Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Baráttan, fánarnir og kynslóðaskiptin

Anna Krist­jáns­dóttir horfir yfir far­inn veg

Baráttan, fánarnir og kynslóðaskiptin
Saga Önnu Krist­jáns­dóttur Lífs­hlaupið og talan sjö

Í til­efni þess að sjö ár eru liðin frá ákveðnum tíma­mótum lítur Anna Krist­jáns­dóttir til baka yfir langan og strangan bar­áttu­feril trans fólks á Íslandi. Í ein­lægum pistli rifjar hún upp hvernig það var að vera nán­ast ein á báti í sam­fé­lagi sem skildi ekki orð­ræð­una og hvernig trans­fán­inn átti eftir að breyta ásýnd gleði­göng­unnar til fram­búðar.

Fórnarlömb haturs

Anna veitti því sér­staka athygli í gleði­göng­unni á dög­unum hversu trans­fán­inn var mikið áber­andi, en staðan var önnur hér á árum áður. Það var ekki fyrr en árið 2013 sem trans­fán­inn sást í fyrsta sinn í göng­unni.

„Ég hafði pantað einn fána frá Bret­landi og svo heppi­lega vildi til að Hilmar Hildar Magn­ús­son hafði einnig pantað fána,“ segir Anna. Í göng­unni það árið gengu þær tvær, Anna og Anna Margrét Grét­ars­dóttir, með sinn hvorn trans­fán­ann í broddi fylk­ingar fyrir atriði Trans-Íslands. Nokkur ung­menni tóku að sér að vera fórn­ar­lömb hat­urs gegn trans fólki í atrið­inu, sem heppn­að­ist ljóm­andi vel, og var þetta lík­lega í fyrsta skipti sem trans fólk var með sér­at­riði í gleði­göng­unni.

Tíminn undir regnbogahlífinni

Anna minn­ist þess að það hafi ekki alltaf verið sjálf­gefið að trans fólk fengi að vera með sem það sjálft. Á síð­ustu öld og fram á þá næstu var hún auka­með­limur í Sam­tök­unum '78, sem á þeim tíma voru sam­tök homma og lesbía, „enda trans fólk ekki til að mati flestra,“ útskýrir hún.

Samtökin '78 sýndu þeim þó fullan stuðn­ing, meðal ann­ars við stofnun Trans-Íslands árið 2007. Fljót­lega eftir það breytt­ust Samtökin '78 í sam­tök hinsegin fólks og fékk Trans-Ísland þar með inni undir regn­boga­hlíf þeirra. Anna mætti sjálf á opið hús sam­tak­anna í fyrsta sinn árið 1984 og oft eftir 1987, áður en hún flúði land árið 1989. Hún sneri aftur sjö árum síðar sem breytt mann­eskja.

„The only trans in the village“

Fyrstu árin eftir heim­kom­una ein­kennd­ust af bar­áttu, ekki aðeins við for­dóma og fáfræði, heldur einnig við orð­færi sam­fé­lags­ins. Rang­nefnið „kyn­skipt­ingur“ var nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust notað í opin­berri umræðu. Anna stóð í ströngu stappi við fjöl­miðla og almenn­ing í nokkur ár uns orðið trans hlaut almenna við­ur­kenn­ingu með hjálp góðra vina.

Hún var iðu­lega spurð hvers vegna hún stofn­aði ekki félag trans fólks á Íslandi, en lengi vel voru þau ein­fald­lega of fá: „Mér leið oft eins og má líkja við í bresku sjón­varps­þátt­unum Little Britain: the only trans in the village.“

Alþjóðlegt starf og kynslóðaskipti

Árið 2005 tók Anna þátt í að stofna sam­tökin Trans­gender Europe og sat þar í stjórn fyrstu þrjú árin, en tengd­ist stjórn­inni sem skoð­un­ar­maður reikn­inga eftir það, eða í sam­tals sjö ár til árs­ins 2012. Þegar Trans-Ísland var loks­ins stofnað árið 2007 ákvað Anna að sitja hjá við fyrstu stjórn félags­ins vegna trún­að­ar­starfa sinna erlendis, og hefur haldið þeirri reglu síðan.

Hún dregur hlið­stæðu á milli þess og þegar hún bað um starfs­lok í vinn­unni sinni þegar vinnu­fé­lagar vildu breyta vakta­fyr­ir­komu­lagi gegn hennar vilja. Henni þótti betra að stíga til hliðar en að vera „fúl á móti“. Hún leggur áherslu á að félagið eigi svo sann­ar­lega rétt á sér en hún sé ekki sam­mála öllu og því sé best að láta unga fólkið um að reka það á þann hátt sem því þykir best.

Talan sjö sem rauður þráður

Eftir önnur sjö ár erlendis mætti Anna aftur á Skóla­vörðu­holtið, án þess að vera neitt annað en hún sjálf, og horfði á atriðin líða hjá án þess að taka beinan þátt. Hún veltir því fyrir sér hvort hún hefði átt að rölta af stað með Öld­unga­deild­inni, enda fari hún að nálg­ast þann aldur, hana vanti senni­lega sjö ár upp á það.

„Þessi sjö ár virð­ast alltaf sitja í mér,“ segir Anna að lokum um þennan dul­ar­fulla en sterka rauða þráð sem fylgir lífs­hlaupi hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu