Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Búsetulottó í íþróttum

Kostn­aður sem sligar lág­marks­laun

Búsetulottó í íþróttum
Eru íþróttir að verða mun­aður fyrir útvalda? Mynd: Unsplash/María Budanova Pristavskaya

Kostnaður við íþróttir getur hlaupið á hundruðum þúsunda - Frístundastyrkir duga skammt

Æfinga­gjöld geta numið yfir hálfri milljón á ári fyrir tvö börn sem iðka knatt­spyrnu og körfu­bolta eftir að frí­stunda­styrkir sveit­ar­fé­lags hafa verið nýttir. Sam­an­burður ASÍ sýnir að aldur barna, val á íþrótta­fé­lagi og búseta geta skipt veru­legu máli fyrir útgjöld fjöl­skyldna. Ný sam­an­tekt á fim­leika­gjöldum sýnir að kostn­aður getur verið mik­ill þótt barn stundi aðeins eina íþrótt. 

Sé kostn­aður við íþrótta­iðkun settur í sam­hengi við tekjur má sjá að hann getur numið allt að 16% af lág­marks­launum sé for­eldri með tvö börn í íþróttum. Þar af er kostn­aður í með­al­sveit­ar­fé­lagi um 11% af lág­marks­launum. 

Ljóst er að heim­ili á lág­marks­launum eru í þröngri stöðu þegar kemur að því að senda börnin sín í skipu­lagðar íþróttir utan skóla. 

Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ hefur að und­an­förnu tekið saman kostnað við íþrótta­iðkun barna. Þegar æfinga­gjöld í hand­bolta og körfu­bolta voru skoðuð kom þar fram tug­þús­unda króna munur milli félaga fyrir jafn­gömul börn. Gjöld fyrir 14–15 ára fóru yfir 175 þús­und krónur í hand­bolta og 180 þús­und krónur í körfu­bolta. 

Í umfjöllun um æfinga­gjöld vegna knatt­spyrnu mátti sjá svip­aða þróun. Mikill munur reynd­ist milli félaga og hafði kostn­aður við iðkun til­hneig­ingu til að aukast með aldri. Fyrir 10–11 ára börn var iðkun gjald­frjáls hjá sumum félögum en hæsta reikn­aða mán­að­ar­gjaldið 17.750 krónur. Fyrir 14–15 ára var bilið frá 2.000 upp í 19.250 krónur á mán­uði. 

Í með­fylgj­andi sam­an­tekt er að finna sam­an­tekt á fim­leika­gjöldum og kostn­aður settur í sam­hengi við tekjur ein­stak­linga. 

Fimleikagjöld fyrir 1. bekkinga geta verið yfir 20 þúsund á mánuði í sumum tilfellum

Fyrri verðkann­anir ASÍ hafa sýnt mik­inn mun á kostn­aði við bolta­í­þróttir. Með­fylgj­andi sam­an­tekt leiðir í ljós mik­inn verð­mun á fim­leika­iðkun. 

Til að gefa mynd af umfangi kostn­að­ar­ins eru haust­gjöld hér reiknuð niður á fjóra mán­uði þar sem ekki er auð­veld­lega hægt að bera saman gjöld milli félaga þar sem flokk­arnir fylgja ekki aldri að öllu leyti. 

Myndin sýnir æfinga­gjöld á mán­uði hjá fim­leika­fé­lögum fyrir 6–7 ára börn. Tölu­verður munur er á gjöld­unum milli félaga. Lægsta mán­að­ar­gjaldið er hjá Völsungi, 3.750 kr., en hæst hjá Björk, 21.064 kr. Munurinn á hæsta og lægsta gjald­inu er því rúm­lega 17 þús­und krónur á mán­uði. Rétt er þó að hafa í huga að gjöldin ein og sér segja ekki endi­lega alla sög­una; til dæmis gæti fjöldi æfinga, gæði og lengd þeirra verið mis­mun­andi milli félaga. 

Flest félögin eru með mán­að­ar­gjöld á bil­inu 10–15 þús­und krónur. UMFK er með 10.000 kr., Fim­leika­fé­lagið Rán 11.375 kr., ÍA 12.232 kr., Gerpla 12.323 kr., Aft­ur­eld­ing 12.625 kr., Keflavík 13.987 kr. og KA 15.075 kr. Fjölnir og Björk skera sig hins vegar nokkuð úr í efri kant­inum, með gjöld yfir 20 þús­und krónum á mán­uði. 

Myndin dregur þannig fram að kostn­aður for­eldra vegna fim­leika­iðk­unar barna getur verið mjög mis­mun­andi eftir félögum. 

Þegar börnin verða eldri verður erf­ið­ara að bera æfinga­gjöld fim­leika­fé­laga beint saman. Æfinga­fjöldi og fyr­ir­komu­lag eru mis­mun­andi milli félaga og gjöld eru ýmist gefin upp fyrir önn eða heilt starfsár. Tölurnar hér að neðan gefa því fyrst og fremst vís­bend­ingu um þann kostnað sem getur fylgt fim­leika­iðkun á þessum aldri en eru ekki tæm­andi verð­sam­an­burður milli félaga. 

Hjá þeim félögum sem skoðuð voru, og þar sem upp­lýs­ingar voru nægi­lega sam­bæri­legar, hækkar kostn­að­ur­inn tölu­vert þegar komið er í 9–12 ára hópana. Hjá Björk kostar haustönnin í hóp­fim­leikum 173.144 krónur fyrir bæði 9–10 ára og 11–12 ára, sem jafn­gildir um 43.286 krónum á mán­uði miðað við fjög­urra mán­aða önn. Hjá Fjölni eru sam­svar­andi mán­að­ar­gjöld um 38.554 krónur fyrir 9–10 ára og 41.860 krónur fyrir 11–12 ára. 

Hjá KA eru fjár­hæð­irnar um 26.025 og 29.125 krónur á mán­uði og hjá Aft­ur­eld­ingu um 24.375 og 28.500 krónur. Keflavík birtir hins vegar árgjald, 292.200 krónur fyrir 9–10 ára og 300.000 krónur fyrir 11–12 ára. Sé því deilt á níu mán­uði sam­svarar það um 32.467 og 33.333 krónum á mán­uði. 

Vegna ólíks æfinga­fyr­ir­komu­lags er þó ekki hægt að draga þá ályktun af þessum fjár­hæðum einum að eitt félag sé ódýr­ara en annað. Til dæmis getur fjöldi æfinga­stunda á viku verið mis­mun­andi og annað inni­falið í gjöld­unum. Sam­an­burður á heild­ar­gjöldum segir því fyrst og fremst til um útgjöld heim­il­anna en síður um verð fyrir hverja æfingu eða æfinga­stund. 

Mán­að­ar­töl­urnar segja ekki til um greiðslu­á­ætl­anir félag­anna. Ekki er heldur lagt mat á fjölda eða lengd æfinga, keppn­is­stig, gæði starfs­ins eða hvað er inni­falið í gjöld­unum. Þær sýna því ekki hvaða félag býður hag­stæð­asta starfið, heldur ein­göngu umfang gjald­anna miðað við gefið tíma­bil. 

Fim­leika­dæmin sýna jafn­framt að mik­ill kostn­aður er ekki ein­göngu bund­inn við það að barn stundi fleiri en eina íþrótt. Ein íþrótt getur ein og sér verið veru­legur útgjalda­liður í heim­il­is­bók­hald­inu. 

Einn styrkur á barn, þótt íþróttirnar séu fleiri

Frí­stunda­styrkur er föst árleg fjár­hæð á barn. Fjöl­skylda með tvö börn sem bæði æfa tvær íþróttir hefur því tvo árs­styrki til ráð­stöf­unar, þótt greiða þurfi fyrir fjórar skrán­ingar. Ef styrkur barns­ins er full­nýttur í eina grein stendur ekk­ert eftir af honum til að greiða niður hina. 

Í dæm­unum er grunn­styrkur barna á aldr­inum sex til tólf ára 75.000 krónur á barn í Reykja­vík, 70.000 krónur í Kópavogi, 67.000 krónur í Garðabæ, 65.000 krónur í Hafn­ar­firði, 55.000 krónur í Árborg, 50.000 krónur í Reykja­nesbæ og 45.000 krónur í Múla­þingi. Fyrir tvö börn eru þetta frá 90.000 upp í 150.000 krónur á ári. 

Upphæð styrks­ins segir þó aðeins hluta sög­unnar. Gjöldin sem styrk­ur­inn á að mæta eru einnig mis­mun­andi. 

Tíu ára barn í hand­bolta hjá Fylki er til dæmis með 105.000 króna árgjald. Eftir 75.000 króna frí­stunda­styrk Reykja­víkur standa 30.000 krónur eftir. Hjá tíu ára barni á Selfossi er gjaldið 112.700 krónur og eftir 55.000 króna styrk Árborgar standa 57.700 krónur eftir. 

Munurinn á æfinga­gjald­inu sjálfu er 7.700 krónur en mun­ur­inn á því sem fjöl­skyld­urnar þurfa að greiða eftir styrki er 27.700 krónur. 

Hærri styrkur tryggir heldur ekki alltaf lægri eft­ir­stöðvar. Fjórtán ára barn í knatt­spyrnu hjá Breiða­bliki er með 209.500 króna árgjald. Eftir 70.000 króna styrk Kópavogs standa 139.500 krónur eftir. Jafn­gam­alt barn hjá Selfossi er með 176.900 króna gjald og eftir 55.000 króna styrk standa 121.900 krónur eftir. 

Tvenn börn og fjórar skráningar

Þegar fleira en eitt barn er á heim­il­inu og börnin stunda fleiri en eina íþrótt getur sam­an­lagður kostn­aður orðið enn meiri. 

Til sam­an­burðar voru sett upp dæmi fyrir Fylki í Reykja­vík, Breiða­blik í Kópavogi, Stjörn­una í Garðabæ, Selfoss í Árborg, Hauka í Hafn­ar­firði og Njarðvík í Reykja­nesbæ. Aldur barn­anna og íþrótta­grein­arnar eru þær sömu milli sveit­ar­fé­laga. Þetta eru dæmi um til­tekin félög en ekki með­al­töl fyrir sveit­ar­fé­lögin. 

Fyrir sex og átta ára systk­ini standa eftir frá 348.800 krónum í Reykja­vík­ur­dæm­inu upp í 411.096 krónur í Garða­bæj­ar­dæm­inu eftir að frí­stunda­styrkir hafa verið nýttir. Munurinn er 62.296 krónur á ári. Ef kostn­að­inum væri dreift jafnt yfir árið jafn­gildir það um 29.100 til 34.300 krónum á mán­uði. 

Kostn­að­ur­inn hækkar þegar eldri systk­ini eru skoðuð. 

Fyrir tíu og tólf ára systk­ini hjá Haukum eru sam­an­lögð árgjöld beggja barn­anna í knatt­spyrnu og körfu­bolta 657.600 krónur. Eftir tvo 65.000 króna styrki Hafn­ar­fjarðar standa 527.600 krónur eftir. 

Í sama ald­urs­dæmi hjá Fylki eru sam­an­lögð gjöld 587.300 krónur. Eftir tvo 75.000 króna styrki Reykja­víkur standa 437.300 krónur eftir. 

Munurinn er 90.300 krónur á ári. Ef fjár­hæð­unum væri dreift jafnt yfir árið jafn­gildir það um 44.000 krónum á mán­uði í Hafn­ar­fjarð­ar­dæm­inu og rúm­lega 36.400 krónum í Reykja­vík­ur­dæm­inu. 

Mán­að­ar­töl­urnar eru settar fram til við­mið­unar fyrir heim­il­is­bók­haldið og segja ekki til um raun­veru­lega greiðslu­dreif­ingu félag­anna. 

Sama gjald vegur misþungt eftir tekjum heimilisins

Æfinga­gjöldin segja hversu margar krónur fjöl­skylda þarf að greiða en ekki hversu þungur sá kostn­aður er í heim­il­is­bók­hald­inu. Sama 100.000 króna gjald getur haft mjög ólík áhrif eftir tekjum, fjöl­skyldu­gerð, hús­næð­is­kostn­aði og öðrum útgjöldum. 

Fyrir ein­stætt for­eldri á lág­marks­launum með tvö börn getur það reynst mjög íþyngj­andi að leyfa börnum sínum að stunda íþróttir, en það gefur um 385 þús­und krónur í ráð­stöf­un­ar­tekjur. Á mynd­inni má sjá og bera saman æfinga­gjöld á mán­uði sem hlut­fall af lág­marks­launum.

Afslættir geta lækkað reikninginn – en annar kostnaður hækkað hann

Æfinga­gjöld og grunn­styrkir segja heldur ekki alla sög­una. 

Systk­ina­af­slættir og afslættir vegna iðk­unar í fleiri greinum geta lækkað kostnað fjöl­skyldna og sums staðar er við­bót­ar­stuðn­ingur í boði. Slík kjör eru ekki tekin með í grunn­sam­an­burð­inum og þarf að skoða reglur hvers félags og sveit­ar­fé­lags til að finna end­an­legan kostnað. 

Á móti geta bæst útgjöld vegna skófatn­aðar, íþróttafatn­aðar, ann­ars bún­aðar, móts­gjalda og ferða­laga. Eft­ir­stöðvar æfinga­gjald­anna eru því ekki það sama og heild­ar­kostn­aður fjöl­skyld­unnar vegna íþrótta­iðk­unar barns. 

Lýðheilsa og æskulýðssjónarmið

Kostn­aður við íþrótta­iðkun barna er ekki aðeins spurn­ing um heim­il­is­bók­hald. Hann teng­ist einnig stærri spurn­ingum um lýð­heilsu, þátt­töku og jöfn tæki­færi barna og ung­menna. 

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, mælir með því að börn og ung­menni á aldr­inum 5–17 ára stundi að með­al­tali að minnsta kosti 60 mín­útur af miðl­ungs- eða mik­illi hreyf­ingu á dag yfir vik­una. Regluleg hreyf­ing hefur meðal ann­ars jákvæð áhrif á lík­ams­hreysti, hjarta- og efna­skipta­heilsu, bein­heilsu, vits­muna­lega færni og geð­heilsu barna og ung­menna. 

Skipu­lagt íþrótta­starf er ekki eina leið barna til hreyf­ingar. Leikur, ganga, hjól­reiðar og önnur dag­leg hreyf­ing skipta einnig máli. Skipu­lagt íþrótta- og frí­stunda­starf hefur þó einnig félags­legt hlut­verk. Þar geta börn tekið þátt í skipu­lögðu sam­fé­lags­starfi, myndað tengsl og átt sam­veru með jafn­öldrum. 

Sama sjón­ar­mið kemur fram í íslenskri stefnu­mótun í æsku­lýðs­málum. Í stefn­unni Fram­tíðin – stefna um tóm­stunda- og félags­starf barna og ung­menna til 2030 er meðal ann­ars lögð áhersla á jafnan aðgang og jöfn tæki­færi barna og ung­menna til þátt­töku. 

Almennt er einnig talið að skipu­lagt íþrótta­starf sé ein besta for­vörn ung­menna þegar kemur að frestun á neyslu áfengis- og vímu­efna. 

Verðkann­anir ASÍ sýna ekki hvort ein­stök börn hætti í íþróttum eða for­eldrar velji þær frá vegna kostn­aðar. Ekki er hægt að draga slíka orsaka­á­lyktun af gjald­skrám einum saman. Þær sýna hins vegar hversu ólíkum fjár­hags­legum þrös­k­uldi fjöl­skyldur geta staðið frammi fyrir eftir íþrótt, félagi, aldri, búsetu og fjöl­skyldu­að­stæðum. 

Þar mæt­ast lýð­heilsu-, æsku­lýðs- og kjara­sjón­ar­mið. Ef mark­miðið er að börn og ung­menni hafi raun­hæf tæki­færi til hreyf­ingar og þátt­töku skiptir ekki aðeins máli hvaða starf er í boði heldur einnig hvort fjöl­skyldan hafi ráð á því. 

Frístundastyrkurinn segir aðeins hluta sögunnar

Fyrri verðkann­anir ASÍ hafa sýnt mik­inn mun á gjöldum í hand­bolta, körfu­bolta og knatt­spyrnu. Fim­leika­gjöldin sýna að kostn­að­ar­spurn­ingin nær einnig til ann­arra greina. Þegar fleiri en eitt barn er á heim­il­inu getur sam­an­lagður kostn­aður orðið enn meiri. 

Frí­stunda­styrkir lækka reikn­ing fjöl­skyldna en áhrif þeirra ráð­ast af gjöld­unum sem þær eiga að mæta. Sama fjár­hæð getur greitt stóran hluta iðk­unar hjá einu barni en mun minna hjá öðru. 

Fjöl­skyldur hafa heldur ekki allar sama val um félög. Vega­lengdir, sam­göngur, æfinga­tímar og fram­boð íþrótta hafa áhrif á hvaða iðkun er raun­hæf í dag­legu lífi. Lægsta gjaldið í sam­an­burði er því ekki endi­lega val­kostur sem stendur öllum til boða. 

Þegar rætt er um jöfn tæki­færi barna til íþrótta og hreyf­ingar nægir því ekki að horfa ein­göngu á fjár­hæð frí­stunda­styrks­ins. Horfa þarf líka á gjöldin sem styrk­ur­inn á að mæta, kostn­að­inn sem stendur eftir hjá fjöl­skyld­unni, fjár­hags­stöðu heim­il­is­ins og hvaða starf stendur barn­inu raun­veru­lega til boða. 

Frí­stunda­styrkur getur skipt tugum þús­unda króna. En það sem skiptir fjöl­skyld­una á end­anum máli er hvað stendur eftir þegar styrk­ur­inn hefur verið nýttur – og hvort kostn­að­ur­inn sé við­ráð­an­legur svo barnið geti tekið þátt. 

Um samanburðinn

Reikni­dæmin byggja á birtum gjald­skrám fyrir íþróttir og grunn­styrkjum sveit­ar­fé­laga fyrir árið 2026. Miðað er við lög­heim­ili barns í því sveit­ar­fé­lagi sem til­greint er og að allur árs­styrkur þess sé til­tækur. Styrkur hvers barns er aðeins nýttur einu sinni þótt það stundi fleiri en eina grein. 

Ekki var lagt mat á fjölda eða lengd æfinga, gæði starfs­ins eða hvort sama þjón­usta væri inni­falin hjá öllum félögum. Dæmin eru ekki lands­með­al­tal og sýna ekki ein­angruð áhrif sveit­ar­fé­lags­ins heldur sam­an­lögð áhrif gjalda við­kom­andi félags og grunn­styrks eftir búsetu. 

Flestar verð­skrár eru sóttar af mark­aðs­torgi Abler en einnig af heima­síðum félag­anna. Ald­urs­flokkun félaga er ekki í öllum til­vikum eins. Þar sem aðeins haust­gjald liggur fyrir hefur því verið deilt niður á 4 mán­uði en árgjaldi deilt niður á 12 mán­uði í knatt­spyrnu en 9 mán­uði í körfu­bolta og hand­bolta. Ekki höfðu öll félög birt upp­lýs­ingar hjá öllum ald­urs­hópum og munu taflan og myndin verða upp­færð þegar allar upp­lýs­ingar liggja fyrir. Fjöldi æfinga og hvað er inni­falið í gjöld­unum geta einnig verið mis­mun­andi milli félaga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi