Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

„Enginn staður lítur út eins og á Íslandi“

Mikil gleði var í ferðinni
Mikil gleði var í ferð­inni Mynd: Skjáskot

Blaða­mað­ur­inn Jonathon Klein hjá miðl­inum RideAp­art fer fögrum orðum um Ísland eftir ævin­týra­ferð um landið á vegum Ducati og Dainese. Klein tók þátt í svo­kall­aðri Expedition Masters Iceland ferð og segir upp­lifun­ina hafa haft djúp­stæð áhrif á sig.

Klein segir að frá því hann sneri heim hafi hann ítrekað staðið sig að því að horfa út um glugg­ann og láta hug­ann reika aftur til Íslands. Landið hafi á sér­stakan hátt sest að í huga hans og vakið sterka löngun til frek­ari ævin­týra.

„Enginn staður lítur út eins og á Íslandi. Að minnsta kosti ekki á jörð­inni,“ skrifar Klein og bætir við að hann hafi notið hverrar sek­úndu ferð­ar­innar.

Tilefni skrif­anna er nýtt mynd­band frá Expedition Masters ferð­inni þar sem Klein og ferða­fé­lagi hans Damian fara yfir upp­lifun­ina. Klein segir mynd­bandið hafa vakið upp sterkar minn­ingar og að hann hafi horft á það ítrekað frá birt­ingu.

Ferðin stóð yfir í fimm daga og var ekið við krefj­andi aðstæður á Ducati DesertX V2 mót­or­hjólum. Að sögn Klein reynd­ust hjólin afar vel þrátt fyrir erf­iða leið. Hann segir hóp­inn meðal ann­ars hafa farið fram úr tveimur hópum á sér­út­búnum tor­færu­hjólum sem glímdu við bil­anir og sprungin dekk.

Á fimm dögum hafi aðeins komið upp tvö vanda­mál hjá þeirra hópi. Annars vegar hafi sprungið fram­dekk og hins vegar losnað útblást­ur­s­kerfi á einu hjól­anna. Klein gerir lítið úr síð­ar­nefnda atvik­inu og segir það jafn­vel hafa gert hljóðið í hjól­inu enn til­komu­meira.

Í skrifum sínum lýsir Klein með sterkum hætti minn­ing­unum frá Íslandi. Hann seg­ist enn geta kallað fram til­finn­ing­una af lausum sandi undir hjól­unum, köldu jök­ul­vatn­inu og gróðr­inum sem hann lá á eftir langan dag á ferð.

Áhrifin virð­ast ekki hafa dofnað eftir heim­kom­una.

„Ef ein­hver myndi biðja mig um að fara aftur akkúrat núna myndi ég grípa dótið mitt og fara í næsta 14 tíma flug,“ skrifar Klein.

Hann gengur svo langt að lýsa því yfir að ferðin hafi breytt líf hans og hvetur aðra sem hafa tíma og fjár­hags­legt svig­rúm til að prófa slíkt ævin­týri.

„Farðu og upp­lifðu ævin­týri lífs þíns. Þú verður ekki fyrir von­brigðum,“ segir Klein að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Fólk

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Jelena Ćirić telur að hún hefði ekki fengið að flytja til Íslands árið 2016 ef fyrirhugaðar reglur um dvalarleyfi hefðu þá gilt.

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna