Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Guðný læknir segist misnotuð 9 ára af fyrrverandi þingmanni: „Nuddaði bringuna og klofið á mér“

Guðný læknir segist misnotuð 9 ára af fyrrverandi þingmanni: „Nuddaði bringuna og klofið á mér“

Guðný Bjarna­dóttir læknir seg­ist hafa verið ítrekað mist­notuð kyn­ferð­is­lega þegar hún var aðeins 9 ára gömul. Ger­and­inn hafi verið Kristinn E. Andr­és­son, fyrr­ver­andi þing­maður og rit­stjóri Tímarits Máls og menn­ingar.

Guðný greinir frá þessu í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu þar sem hún seg­ist vilja skila skömminni, nú sex­tíu árum eftir brotin. Brotin segir hún að hafi átt sér stað bæði á heim­ili Kristins sem og heima hjá henni þar sem þing­mað­ur­inn og rit­stjór­inn fyrr­ver­andi var vinur for­eldra Guðnýjar.

„Ég finn mig knúna til að segja frá, stað­reyndir sem hafa elt mig allt lífið þó að ég hafi sem betur fer ekki látið það eyði­leggja fyrir mér meira en nauð­syn­legt er þegar barn ber leynd­ar­mál sem ekki einu sinni mamma og pabbi mega vita um. Þegar ég var níu ára fékk ég boð frá Kristni og Þóru um að koma heim til þeirra að lesa Sálminn um blómið. Þegar ég var búin að koma mér fyrir í stóra sóf­anum í fínu stof­unni hjá Kristni og Þóru lét Þóra sig hverfa fram en Kristinn varð eftir í stof­unni. Áður en ég vissi af færði hann sig að mér, tók bók­ina af mér og lét mig standa upp þétt að sér. Hann þukl­aði mig alla og rak tung­una upp í munn­inn á mér. Þetta ætl­aði engan enda að taka. Hann hélt áfram drykk­langa stund, stundi þungan, tal­aði um hve fal­leg augu ég væri með og nudd­aði bring­una og klofið á mér,“ segir Guðný og heldur áfram:

„Þegar hann loks sleppti mér fór ég fram þar sem ég sá að Þóra var að skipta á rúmum og ég sagð­ist þurfa að fara heim. Þá kom ekk­ert annað til greina en að Kristinn æki mér heim. Á leið­inni stöðv­aði Kristinn bíl­inn á Soga­veg­inum, and­aði þungt, ótt og títt og spurði hvort ég vildi koma með sér upp í Heiðmörk.“

Kristinn var þing­maður og rit­stjóri.

Þegar heim var komið sagði Guðný for­eldrum sínum ekki frá þessu. Hún lýsir því að til þess hafi hún ein­fald­lega skamm­ast sín of mikið og verið sem lömuð. „Nokkrum mán­uðum síðar gekk ég beint í flasið á Kristni á mínu eigin heim­ili þar sem ég taldi mig óhulta. Ég upp­lifði mikla skelf­ingu um leið og hann greip mig og við­hafði sömu hegðun og heima hjá honum eins og áður er lýst. Þegar hann var búinn að fá nóg fór hann og skildi eftir bók sem hann ætl­aði að gefa okkur, segir Guðný sem nú loks­ins, sex­tíu árum eftir mis­notk­un­ina, þorir að skila skömminni:

„Ég þagði yfir þessu og skamm­að­ist mín í ára­tugi. Skamm­að­ist mín fyrir minn­ingu sem ég bað ekki um og gat ekk­ert að gert. Ég sagði maka mínum frá þessu en aldrei for­eldrum mínum. Ég ákvað að þau fengju að deyja án þess að heyra þetta. Sjálf vona ég að mér tak­ist nú að skila skömminni frá mér, nú loks­ins þegar ég kem mér að því að skrifa um þessa lífs­reynslu, sem ég hefði svo sann­ar­lega viljað vera án þegar ég var níu ára gömul, nú sex­tíu árum síðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ