Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hildur hrósar meirihlutanum

„Einhver skref eru stigin í þessa átt en ég hefði viljað sjá mun stærri skref“

Hildur hrósar meirihlutanum
Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi Vill verða borg­ar­stjóri í vor. Mynd: Víkingur

Í gær kynnti Reykja­vík­ur­borg hina svoköll­uðu Reykja­vík­ur­leið þegar kemur að leik­skóla­málum en borgin mun ekki rukka dval­ar­gjald fyrir börn sem eru 36 tíma eða minna í leik­skólum borg­ar­innar og hvatar verða settir til að stytta dval­ar­tíma barna á föstu­dögum.

Svipuð leið hefur verið farin í Kópavogi og hafa margir for­eldrar þar gagn­rýnt fyr­ir­komu­lagið en þeir for­eldrar sem ekki geta nýtt sér þetta munu þurfa að borga meira en þeir hafa gert á und­an­förnum árum, með ein­hverjum und­an­tekn­ingum.

Ósammála flokksfélaga

Ein af þeim sem hefur áhyggjur af þess­ari ákvörðun borg­ar­innar er Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna, en það vekur vissu­lega athygli í ljósi þess að bæj­ar­stjóri Kópavogs er úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og hefur ítrekað gortað sig yfir Kópa­vogs­leið­inni.

„Ég hef áhyggjur af svo­kall­aðri Reykja­vík­ur­leið í leik­skóla­málum. Ég tel ólík­legt að til­lög­urnar stór­bæti starfs­að­stæður í leik­skólum borg­ar­innar og ótt­ast að þær legg­ist þungt á vinn­andi for­eldra. Rík áhersla er lögð á að bjóða ódýr­ustu leik­skól­ana fyrir suma - í stað þess að stefna að bestu leik­skól­unum með öfl­ug­ustu þjón­ust­una fyrir allar fjöl­skyldur,“ skrifar Hildur á Facebook.

„Reykja­vík­ur­leiðin leiðir af sér bæði þjón­ustu­skerð­ingu fyrir for­eldra og auknar álögur fyrir vinn­andi fólk - og fyllir for­eldra sem full­nýta þjón­ustu leik­skól­anna óþarfa sam­visku­biti. Með gjald­skrár­breyt­ingum er reynt að stýra fjöl­skyldum í skertan vist­un­ar­tíma sem lík­legt er að legg­ist þyngra á vinn­andi mæður en vinn­andi feður. Þetta þarf að mæla í fram­hald­inu en öfl­ugt leik­skóla­kerfi er eitt mik­il­væg­asta jafn­réttistólið á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu. Fyr­ir­liggj­andi til­lögur gera jafn­framt ráð fyrir því að lok­un­ar­dögum leik­skóla fjölgi. Veru­leik­inn er sá að fjöl­skylda með tvö börn, eitt á leik­skóla­stigi og eitt á grunn­skóla­stigi, þarf nú að mæta hátt í 70 frí­dögum barna sinna - starfs­dögum, skrán­ing­ar­dögum, sum­ar­leyfum og lok­un­ar­dögum. For­eldrar á almennum vinnu­mark­aði eiga hins vegar aðeins um 24 til 30 frí­daga árlega. Það sér hver maður hve snú­inn þessi veru­leiki getur reynst vinn­andi for­eldrum,“ heldur Hildur áfram.

Segist tilbúin að þjónusta Reykvíkinga

„Ítrekað er fjallað um lækk­andi fæð­ing­ar­tíð­ini hér­lendis. Börnum hefur ekki fjölgað svo neinu nemur í Reykja­vík frá árinu 1998 og börnum á leik­skóla­aldri hefur fækkað síð­ast­lið­inn ára­tug. Við þurfum að standa betur með barna­fólki - bjóða öfl­ugri þjón­ustu og fjöl­breytt­ari lausnir. Við sjálf­stæð­is­menn höfum lengi kallað eftir því að starfs­um­hverfi leik­skól­anna verði fært til sam­ræmis við grunn­skól­ann. Þessu hafa leik­skóla­kenn­arar kallað eftir enda fjöldi leik­skóla­kenn­ara sem hefur fært sig yfir í grunn­skól­ann með til­komu eins leyf­is­bréfs. Einhver skref eru stigin í þessa átt en ég hefði viljað sjá mun stærri skref. En hvaða þjón­ustu vilja fjöl­skyldur að loknu fæð­ing­ar­or­lofi? Þetta viljum við sjálf­stæð­is­menn kanna, enda erum við til þjón­ustu reiðu­búin fyrir fjöl­skyldur í Reykja­vík. Tillögu þess efnis að kanna hvaða lausnum fjöl­skyldur kalla eftir var hins vegar hafnað nýverið af meiri­hlut­anum,“ skrifar odd­vit­inn en athygli vekur að Hildur sér þó ákveðna jákvæða hluti í Reykja­vík­ur­leið­inni hjá meiri­hlut­anum.

„Á jákvæðu nót­unum má þó fagna inn­leið­ingu systkina­for­gangs og að aukin íslensku­kennsla standi nú starfs­fólki til boða,“ skrifar hún að lokum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum