Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

„Kúga börn til að senda nektarmyndir“

Um 350 brot voru til­kynnt á fyrri helm­ingi árs­ins og voru börn tæp­lega helm­ingur brota­þola

„Kúga börn til að senda nektarmyndir“
Krakkar á raf­hlaup­hjólum Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­lega áreitni og staf­ræn kyn­ferð­is­brot hefur fjölgað veru­lega milli ára, sam­kvæmt töl­fræði lög­reglu. Um 350 brot voru til­kynnt á fyrri helm­ingi árs­ins og voru börn tæp­lega helm­ingur brota­þola. Til­kynn­ingar hafa ekki verið fleiri síðan árið 2021.

Kristján Ingi Krist­jáns­son, full­trúi í kyn­ferð­is­brota­deild lög­regl­unnar, segir þró­un­ina meðal ann­ars fylgja auk­inni snjall­síma­notkun og breyttum sam­skipta­leiðum. Brota­menn nýti sam­fé­lags­miðla og leikja­síður til að kom­ast í sam­band við börn og þyk­ist jafn­vel vera jafn­aldrar þeirra.

„Það er búið að hleypa níð­ingum inn í her­bergi til barn­anna okkar,“ segir Kristján í sam­tali við Morg­un­út­varp Rásar 2.

Hann segir lög­reglu fá alvar­leg mál af þessu tagi inn á borð í hverri viku.

„Jafnvel er verið að kúga börn til að gera eitt­hvað við annað fólk. Þannig mál koma inn á borð lög­reglu í hverri viku, þar sem til dæmis er búið að kúga börn til að senda nekt­ar­myndir.“

Í kjöl­farið geti börn­unum verið hótað að mynd­unum verði dreift til for­eldra, vina og ætt­ingja nema þau sendi enn gróf­ara efni eða greiði pen­inga. Dæmi séu um að ung­lingar hafi notað öll sum­ar­laun sín til að reyna að koma í veg fyrir dreif­ingu.

Kristján telur lög­reglu aðeins sjá topp­inn á ísjak­anum. Brotunum fylgi mikil skömm og mörg þeirra séu ill­rekj­an­leg þar sem brota­menn geti verið erlendis.

Hann leggur áherslu á að for­varnir hefj­ist á heim­il­unum og segir hættu­legt að afhenda mjög ungum börnum snjall­síma og sam­bæri­leg tæki án nægi­legrar fræðslu um hætt­urnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

„Sambandið hefur breyst síðan þá. Við berum nú meiri ábyrgð sjálf og mér finnst það hafa gengið vel“
Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Heimur

Hand­tek­inn eftir að hafa brot­ist inn á lóð LeBron James

Innlent

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Alls voru 78 mál bókuð hjá lögreglu á tólf klukkustundum. Sex einstaklingar gistu fangageymslur.
Innlent

For­eldrar Hönnuh Jane neita að kalla harm­leik­inn á Krýsu­vík­ur­vegi slys

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra

Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“