Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gordon Brown æfur yfir nýjum uppljóstrunum um Andrew

Prinsinn fyrr­ver­andi nýtti einka­þotu Epstein til þess að flytja inn stúlkur til Bret­lands.

Gordon Brown æfur yfir nýjum uppljóstrunum um Andrew
Gordon Brown For­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi vill láta rann­saka Andrew. Mynd: DOMINIC LIPINSKI / POOL / AFP

Nýjar og alvar­legar ásak­anir hafa komið fram á hendur Andrew Mountbatten Windsor, fyrr­ver­andi Breta­prins, um að hann hafi nýtt einka­þotu Jeffrey Epstein til að flytja konur frá ýmsum löndum til Bret­lands og komið þeim inn í Buckingham-höll án hefð­bund­inna örygg­is­ráð­staf­ana. Heim­ildir herma að dul­nefni hafi verið notuð til að dylja ferð­irnar.

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Gordon Brown, hefur lýst því yfir að einka­þota Epsteins, svokölluð „Lolita Express“, hafi lent í Bret­landi um 90 sinnum. Hann hefur kallað eftir því að Andrew verði yfir­heyrður af lög­reglu og að Metropolitan-lög­reglan taki fyrri rann­sókn sína til end­ur­skoð­unar. Brown sagði að konur víðs vegar að úr heim­inum hefðu verið fluttar til Bret­lands og lýsti mál­inu sem „lang­mesta hneykslið af öllum“.

Samkvæmt heim­ildum hafi Andrew komið konum inn í höll­ina í gegnum bak­dyr, án þess að þær væru skráðar hjá örygg­is­gæslu. Andrew hefur ítrekað neitað allri sök.

Dulnefni og hlýðni

Samkvæmt umfjöllun The Sun á Andrew að hafa beitt sér­stökum kóðum til að tryggja að komu kvenn­anna væri haldið leyndri. Heim­ildir blaðs­ins segja að hann hafi sent skila­boð á borð við:

„Frú Windsor mun koma innan skamms, vin­sam­leg­ast hleypið henni inn og fylgið henni upp.“

Einn heim­ild­ar­maður lýsir því að þetta hafi verið end­ur­tekið mynstur:

„Hann hringdi alltaf í vakt­skrif­stof­una og sagði nákvæm­lega það sama, „Frú Windsor mun koma innan skamms, vin­sam­leg­ast hleypið henni inn og fylgið henni upp“. Þetta var alltaf í gegnum einn af starfsinn­gang­inum sem eru úr aug­sýn.“

„Þetta var svo algengt að fólk rang­hvolfdi bara aug­unum og sagði „já herra“. Þetta stóð yfir í mörg ár. Líf­verðir kon­ungs­fjöl­skyld­unnar höt­uðu að vera settir á Andrew, hann var svo óþægi­legur og fyr­ir­lit­legur.“

Önnur heim­ild sagði að vegna stöðu Andrews í kon­ungs­fjöl­skyld­unni hefðu fáar upp­lýs­ingar verið skráðar um kon­urnar:

„Þetta var reglu­lega rætt meðal hirð­manna, en aldrei gert neitt til að stöðva það.“

Tölvupóstar úr Epstein-skjölunum

Tölvu­póstar sem birtir voru af banda­rískum stjórn­völdum sem hluti af Epstein-skjöl­unum virð­ast sýna Andrew bjóða Epstein og „mjög sætri“ rúm­enskri konu í kvöld­verð í Buckingham-höll í sept­em­ber 2010, tveimur árum eftir að Epstein var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn ólög­ráða ein­stak­lingi.

Í tölvu­pósti frá reikn­ingi sem bar heitið „The Duke“ stóð:
„Við gætum borðað kvöld­verð í Buckingham-höll og haft fullt næði.“

Epstein svar­aði: „Bættu einum við … rúm­ensk, mjög sæt.“

Lögreglan undir þrýstingi

Nýjustu ásak­an­irnar koma fram skömmu eftir að greint var frá því að Thames Valley-lög­reglan og sak­sókn­arar hefðu átt við­ræður vegna ásak­ana á hendur Andrew um mis­ferli í opin­beru starfi. Lög­reglan hefur áður sagt að hún sé að kanna full­yrð­ingar um að Andrew hafi deilt trún­að­ar­gögnum úr starfi sínu sem við­skipta­full­trúi Bret­lands með Epstein.

Gordon Brown hefur jafn­framt kallað eftir sér­stakri rann­sókn á man­sali Epsteins í gegnum breska flug­velli. Hann sagð­ist vera „ alger­lega sleg­inn“ yfir þeim upp­lýs­ingum sem fram komu um tugir flug­ferða sem not­aðar voru til að flytja konur.

Í grein í The New Statesman skrif­aði Brown:

„Það sem ég upp­götv­aði um mis­notkun kvenna af hálfu karl­kyns rán­dýra og þeirra sem gerðu þeim það kleift, og hlut­verk Bret­lands sem enn hefur ekki verið við­ur­kennt, skók mig inn að merg. Þetta kallar á ítar­lega lög­reglu­rann­sókn og er lang­mesta hneykslið af öllum.“

Brown sagði Epstein hafa montað sig af því í tölvu­póstum að hann gæti notað Stansted-flug­völl til að flytja konur til Bret­lands frá Lett­landi, Litháen og Rúss­landi. Hann bætti við:

„Ég hef verið upp­lýstur um að fyrri rann­sóknir tengdar fyrr­ver­andi prins­inum Andrew hafi ekki skoðað lyk­il­gögn um flug­ferðir með full­nægj­andi hætti. Ég hef beðið lög­reglu að taka þetta sér­stak­lega til skoð­unar. Stansted-upp­lýs­ing­arnar einar og sér krefj­ast þess að Andrew verði yfir­heyrður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta