Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Almar segir fullyrðingar RÚV hafa verið „gallaðar“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Garðabæ svar­aði ekki full­yrð­ingum um hæl­is­leit­endur og fátækt í kosn­inga­prófi RÚV.

Almar Guðmundsson
Almar Guð­munds­son Bæj­ar­stjóri Garða­bæjar svarar Mannlífi Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Garðabær svar­aði ekki tveimur full­yrð­ingum í kosn­inga­prófi RÚV fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar, einn flokka. Um var að ræða full­yrð­ing­arnar: „Hæl­is­leit­endur á barns­aldri ættu að fá sömu þjón­ustu í sveit­ar­fé­lag­inu og aðrir íbúar“ og „Sveit­ar­fé­lagið þarf að auka fjár­hags­að­stoð við þá íbúa sem lifa undir fátækt­ar­mörkum.“

Almar Guð­munds­son, bæj­ar­stjóri Garða­bæjar og odd­viti flokks­ins í kom­andi kosn­ingum, segir ástæð­una vera þá að spurn­ing­arnar hafi verið gall­aðar.

„Báðar þessar spurn­ingar eru gall­aðar í fram­setn­ingu og því svöruðum við þeim ekki,“ segir Almar í svari við fyr­ir­spurn Mannlífs.

Varðandi full­yrð­ing­una um hæl­is­leit­endur bendir hann á að engir hæl­is­leit­endur búi í Garðabæ.

„Varðandi hæl­is­leit­endur, þá eru engir með þá stöðu í Garðabæ og því ekki ástæða til að svara spurn­ing­unni. Hæl­is­leit­endur búa í nokkrum sveit­ar­fé­lögum skv sér­stökum samn­ingum við yfir­völd. Enginn slíkur samn­ingur er við Garðabæ.“

Hann tekur þó fram að börn flótta­fólks eigi að njóta sömu þjón­ustu og önnur börn í bænum.

„Ef spurt hefði verið um börn flótta­manna, þá hefði svarið verið á þá leið að að sjálf­sögðu eiga þau að fá sömu þjón­ustu og önnur börn. Og að sjálf­sögðu er unnið eftir því í Garðabæ.“

Um full­yrð­ing­una varð­andi fjár­hags­að­stoð segir Almar að hug­takið „fátækt­ar­mörk“ sé ekki nægi­lega skýrt skil­greint.

„Varðandi hina spurn­ing­una þá er sjálf­sagt að svara varð­andi fjár­hags­að­stoð almennt, en það liggja engar opin­berar skil­grein­ingar á fátækra­mörkum fyrir eftir því sem við komumst næst.“

Hann segir Garðabæ leggja áherslu á að fjár­hags­að­stoð sé veitt innan skýrs ramma og að grunn­fjár­hæð aðstoðar sé nú hærri í Garðabæ en til dæmis í Reykja­vík.

„Garðabær fylgist vel með þróun þess­ara mála á lands­vísu og end­ur­skoðar við­mið reglu­lega.   Í dag er grunn­fjár­hæð fjár­hags­að­stoðar til ein­stak­linga og sam­búð­ar­fólks hærri í Garðabæ en til að mynda í Reykja­vík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“