Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi

„Í alvöru Stefán, er svona mál­flutn­ingur boð­legur?“

Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra
Daði Már Krist­ó­fers­son, fjár­mála­ráð­herra Ekki eru allir á sama máli um túlkun Stefáns á orðum Daða Más Mynd: Stjórnarráðið/Bernharð

Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur og vara­borg­ar­full­trúi hjá Vinstri grænum gagn­rýnir efna­hags­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í Facebook-færslu og segir þús­undir Íslend­inga hafa misst atvinn­una vegna aðgerða sem stjórn­völd hafi sjálf sagt nauð­syn­legar til að ná tökum á verð­bólgu.

Stefán vísar til fréttar þar sem Ragnar Þór Ing­ólfs­son, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra segir Seðla­bank­ann hafa „spilað með líf fólks“ ef bank­inn hafi vís­vit­andi skapað efna­hags­að­stæður sem auki atvinnu­leysi.

Í færslu sinni bendir Stefán á að Seðla­bank­inn sé að fram­fylgja efna­hags­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar. Hann rifjar jafn­framt upp ummæli fjár­mála­ráð­herra frá því í vor, þar sem fram kom að atvinnu­leysi gæti auk­ist vegna aðgerða stjórn­valda gegn þenslu­verð­bólgu.

„Það verður ekki tekið af rík­is­stjórn­inni að henni hefur tek­ist að ná mark­miðum sínum,“ skrifar Stefán og vísar til fjölg­unar atvinnu­lausra og bætir síðan við:

„Atvinnu­lausum Íslend­ingum hefur fjölgað um mörg­þús­und manns með til­heyr­andi áhrifum á líf og sjálfs­virð­ingu alls þessa fólks.“

Færslan vakti mikla athygli og voru ekki allir á eitt sáttir með hana.

Viktor Orri Val­garðs­son, stjórn­mála­fræð­ingur og fyrrum vara­þing­maður Pírata er einn af þeim sem gagn­rýnir orð Stefáns.

„Frekar lélegt að túlka þessi orð sem svo að það sé sér­stakt mark­mið að auka atvinnu­leysi... það er aug­ljós­lega hvorki það sem hann sagði eða meinti.“

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Egill Helgason bendir á að um sé að ræða „hrein­skilni.“

„Þetta heitir ein­fald­lega hrein­skilni. Háir vextir draga úr umsvifum í hag­kerf­inu sem þýðir að sumt fólk missir atvinn­una.“

Ásdís Auð­uns­dóttir, veð­ur­fræð­ingur og fram­halds­skóla­kenn­ari, húð­skammar Stefán í eft­ir­far­andi athuga­semd:

„Þú setur sama­sem­merki milli þess að ,,það sé mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar að auka atvinnu­leysi" (þín orð) og að fjár­mála­ráð­herra segi ,,óhjá­kvæmi­legt að atvinnu­leysi auk­ist vegna aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar". Skoðum dæmi: Alkó­hólisti kemur á vog í tveggja vikna heild­ræna áfeng­is­með­ferð. Með­ferð­ar­að­il­inn segir óhjá­kvæmi­legan fyligi­fisk að líða sárs­auka á meðan á afvötnun stendur. Mbl/Stefán Pálsson skrifar grein með fyr­ir­stögn­ina: ,,Með­ferð­ar­að­ili hefur það að mark­miði að sá sem kemur í afvötnun líði vít­isk­valir". Í alvöru Stefán, er svona mál­flutn­ingur boð­legur? Eins og RÞI benti á í þessu við­tali þá er rík­is­stjórnin að vinda ofan af ábyrgð­ar­leysi fyrri rík­is­stjórna með að boða halla­laus fjár­lög. Tékki var alltaf skrif­aður á seinni tíma og vaxta­kostn­aður rík­is­ins var gíf­ur­legur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Öskurapi með vesen

Tveir gistu í fangageymslum lögreglu í nótt.
Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Viðreisn mælist með 9,2 prósenta fylgi og Miðflokkurinn með 15,1 prósent. Atli Þór segir Miðflokkinn „hreinlegri“ kost.
  • Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi