Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni

„Mark­miðið er að tryggja að fjár­munir borg­ar­innar nýt­ist sem best í þágu Reyk­vík­inga“

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni
Hildur Björns­dóttir Er borg­ar­stjóri Reykja­víkur Mynd: BHJ

Reykja­vík­ur­borg mun segja upp 86 starfs­mönnum vegna umfangs­mik­illa breyt­inga á stjórn­skipu­lagi vel­ferð­ar­sviðs og skóla- og frí­stunda­sviðs. Af þeim verður 32 starfs­mönnum boðið nýtt eða breytt starf en 54 munu ekki fá áfram­hald­andi starf hjá borg­inni.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar eftir að borg­ar­ráð sam­þykkti í dag til­lögu borg­ar­stjóra um breyt­ing­arnar. Ný skipu­rit svið­anna taka gildi 1. sept­em­ber og á inn­leið­ingu að vera að fullu lokið fyrir næstu ára­mót.

Áætlað er að breyt­ing­arnar skili um 900 millj­óna króna hag­ræð­ingu á árs­grund­velli þegar þær hafa að fullu komið til fram­kvæmda. Sparn­að­ur­inn verður meðal ann­ars til vegna fækk­unar stöðu­gilda, breyt­inga á stjórn­skipu­lagi og lægri hús­næð­is­kostn­aðar.

Með breyt­ing­unum verður stjórn­endum og milli­stjórn­endum fækkað en Reykja­vík­ur­borg segir áherslu lagða á að verja fram­línu­þjón­ustu. Stjórn­unar- og rekstr­ar­ein­ingum verður fækkað, verka­skipt­ing gerð skýr­ari og boð­leiðir styttar.

Verkefni mið­stöðva, frí­stunda­mið­stöðva, Keðj­unnar og Virkni­húss verða færð inn í nýtt skipu­lag. Í stað þess að þjón­usta bygg­ist að stórum hluta á land­fræði­legri hverfa­skipt­ingu verður hún í auknum mæli skipu­lögð eftir fag­greinum. Fag­þekk­ing á ein­stökum mála­flokkum verður þannig sam­einuð í stærri og sér­hæfð­ari teymum.

Frá ára­mótum verður barna- og fjöl­skyldu­þjón­usta ásamt skóla- og frí­stunda­þjón­ustu með aðsetur í Borg­ar­túni 12–14. Félags- og hús­næð­is­þjón­usta verður hins vegar stað­sett á Bílds­höfða 20. Mark­miðið er meðal ann­ars að börn og fjöl­skyldur geti sótt þjón­ustu á einn stað.

Þjónusta mið­stöðv­anna verður áfram veitt með óbreyttu fyr­ir­komu­lagi á meðan breyt­ing­arnar eru inn­leiddar, þó ekki lengur en til árs­loka.

Reykja­vík­ur­borg segir starf­semi og rekstur mið­stöðv­anna hafa dreg­ist saman um 60 pró­sent frá því að mál­efni fatl­aðs fólks voru færð frá mið­stöðv­unum til fag­skrif­stofu vel­ferð­ar­sviðs í árs­byrjun 2025.

Af þeim störfum sem hverfa eru 22 stöðu­gildi sem lögð verða niður þegar samn­ingur Reykja­vík­ur­borgar við ríkið um sam­ræmda mót­töku flótta­manna rennur út um næstu ára­mót.

„Með þessum breyt­ingum erum við að ein­falda skipu­lag borg­ar­innar, styrkja fag­legt starf og skapa betri umgjörð um þjón­ustu við íbúa. Mark­miðið er að tryggja að fjár­munir borg­ar­innar nýt­ist sem best í þágu Reyk­vík­inga. Á sama tíma stöndum við vörð um þjón­ust­una, sem verður áfram nálægt íbúum, en að baki henni verða öfl­ugri fagteymi, skýr­ari ábyrgð og styttri boð­leiðir. Rekstr­ar­staða borg­ar­innar kallar á hag­ræð­ingu og því miður verður ekki kom­ist hjá því að hún hafi áhrif á starfs­fólk. Við höfum lagt meg­in­á­herslu á að ein­falda stjórn­skipu­lagið og fækka stjórn­enda­stöðu­gildum í mið­lægri stjórn­sýslu,“ segir Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum