Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Heimur

David Walliams sak­aður um að hafa tælt ung­lings­stúlkur

Breytingar í grunnskólum Íslands verða innleiddar í tveimur áföngum

Mark­miðið er að gera ein­kunna­gjöf skýr­ari

Inga Sæland
Inga Sæland Er mennta- og barna­mála­ráð­herra. Mynd: Víkingur

Mennta- og barna­mála­ráðu­neytið hyggst breyta náms­mati í grunn­skólum þannig að ein­kunnir verði gefnar í tölum í stað bók­stafa en þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stjórn­völdum.

Mark­miðið er að gera ein­kunna­gjöf skýr­ari, sam­ræmd­ari og auð­skilj­an­legri fyrir nem­endur, for­eldra og skóla­sam­fé­lagið.

Breyt­ing­arnar verða inn­leiddar í tveimur áföngum. Fyrsti áfang­inn tekur form­lega gildi vorið 2027 og nær til loka­mats nem­enda í 10. bekk. Und­ir­bún­ingur hefst haustið 2026 og verða ein­kunnir við lok grunn­skóla gefnar í heilum tölum á bil­inu 1–10.

Samkvæmt gild­andi aðal­námskrá byggir náms­mat grunn­skóla á bók­stafa­kvarða sem tengdur er hæfni- og matsvið­miðum við lok 4., 7. og 10. bekkjar. Ráðu­neytið segir breyt­ing­una eiga að tryggja að loka­ein­kunn gefi gagn­særri mynd af stöðu nem­enda og að náms­mat verði sam­bæri­legra milli skóla.

Annar áfangi breyt­ing­anna tekur gildi vorið 2028 og nær til loka­mats í 4. og 7. bekk. Samhliða verður unnið að end­ur­skoðun aðal­námskrár, meðal ann­ars í stærð­fræði, nátt­úru­fræði og íslensku.

Ráðu­neytið leggur áherslu á að tölu­kvarð­inn komi ekki í stað fag­legs mats kenn­ara á hæfni og fram­förum nem­enda. Miðstöð mennt­unar og skóla­þjón­ustu mun styðja skóla við inn­leið­ingu breyt­ing­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Peningar

Tveir þekktir skyndi­bita­staðir inn­sigl­aðir að beiðni Skatts­ins

Ásmundur Rúnar Gylfason staðfestir að lögregla hafi aðstoðað við innsiglun á Höfðatorgi en vill ekki tjá sig frekar um málið.
Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Heimur

Hundruð skóla rýmdir vegna sprengju­hót­ana í Skotlandi og á Norður-Írlandi

Minning

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Innlent

Innlent

Inn­köllun vegna eld­hættu í þremur teg­undum Volkswagen-raf­bíla

Eigendur hvattir til að hlaða bifreiðar sínar ekki umfram 80 prósent.
Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Innlent

Öskurapi í Vest­ur­bænum fannst ekki þrátt fyrir leit

Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir