innheimtum. Við erum ekki þau fyrstu og ekki þau síðustu sem berjumst með kerfið á móti okkur.

Takk fyrir allan ykkar stuðning, fallegu skila­boðin, símtölin og heim­sóknirnar. Þetta skipti okkur allt miklu máli“.

Með færslunni fylgir dómurinn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni