Helstu verkefni ríkisstjórnarinnar á Alþingi í vetur verða lögð fram á fundi með fjölmiðlum í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í fyrramálið. Fundurinn hefst klukkan 9.
Formenn stjórnarflokkanna þrír, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, munu þar gera grein fyrir þeim málum sem ríkisstjórnin hyggst setja í forgang á komandi þingvetri.
Eftir yfirferð ráðherranna gefst fréttamönnum kostur á að beina til þeirra spurningum.
Þetta verður í þriðja sinn sem leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna kynna með þessum hætti fyrirhugaða dagskrá ríkisstjórnarinnar á Alþingi.


























Athugasemdir