Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Ingunn sögð hafa kýlt fórnarlamb sitt með hnúajárni

Fram kom að brotaþoli greindist síðar með blæðingu í framheila. Hann mun einnig hafa kjálka- og nefbrotnað og misst 15 tennur.

Ingunn Rut Sigurðardóttir
Ingunn Rut Sig­urð­ar­dóttir Mynd: Júdósamband Íslands

Brotaþoli í Reyk­holtsmálinu svokallaða gaf skýrslu fyrir dómi í dag og lýsti þar alvarlegu ofbeldi og frelsis­sviptingu sem hann kveðst hafa sætt í apríl 2024 og greindi DV frá vitnis­burði hans.

Maðurinn er maltneskur ríkis­borgari af palestínskum uppruna og hafði búið á Íslandi frá árinu 2010 eða 2011.

Brotaþoli hafði leigt húsnæði af Sigurði Gunnari Ásgeirs­syni í um fjögur ár þegar atvik málsins áttu sér stað. Hann sagði fjóra einstaklinga hafa komið inn á heimili hans að kvöldi 19. apríl 2024. Hann hafi strax verið beittur ofbeldi, bundinn á höndum og fótum og færður í sturtu þar sem honum hafi að mestu verið haldið alla helgina án matar og drykkjar.

Brotaþoli sagði Andra Má Mortensen Birgisson og Ingunni Rut Sigurðar­dóttur hafa beitt sig ofbeldi en Ingunn hefur játað sök í málinu. Hún hefur þó neitað að hafa tekið þátt í ofbeldi. Andri hafi meðal annars ógnað honum með hnífi en Ingunn hafi beitt hnúajárni. Þá lýsti hann því að Sigurður Gunnar hefði komið ítrekað á staðinn og sýnt ógnandi tilburði.

Fram kom að brotaþoli greindist síðar með blæðingu í framheila. Hann mun einnig hafa kjálka- og nefbrotnað og misst 15 tennur.

Brotaþoli sagði að áður en hann var fluttur til Reykja­víkur 22. apríl hefði honum verið gert að þvo af sér blóð. Ingunn hefði síðan farðað hann til að fela áverka.

„Því ég var blóðugur í andlitinu. Það var mikið blóð á höndunum á mér og andlitinu. Maður finnur þessa blóðlykt líka,“ sagði hann fyrir dómi.

Brotaþoli sagði sakborninga hafa ítrekað reynt að fá rafræn skilríki hans. Síðar hafi hann komist að því að um 17,6 milljónir króna hefðu verið milli­færðar af reikningum hans.

Frásögn mannsins var að hluta óljós og sagðist hann ekki muna öll atvik nákvæmlega. Hann lýsti þó miklu þakklæti í garð íslensks samfélags, lögreglu og þeirra sem komið hafa að málinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi