Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Völvan: Vanhæf geðdeild, CBD olía og sveppir – sálfræðiþjónusta verður niðurgreidd fyrir lok árs

Völvan: Vanhæf geðdeild, CBD olía og sveppir – sálfræðiþjónusta verður niðurgreidd fyrir lok árs
Völvan 2022

Völvu­blað Mannlífs kom út fyrir ára­mótin. Til þess að lesa spá völv­unnar fyrir kom­andi ár í heild sinni er hægt að nálg­ast blaðið hér.

Heilbrigðismál

Landspítalinn

„Frelsi frá sótt­varna­reglum heldur áfram að stranda á spít­al­anum að ein­hverju marki. Við höldum áfram að finna fyrir því á árinu hvað spít­al­inn þolir lítið álag vegna langvar­andi fjársveltis. Þetta er einn eitt dæmið um hluti sem við höfum áttað okkur á, eða fengið slengt framan í okkur, og þurfum nú að lifa með og ákveða hvað við viljum gera í fram­hald­inu. Í kjöl­far þessa verður hávær­ari umræða um breyt­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu – hverju við erum til­búin til að eyða í gott kerfi sem þolir meira. Þessi umræða mun fela í sér nokkur átök og and­stæða póla. Þeir sem því eru hlynntir munu til að mynda tala fyrir einka­væð­ingu í auknum mæli. Mér sýn­ist meiri­hluti þjóð­ar­innar ekki vilja aukna einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu. Við eigum eftir að sjá meiri fólks­flótta frá Land­spít­al­anum.

Í fram­hald­inu mun rík­is­stjórnin sjá að ástandið er ekki sjálf­bært og mun engan annan kost eiga en að fara í sam­tal við spít­al­ann um hvað vanti og ráð­ast í bráða­birgða­að­gerðir til að laga ástandið, svo harðar sam­komu­tak­mark­anir verði ekki við­var­andi um ókom­inn tíma.

Seinni part árs verða fleiri skurð­að­gerðir fram­kvæmdar á einka­stofum úti í bæ og þannig komið til móts við hús­næð­is­vand­ann í bili. Ráðist verður í aðgerðir til fá fleiri svæf­inga­lækna og gjör­gæslu­hjúkr­un­ar­fræð­inga á spít­al­ann.

Eins og áður sagði verður Covid-19 þó ekki eins stór ógn á næsta ári eins og hún var á því síð­asta, svo hlut­irnir munu fara betur en á horfð­ist.“

Geðheilsa þjóðarinnar

„Ég hef miklar áhyggjur af geð­heilsu þjóð­ar­innar. Henni fer hrak­andi og áfram fer til­fellum kuln­unar fjölg­andi. Við erum líka að verða dapr­ari, þung­lynd­ari og kvíðn­ari. Inntaka geð­lyfja er að aukast. Enda skyldi engan undra, í kerfi sem nið­ur­greiðir ekki sál­fræði­þjón­ustu.

Árið 2022 mun hefj­ast upp­gjör í geð­heil­brigð­is­málum á Íslandi. Geðdeild verður end­an­lega van­hæf í að takast á við biðlista og æ fleiri fá ekki þá aðstoð sem þeir þurfa.

Í kjöl­farið verður umræða um hið and­lega, trú og kær­leika meira áber­andi. Margir munu opna á ann­ars konar aðferðir til þess að takast á við van­líðan, utan heil­brigð­is­kerf­is­ins. Þarna sýn­ist mér að tabú umræða varð­andi ein­hvers konar trú, í hvaða mynd sem hún er, muni opn­ast meira og fæða af sér eitt­hvað fal­legt og stórt í sam­fé­lag­inu. Fólk fer að finna ein­hverja aukna þörf fyrir trú og umræða um ein­hvers konar æðri mátt, sál­ina og slíkt verður fyr­ir­ferð­ar­meiri og heyr­ist á hinum ólík­leg­ustu stöðum.

Hvað geð­sjúk­dóma varðar sé ég aukna umræðu og fræðslu um geð­klofa á árinu og hvernig hægt sé að lifa með sjúk­dómnum. Þetta er einn af þeim geð­sjúk­dómum sem mætt hafa hvað mestum for­dómum.

Ég held að það verði í kjöl­far opn­ari umræðu um geð­sjúk­dóma sem fíkni­sjúk­dómar verði teknir meira fyrir og að end­ingu verði neyslu­skammtar afglæpa­væddir, eftir mas og þras í þing­inu.

Annars konar umræða um tabú mál­efni tengd geð­heilsu og spi­ritúal­isma mun fjalla um ýmsar „alt­ernative“ lækn­ing­ar­að­ferðir, jurtir og fleira. Meira verður rætt um smá­skammta af sveppum til and­legra lækn­inga, CBD-olíu og fleira. Fólk vill prófa nýjar leiðir og þótt það verði tek­ist á um þessi mál og hreint ekki allir sam­mála, þá verður umræðan sjálf meira áber­andi en áður.

Að lokum mynd­ast enn meiri þrýst­ingur á að sál­fræði­þjón­usta í land­inu verði nið­ur­greidd og viti menn; það næst fyrir árið 2023.

Viðhorf sam­fé­lags­ins til vinnu er að breyt­ast hægt og rólega og fleiri sjá að fólk þarf að sinna and­legri heilsu betur, þjóð­arsál­inni til hags­bóta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð