Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Bogi í bobba

Bogi í bobba
Bogi Þór Sig­urodds­son Mynd: Bogi Þór Siguroddsson/Facebook

Hús­leitin í Ölgerð­inni og grun­semdir um stór­fellda mis­notk­unar fyr­ir­tæk­is­ins á mark­aðs­ráð­andi stöðu setja aðal­eig­and­ann, Boga Þór Sig­urodds­son, í afleita stöðu. Tvö fyr­ir­tæki Boga Þórs eiga sam­tals 21 pró­sent hluta­fjár í móð­ur­fé­lagi Ölgerð­ar­innar, Beru, sem er skráð fyr­ir­tæki í Kaup­höll­inni. Bogi hefur lagt mikið upp úr heið­ar­leika í við­skiptum en hann missti á sínum tíma Húsa­smiðj­una í hendur þeirra Árna Hauks­sonar og Hall­björns Karls­sonar. Bogi Þór skrif­aði bók­ina Fjand­sam­leg yfir­taka sem dregur upp ófagra mynd af Árna og Hall­birni.

Bókin fjallar um það þegar Bogi taldi sig hafa gert sam­komu­lag um kaup á Húsa­smiðj­unni af Jóni Snorra­syni og fjöl­skyldu en var svik­inn af þeim Árna og Hall­birni að eigin mati. Bogi lagði í skrifum sínum mikla áherslu á heil­indi, heið­ar­leika og sið­ferði enda þykir hann vinna þannig í rekstri fyr­ir­tækja sinna innan sam­stæðu Fagkaupa. Fyr­ir­tækin eiga að starfa innan ramma laga og í anda laga, segir Bogi Þór.

Það mál sem nú er til umfjöll­unar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna meintra brota Ölgerð­ar­innar hlýtur því að vefj­ast mikið fyrir Boga og má mikið vera ef hann sem langstærsti hlut­haf­inn muni ekki krefj­ast breyt­inga á yfir­stjórn Ölgerð­ar­innar. Bogi á ekki sjálfur sæti í stjórn Beru en var áður for­maður. Stjórn­ina skipa nú Andri Þór Guð­munds­son for­maður, Rannveig Eir Ein­ars­dóttir vara­for­maður, Magnús Árnason, Gerður Huld Arin­bjarn­ar­dóttir og Sigríður Elín Sig­fús­dóttir. Andri Þór var for­stjóri Ölgerð­ar­innar þar til á þessu ári og vara­for­mað­ur­inn, Rannveig Eir, er umsvifa­mik­ill bygg­ing­ar­verk­taki og stjórn­ar­maður og stór hlut­hafi í SÝN. Slúðrað er um að hitnað hafi veru­lega undir stjórn og fram­kvæmda­stjóra vegna máls­ins og Bogi muni láta til skarar skríða gegn þeim til að orð­spor hans skað­ist ekki frekar ...

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Slúður