Sjómaðurinn Sigurður Jóhann Jónasson gagnrýnir harðlega íslenska heilbrigðiskerfið eftir að sonur hans slasaðist alvarlega í slysi á hlaupahjóli og bíður enn eftir aðgerð.
Sigurður greinir frá málinu í færslu á Facebook og segir son sinn hafa dottið af hlaupahjóli 12. ágúst. Við fallið hafi hann brotnað á viðbeini og öxl og þurfi að gangast undir aðgerð vegna meiðslanna.
Að sögn Sigurðar hefur sonur hans hins vegar þurft að bíða heima eftir að komast í aðgerð þrátt fyrir mikla verki.
„Er farinn að sjá eftir því að vera Íslendingur. Sonur minn datt á hlaupahjóli, brotnaði viðbein og öxl,“ skrifar Sigurður.
Hann segir syni sínum hafa verið gert að fasta frá klukkan ellefu á kvöldin og bíða síðan eftir upplýsingum um hvort og hvenær hann komist í aðgerð. Segir Sigurður að þetta hafi endurtekið sig á meðan sonur hans bíði sárkvalinn.
Sigurður sparar ekki stóru orðin í gagnrýni sinni og segist vera „brjálaður“ yfir stöðunni.
„Mér grunar að hér séu mannréttindi brotin. Bæði axlarbein og viðbein standa út og suður og hann er bara á biðlista,“ skrifar Sigurður og gagnrýnir sérstaklega að sonur hans hafi ítrekað þurft að fasta vegna mögulegrar aðgerðar án þess að komast að.
Ekki liggur fyrir í færslu Sigurðar hvers vegna aðgerðin hefur dregist eða hvenær gert er ráð fyrir að sonur hans komist undir hnífinn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir