
Mohammed Alkurd, flóttamaður frá Gaza sem dvalið hefur á Íslandi, segist hafa ákveðið að yfirgefa landið í byrjun júlí eftir langa bið, óvissu og brottvísunarákvörðun sem tekin var í máli hans.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hann birti í morgun þar sem hann lýsir reynslu sinni af íslenska hæliskerfinu og stöðu flóttafólks hér á landi.
Í færslunni segir Alkurd að vinur hans hafi útvegað honum lögmann eftir að brottvísunarákvörðun var tekin, í þeirri von að staða hans myndi breytast.
„Eftir langan tíma af bið, tilraunum og óvissu, og eftir að brottvísunarákvörðun var tekin í mínu máli fyrir nokkru síðan, reyndi vinur minn að hjálpa mér og útvegaði mér lögmann í von um að eitthvað myndi breytast. En enn sem komið er sé ég enga niðurstöðu nema meiri bið og óstöðugleika,“ skrifar hann.
Alkurd segir að hann hafi enn ekki fengið leyfi til að vinna og gagnrýnir jafnframt meðferð íslenskra stjórnvalda á flóttafólki.
„Ég hef enn ekki leyfi til að vinna, og margir flóttamenn hér lifa árum saman í stöðugum kvíða og óvissu, aðeins til að fá aftur synjun eða nýja brottvísun að lokum. Því miður eru lögin og kerfið gagnvart flóttafólki á Íslandi mjög hörð, og á þessu tímabili hef ég oft fundið fyrir óréttlæti og vanmætti þrátt fyrir allar mínar tilraunir til að byggja upp eðlilegt og öruggt líf. Þess vegna hef ég, eftir mikla umhugsun, ákveðið að yfirgefa Ísland sjálfur í byrjun júlí.“
Ætlar að segja sögu sína á opnum fundi
Áður en hann yfirgefur Ísland hyggst Alkurd standa fyrir viðburði í Reykjavík þar sem fjallað verður um stöðu flóttafólks á Íslandi og hans eigin reynslu.
„En áður en ég fer munum við halda viðburð í Reykjavík þar sem við munum ræða opinskátt um líf flóttafólks hér á landi, sem og þá reynslu og stöðu sem ég hef sjálfur upplifað sem flóttamaður. Við munum einnig segja frá erfiðleikum og hlutum sem margir hafa aldrei heyrt um áður. Markmiðið er að sýna raunverulega mynd af stöðunni, án yfirborðslegra fyrirsagna eða formlegs orðalags.“
Hann segir enn óákveðið hvar fundurinn verður haldinn en nánari upplýsingar verði birtar síðar.
Safnar frjálsum framlögum
Alkurd segir einnig að á fundinum verði safnað frjálsum framlögum.
„Á viðburðinum verður einnig safnað frjálsum framlögum, ekki aðeins svo ég geti reynt að byggja líf mitt upp á nýtt og hjálpað fjölskyldu minni, heldur líka vegna þess að framtíðin sem bíður mín eftir brottför er mjög óviss og erfið.“
Hann bendir á að dvalarleyfi sitt í Grikklandi hafi runnið út fyrir meira en einu og hálfu ári síðan, sem geri framtíð hans enn óljósari.
„Einum eða tveimur dögum eftir viðburðinn mun ég yfirgefa Ísland, og ég veit ekki hvað bíður mín eftir það, sérstaklega þar sem dvalarleyfið mitt í Grikklandi rann út fyrir meira en einu og hálfu ári síðan. Það gerir framtíð mína mjög óljósa.“
Í lok færslunnar biður hann fólk um stuðning, að deila upplýsingum um viðburðinn og mæta ef kostur er þegar nánari upplýsingar liggja fyrir.
„Það eina sem ég bið ykkur um er stuðningur, að deila þessari færslu og mæta á viðburðinn í byrjun júlí ef þið getið þegar við birtum nánari upplýsingar fljótlega. Nærvera ykkar og hlý orð skipta mig miklu máli á þessum erfiða tíma.“
