Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Blásið til sóknar í skólamálum eftir niðurstöður PISA

Hvernig komum við skóla­starfi í Reykja­vík í fremstu röð?

Blásið til sóknar í skólamálum eftir niðurstöður PISA
Björg Magn­ús­dóttir leiðir nýtt sam­tal um fram­tíð skóla­starfs í Reykja­vík Mynd: Aðsend

Borg­ar­ráð hefur sam­þykkt tvær til­lögur um aðgerðir sem miða að því að blása til sóknar í mennta­málum Reykja­vík­ur­borgar til að bæta náms­ár­angur í lesskiln­ingi, stærð­fræði og vís­inda­læsi í leik- og grunn­skólum.

Í nið­ur­stöðum PISA könn­un­ar­innar sem kynnt var 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn kemur fram  að frammi­staða íslenskra nem­enda er undir með­al­tali OECD-ríkja og síðri en frammi­staða jafn­aldra þeirra ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum á öllum þremur sviðum rann­sókn­ar­innar. Jafn­framt kemur fram að nem­endur í Reykja­vík eru yfir lands­með­al­tali. Nið­ur­stöð­urnar kalla á náið sam­tal við kenn­ara og annað starfs­fólk um fram­tíð skóla­mála í Reykja­vík.  

Mótun tillagna til að bæta námsárangur

Tillaga var sam­þykkt í borg­ar­ráði um að fela skóla- og frí­stunda­sviði að móta og leggja fram til­lögur að aðgerðum sem miða að því að bæta náms­ár­angur í lesskiln­ingi, stærð­fræði og vís­inda­læsi.  

Í umræðu sem fram fór við kynn­ingu PISA-nið­ur­staðna var lögð áhersla á að árangur í mennta­kerf­inu bygg­ist á mark­vissum og lang­tíma­mið­uðum aðgerðum. Þar voru sér­stak­lega nefnd snemmtæk íhlutun, öflug eft­ir­fylgni með náms­fram­vindu, styrk­ing íslensku sem ann­ars máls og fag­leg for­ysta innan skóla. Einnig var bent á mik­il­vægi þess að tryggja sam­ræmd vinnu­brögð og jafnan aðgang nem­enda að stuðn­ingi óháð skóla eða bak­grunni.  

Þessar áherslur eru í góðu sam­ræmi við Mennta­stefnu Reykja­vík­ur­borgar til 2030 þar sem lögð er áhersla á far­sæld barna, jöfn tæki­færi, inn­gild­andi skóla­starf og að ákvarð­anir byggi á þekk­ingu og mark­vissri eft­ir­fylgni. Þær eru því áfram mik­il­vægur grunnur við túlkun nýrra nið­ur­staðna og mótun aðgerða til fram­tíðar. Skóla- og frí­stunda­sviði er falið að leggja fram til­lögur að aðgerðum sem miða að því að bæta náms­ár­angur í lesskiln­ingi, stærð­fræði og vís­inda­læsi.

Til­lög­urnar skulu fyrst lagðar fram í skóla- og frí­stunda­ráði og leik­skóla- og dag­gæslu­ráði eigi síðar en fyrir lok nóv­em­ber næst­kom­andi og í fram­haldi fyrir borg­ar­ráð og til umræðu í borg­ar­stjórn.

Stórsókn í menntamálum Reykjavíkurborgar

Borg­ar­ráð sam­þykkti enn fremur til­lögu um að stofnað verði til sam­tals, við kenn­ara og annað starfs­fólk í leik- og grunn­skóla, um sókn Reykja­vík­ur­borgar í mennta­málum. Með sam­vinnu aðila verði leitað leiða til að efla leik- og grunn­skóla eins og kostur er og blása í kjöl­farið til stór­sóknar í mennta­málum. Með því að taka vel utan um þessa mála­flokka er ætl­unin að gera líf fjöl­skyldna í borg­inni betra. Á meðal verk­efna verði mál­stofa í Tjarn­ar­sal Ráð­húss­ins  á haustönn með kenn­urum og öðru starfs­fólki  í leik- og grunn­skóla þar sem yfir­skriftin  verður: Hvernig komum við skóla­starfi í Reykja­vík í fremstu röð? 

Í kjöl­far mál­stof­unnar verði unnin ein­föld sam­an­tekt og aðgerð­ar­á­ætlun sem lögð verði fyrir skóla- og frí­stunda­ráð og leik­skóla- og dag­gæslu­ráð sem jafn­framt yrði rædd í borg­ar­stjórn. Vinnuna leiði Björg Magn­ús­dóttir for­seti borg­ar­stjórnar ásamt Bjarna Fritzsyni for­manni skóla- og frí­stunda­ráðs og Sigrúni Ástu Ein­ars­dóttur for­manni leik­skóla- og dag­gæslu­ráðs, í sam­starfi við skóla- og frí­stunda­svið. 

Björg segir það mik­il­væg­ast á kjör­tíma­bil­inu að efla skóla­kerfið í Reykja­vík og koma því í fremstu röð.

„ Við viljum auka náms­ár­angur barn­anna okkar og að skól­arnir séu eft­ir­sóttir vinnu­staðir. Þetta er stórt mark­mið og til að ná því þurfum við að eiga virkt og gott sam­tal; kenn­arar og starfs­fólk í leik- og grunn­skólum borg­ar­innar, for­eldrar, Skóla- og frí­stunda­svið og kjörnir full­trúar. Við hlökkum til að blása til sóknar með því að bjóða öfl­ugan hóp vel­kom­inn til sam­tals í Ráð­hús­inu," segir Björg Magn­ús­dóttir, for­seti 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð