Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Þessar voru mest lesnar á árinu 2021 – Andlát, kynferðisbrot, Gylfi Þór og Eiður Smári

Mannlíf óskar öllum gleðilegrar hátíðar. Ritstjórn Mannlífs þakkar lesendum sínum góða samleið og stór­aukinn lestur á árinu.

Fjölmargar fréttir Mannlífs vöktu mikla athygli og var miðillinn leiðandi í stórum frétta­málum á árinu. Það eru síðan lesendur sem segja hug sinn og þessar fréttir eru þær sem fengu mestan lestur á árinu sem er að líða:

1. Stefán Karlsson er látinn: Minning um leiðtoga og yndislega manneskju lifir

106.300 lesendur. 

Stefán Karlsson lést langt fyrir aldur fram. Hann var framkvæmda­stjóri Vals í tvö ár og stjórnar­maður í hand­knattleiks­deild félagsins.

Blessuð sé minn­ing Stefáns.

Stefáni var lýst sem afar vönduðum manni, góðhjörtuðum og ráðagóðum. Stefán var einnig mikill leiðtogi og tók hann á móti öllum glaðbeittur á svip og bros hans leið fólki seint úr minni.

Fjölmargir minntust Stefáns á samfélags­miðlum.

„Minning um frábæran leiðtoga og yndis­legan félaga, einn okkar allra bestu, mun lifa meðal okkar í Vals­samfélaginu.“

„Þetta eru skelfilegar fréttir. Stefán var einstak­lega góður og vandaður maður. Hans verður sárt saknað en minningin um góðan dreng lifa. Innilegustu samúðar­kveðjur til fjöl­skyldu hans og vina.“

2. Fjöl­skylda og lögmenn umvefja Gylfa

103.700 lesendur.

Mannlíf greindi fyrst allra miðla frá handtöku lands­liðs­mannsins Gylfa Þór Sigurðs­sonar og meintu kynferðis­broti hans gegn ólögráða stúlku.

Frægt var þegar Alex­andra og Gylfi gengu í hjóna­band á Ítalíu.

Mannlíf greindi frá því að eiginkona Gylfa – Alexandra Helga Ívars­dóttir – væri komin til landsins. Á sama tíma var nánasta fjöl­skylda Gylfa komin til Englands, og Gylfi sagður vera kominn með hóp lögfræðinga til að verja sig.

Í samtali við Mannlíf bar tengda­faðir Gylfa þær sögu­sagnir að þau stæðu í hjóna­skilnaði vegna málsins til baka.

3. Selma Björns hitti drauma­prinsinn í Álfta­neslaug: Faðirinn fór hjá sér – „Hápunktur vikunnar“

94.900 lesendur.

Selma Björns­dóttir er ein okkar besta söngkona, frábær leikkona og hefur raðað sér á bekk með okkar bestu leik­stjórum. Hún sagði frá því að hún hefði skellt sér í Álfta­neslaug.

Selma Björns­dóttir.

Selma fór í heitan pott og lá þar í mestu makindum þegar drauma­prinsinn ákvað að láta til skarar skríða. Við gefum Selmu orðið:

„Ég lá í mestu makindum í heita pottinum í Álfta­neslauginni þegar sirka 3 ára prins fikraði sig hægt í áttina að mér, settist við hlið mér, lyfti hand­leggnum á mér upp á yfirborð vatnsins og kyssti mig létt á handar­bakið.“ Selma segir að strákurinn hafi síðan fikrað sig aftur til föður síns. Aðspurð hvernig pabbi drengsins hafi tekið uppátæki sonar síns, svarar Selma: „Hann varð bara vandræða­legur hahahahaha. Þetta er greini­lega ekki eitthvað sem sonur hans gerir reglulega. […] Klárlega hápunktur vikunnar hjá mér,“ bætir Selma við en þessi jákvæða og skemmtilega frásögn vakti mikla lukku á Facebook-síðu hennar.

Þá benti Selma á að það væru litlu hlutirnir sem skiptu máli og útskýringin er einföld. „Hann fékk mig til að brosa hringinn þessi litli drauma­prins.“

4. Jóni Baldvin greitt þungt högg: Varð fyrir miklu áfalli í gær

89.800 lesendur. 

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrr­verandi ráðherra, sem lagt hefur upp í hvern leiðangurinn á fætur öðrum til að reyna verjast konum sem hafa ásakað hann um alvarlegt, kynferðislegt ofbeldi, varð fyrir áfalli er Lands­réttur úrskurðaði að Héraðs­dómur Reykja­víkur skyldi taka fyrir að nýju frávísunar­kröfu Jóns Baldvins.

Jón Baldvin Hanni­bals­son

Jón Baldvin hafði vonast til spænsk löggjöf bjargaði honum frá ákæru en Carmen Jóhanns­dóttir hafði ásakað Jón Baldvin um kynferðis­brot og sagði hann hafa káfað á henni í vitna viðurvist á heimili Jóns og Bryndísar á Spáni. Carmen er æsku­vinkona Aldísar, dóttur Jóns.

Héraðs­dómur féllst fyrst á kröfu Jóns Baldvins um að vísa kærunni frá dómi á þeim forsendum að dómstólar hérlendis hefðu ekki lögsögu í málinu.

5. Eiður sagður vera undir áhrifum í beinni útsendingu – KSÍ og Síminn á flótta – Sjáðu atvikið

82.100 lesendur. 

Guðni Bergsson, þáverandi formaður Knattspyrnu­sambands Íslands, KSÍ, ræddi við Eið Smára Guðjohnsen, aðstoðar­þjálfara karla­lands­liðsins í knatt­spyrnu, vegna sögusagna um drykkju í aðdrag­anda sjónvarps­útsendingu. Umtalað er að Eiður hafi verið undir áhrifum í útsendingu sem knattspyrnu­sérfræðingur í þættinum Vaktin í Sjónvarpi Símans. Myndbrot úr þættinum umdeilda má finna hér neðst.

Eiður Smári Guðjohn­sen

Talsverð umræða var um atvikið á samfélags­miðlum þar sem margir furðuðu sig á því að ekkert hefði verið fjallað um það í fjöl­miðlum. Þar til Mannlíf sagði frá.

Eins og frægt er, var Eiður Smári á endanum sendur í leyfi vegna áfengis­vandamála sinna og á endanum rekinn af KSÍ úr starfi sínu sem aðstoðar­þjálfari.

6. Kara Kristel sýnir brjóstið og ávarpar þjóðina: „Kemur okkur öllum við“

78.900 lesendur.

„Þetta er eitthvað sem kemur okkur öllum við,“ sagði áhrifavaldurinn Kara Kristel í samtali við Mannlíf. Hún er ein af þeim sem voru ranglega greindar í legháls­skimun Krabbameins­félags Íslands.

Kara Kristel áhrifa­valdur.

Á tveimur árum fór Kara tvisvar. Hana grunaði að eitthvað amaði að, en það var ekki fyrr en ári síðar að símtalið kom. Þá hafði sýni Köru verið endur­skoðað eftir að ung kona lést úr legháls­krabba­meini. Kara opnaði sig um reynslu sína og sagði:

„Seinasta sumar lést ung kona vegna þeirra mistaka og í kjölfarið hófst rannsóknar­ferli. Ég var kölluð inn strax og í forgangsröð vegna aðstæðna. Niður­stöður komu hratt og voru ekki beint fallegar og lofuðu alls ekki góðu.

Þetta eru ekki skemmti­leg­ustu frétt­ir heims­ins. Ég var ekki leið eða reið, þetta kom mér eig­in­lega ekki á óvart vegna þess að ég þekki lík­amann minn mjög vel og ég fann að það var eitt­hvað að.“

7.

Andrea: „Ég sný mér við og er þá ekki Reður­guðinn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt“

74.500 lesendur.

Mikið hefur verið bent á að þolendur komi ekki fram undir nafni í tengslum við hina svo kölluðu Meetoo-byltingu og virðist fólk alls ekki skilja af hverju þolendur eða meintir þolendur kjósi nafnleynd. Á þessu er engin breyting ef horft er til fjölda mála sem upp hafa komið í tengslum við þekktan tónlistar­mann, Ingó Veðurguð.Andrea Aldan Hauks­dóttir steig fram undir nafni og hafði hún greini­lega fengið nóg af þeirri umræðu að meint fórnar­lömb Ingós komi ekki fram undir nafni. Hún sagði frá sínum kynnum af Ingó þegar hún var 19 ára gömul. Við skulum gefa Andreu orðið:

Andrea Aldan Hauks­dóttir.

„… kom mér á ó­vart er hversu ljóta hluti er hægt að setja fram um fólk án þess að borin sé á­byrgð á því. Það kemur mér líka á óvart hvað er hægt að ganga langt og taka ekki ábyrgð á því hvernig þú hefur hagað þér. Ef það er erfitt að þetta sé nafnlaust þá skal ég koma fram undir nafni.Ég var 19 ára og var að vinna á Oliver þar sem hann tróð upp vikulega. Það var búninga­staffapartí og ég var í skólastelpu­búning. Ég stend við barinn og finn að það er einhver að taka upp pilsið mitt. Svo aftur. Ég sný mér við og er þá ekki Reður­guðinn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt.“7.

Litli drengurinn jarð­sunginn á föstudag

72.200 lesendur. 

Mannlíf greindi frá útför ungs drengs sem fannst látinn í heimahúsi í Garðabæ í september síðastliðnum. Maximilian Helgi Ívarsson var aðeins ellefu ára gamall þegar hann lést með sviplegum hætti.

Samfélagið var í sárum vegna andláts Maximillians og var málið mjög umtalað á meðal barna í Garðabæ. Ekkert hefur verið gefið upp um málið annað en að ekki sé grunur uppi um neitt saknæmt.

8. Nafn mannsins sem lést í Rauða­gerði: Var íslenskur, elskaður, átti konu og barn og von á öðru

71.300 lesendur. 

Aftaka var framin við Rauða­gerði um miðnætti á laugardag. Ungur maður á fertugsaldri var tekinn af lífi á hrotta­legan og kaldrifjaðan hátt. Hinn myrti var Íslend­ingur, Armando Beqiri, sem á ættir að rekja til Albaníu. Hann settist hér að annan jóladag árið 2014, lærði tungu­málið, kynntist konu og giftist, eignaðist barn og átti von á öðru kríli í fangið örfáum mánuðum síðar, eigin­maður, faðir og fyrirtækja­eigandi í Gerðunum. Unnusta hans er nú gengin 24 vikur.

Blessuð sé minn­ing Armandos.

Armando virtist hafa komið ár sinni vel fyrir borð og hann kunni íslensku. Stoltur kaus hann svo í fyrsta sinn á lífs­leiðinni er hann stakk kjörseðli í kassann í þing­kosningum hér á landi. Armando var líka harður stuðnings­maður íslenska lands­liðsins.

Skömmu fyrir miðnætti lagði Armando bíl sínum inn í bílskúr og á sömu stundu og hann var að ganga að útidyrunum er talið að bíl hafi verið ekið framhjá húsinu og þaðan hafi hverju byssu­skotinu á fætur öðru verið hleypt af. Samkvæmt heimildum Mannlífs hæfðu kúlurnar Armando í bak, háls og höfuð en aðrar misstu marks. Á vettvangi fannst Armando liggjandi í blóði sínu og var reynd endur­lífgun og hann fluttur á spítala.

Armando komst aldrei til meðvitundar og var hann úrskurðaður látinn á Land­spítalanum stuttu eftir komu þangað.

9.  Slúðrað um Gylfa á samfélags­miðlum

70.600 lesendur. 

Fyrst allra fjölmiðla heims greindi Mannlíf frá ásökunum á hendur fótbolta­kappanum og lands­liðs­manninum Gylfa Þór Sigurðs­syni. Sögur flökkuðu um samfélags­miðla og því haldið fram að hann hafi verið að senda ungri stúlku eða stúlkum ósiðsamleg skilaboð.

Síðar kom í ljós að Gylfi Þór var hand­tekinn af bresku lögreglunni grunaður um brot gegn ólögráða stúlku. Rannsókn málsins stendur enn yfir og hefur lögreglan gefið sér frest fram í janúar til að klára hana.

Það kom eins og blaut tuska framan í íslensku þjóðina að Gylfi hefði verið hand­tekinn. Þetta eru einhverjar óvæntustu og verstu fréttir sem landsmenn hafa fengið í langan tíma.

Gull­drengurinn Gylfi er um þessar mundir fallinn af stalli sem konungur íslenskra knattspyrnu­manna, en máli hans er þó alls ekki lokið. Hann liggur undir grun um hræðilegt athæfi en hefur ekki verið dæmdur. Flestir vona að Gylfi Sigurðsson sé saklaus af því sem á hann er borið.

10. Þorlákur Ingi látinn nýorðinn 21 árs: „Einstakur og tilfinninga­ríkur ungur maður“

66.200 lesendur.

Margir minntust Þorláks Inga Sigmars­sonar. Hann lést langt fyrir aldur fram en hann var 21 árs er hann lést. Þorlákur Ingi var fyrirliði fótbolta­liðsins Ísbjörninn áður en hann lést. Íþróttin átti hug hans og hjarta. Hann barðist þó við andleg veikindi og talaði ávallt opinskátt um þau.Þorlákur var tilfinninga­ríkur og hlýr og því reyndist það vel þegar hann tók til starfa á leik­skólanum Arnar­bergi:„Eftir grunn­skólagöngu lauk Þorlákur nokkrum önnum í Flensborg en fór síðan á vinnu­markaðinn og sinnti þar ýmsum störfum. Þar af á leik­skólanum Arnar­bergi þar sem hæfi­leikar hans komu skýrt fram enda með eindæmum einlægur og hlýr einstaklingur og átti starfið því vel við hann. Þorlákur var vinmargur og laðaði að sér fólk úr öllum áttum. Hann átti auðvelt með að eignast vini og hafði ríka samkennd með öðrum. Þorlákur var einstakur og tilfinninga­ríkur ungur maður, sem talaði opinskátt um tilfinningar sínar og baráttu við andleg veikindi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra