Þeir Jóhann Óli Eiðsson og Davíð Þorláksson hafa báðir lagt inn réttindi til málflutnings og eru þau nú óvirk en greint er frá þessu í Lögbirtingablaðinu.
Jóhann Óli Eiðsson starfar í dag hjá Deloitte Legal en var árum saman blaðamaður hjá Viðskiptablaðinu, Fréttablaðinu og Vísi.
Davíð Þorláksson tók sömu ákvörðun og Jóhann en Davíð er í dag framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. en hann tók við starfinu fyrr á þessu ári. Davíð hafi gegnt starfi framkvæmdastjóra Betri samgangna ohf. frá janúar 2021.
Hann hefur áður starfað fyrir Háskóla Reykjavíkur, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð.































Athugasemdir