Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ópíóíðafaraldur sannarlega hafinn á Íslandi – Aldrei fleiri látist úr ofskammti lyfja

Ópíóíðafaraldur sannarlega hafinn á Íslandi – Aldrei fleiri látist úr ofskammti lyfja

Fyrr á árinu fjall­aði Mannlíf um mögu­legan ópíóíða far­aldur á Íslandi. Svo virð­ist sem grun­ur­inn hafi reynst réttur en Rúv sagði í gær frá því að aldrei hafi fleiri lát­ist vegna lyfja­eitr­unar.

„Svakalegasti morðinginn á götunni í dag“

Í mars ræddi Mannlíf við Kristján Hafberg Ein­ars­son, sem er að eigin sögn amfetamíns sprautu­fík­ill en hann var hættur að nota fíkni­efni og að koma undir sig fót­unum. Hann hafði sam­band við Mannlíf því hann hafði áhyggjur af því að fent­anyl-far­aldur væri haf­inn á Íslandi. Sagðist hann vita um þrjá unga menn sem allir lét­ust fyrir síð­ustu ára­mót en þeir voru allir að nota fent­anyl. „Ég er nú ekki sjálfur mor­fín fík­ill en fent­anyl er svaka­leg­asti morð­ing­inn á göt­unni í dag. Ég þekki nú bara brot af mor­fín­fíklunum en ég kynnt­ist þessum strákum á Gisti­skýl­inu og á áfanga­heim­ilum,“ sagði Kristján í við­tali við Mannlíf. Fentanyl er 100 sinnum sterkara verkja­lyf en mor­fín.

Kristján sagði sam­skipta­for­ritið Telegram mikið notað til að selja fíkni­efni hér á landi og að þar megi sjá gríð­ar­legt magn af ópíóíða­lyfjum til sölu. Sagði hann þau koma aðal­lega frá Spáni að hann hélt en velti fyrir sér hvort læknar á Íslandi væru að skrifa þetta út í meira mæli en áður.

Sjá einnig: Fentanyl far­aldur á Íslandi segir sprautu­fík­ill: „Fentanyl er svaka­leg­asti morð­ing­inn á göt­unni“

Norðurlandamet í kaupum á ópíóíðum

Í annarri frétt Mannlífs um málið í mars kom fram að vís­bend­ingar væru til staðar um að fent­anyl-far­aldur væri haf­inn á Íslandi. Þar kom aukreitis fram að hvergi á Norð­ur­lönd­unum sé verslað jafn mikið af ópíóð­íum en á Íslandi. Í ald­urs­hópnum 30-44 ára hafa lyfja­tengd and­lát auk­ist um 47% á milli 2011-2015 og 2016-2020. Sala á fent­anyli hafði lækkað umtals­vert frá árinu 2016 en 10% aukn­ing mátti sjá á milli 2020 og 2021 sem verður að telj­ast nokkuð skörp breyt­ing milli ára.

Sjá einnig: Vís­bend­ingar um nýjan fent­anyl-far­aldur – Lyfja­tengdum and­látum hefur fjölgað um 47% hjá 30-44 ára
Sjá einnig: Ópíóíða-óða þjóð – Er fent­anyl-far­aldur haf­inn á Íslandi?

Nöturleg tölfræði

Og nú hefur grunur Mannlífs verið stað­festur, ópíóíða­far­aldur er haf­inn á Íslandi. Rík­is­út­varpið sagði frá því í gær að aldrei hafi fleiri lát­ist vegna lyfja­eitrana en á síð­asta ári sam­kvæmt nýbirtum tölum Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins. Þar kemur fram að 46 lyfja­tengd and­lát hafi orðið 2021, 24 á fyrri helm­ingi árs­ins og 22 á þeim síð­ari. Níu af þeim voru undir þrí­tugu. Algeng­ustu lyfin sem fund­ust í þeim látnu voru oxycontin og floga­veikis­lyfið prega­balin en einnig fannst fent­anyl og önnur ópíóíða­lyf.

Af þeim 46 sem lét­ust voru níu á aldr­inum 18-29 ára en flestir voru á aldr­inum 30-44 eða 17 manns. Þá voru 13 á aldr­inum 45-59 ára, fjórir 60-74 ára og þrír 75 ára eða eldri. Karl­arnir voru 28 en kon­urnar 18 tals­ins. Alls lét­ust 34 vegna lyfja­eitr­unar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en 12 á lands­byggð­inni.

Fram kemur hjá Rúv að árið 2017 hafi verið gerðar 163 krufn­ingar og þar hafi verið 37 eitr­anir. Í fyrra voru krufn­ing­arnar 173 tals­ins og eitr­an­irnar 58 tals­ins. Oxycontin fannst í 15 ein­stak­lingum og jafn margir voru með floga­veikis­lyfið Pregabil í sér. Fyrir fimm árum fannst það efni í sjö látnum ein­stak­lingum. Þá fund­ust einnig sterk verkja­lyf í þeim látnu í fyrra, lyf á borð við kódein, mor­fín, trama­dól, fentanýl, Búp­renor­fín, Ketó­bemídón og meta­dón. Af ólög­legum fíkni­efnum sem fund­ust í hinum látnu, eru amfetamín, sem er algeng­ast, metam­fetamín, MDMA, kókaín og THC, sem er virka efnið í kanna­bis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við