1
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

2
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

3
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

4
Heimur

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist

5
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

6
Innlent

Móðir vill að horfinn sonur verði úrskurðaður látinn

7
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

8
Fólk

Garðabæjardraumurinn til sölu með heitum og köldum potti

9
Innlent

Framkvæmdastjóri sýknaður af fjárdrætti eftir gagnrýni dómsins á rannsóknina

10
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Til baka

Karl Héðinn stígur til hliðar

Karl Héðinn Kristjánsson hefur ákveðið að hætta sem forseti Roða

Karl Héðinn Kristjánsson
Karl Héðinn KristjánssonKarl Héðinn stígur til hliðar
Mynd: Efling

Karl Héðinn Kristjánsson, sem situr og er ritari í framkvæmdastjórn Sósíalistaflokks Íslands, hefur ákveðið að láta af embætti forseta Roða, ungliðahreyfingar flokksins. Ákvörðun hans kemur í kjölfar umræðu sem skapast hefur um samband sem hann átti við 16 ára stúlku þegar hann var 22 ára gamall.

Í færslu á samfélagsmiðlum greinir Karl Héðinn frá því að ákvörðunin hafi verið tekin eftir ígrundun, með hagsmuni hreyfingarinnar að leiðarljósi.

„Ég er ótrúlega stoltur af því sem við höfum byggt saman undanfarin ár, og þakklátur fyrir samstarfið, baráttuna og traustið sem mér hefur verið sýnt.“

Karl segir umræðuna hafa kviknað vegna fyrra sambands sem hann átti utan starfsvettvangs Roða og áður en hann tók að sér forystuhlutverk innan hreyfingarinnar.

„Á síðustu vikum hefur komið upp umræða vegna sambands sem ég átti, þegar ég var 22 ára gamall, við töluvert yngri manneskju. Þetta samband átti sér stað utan vettvangs ROÐA og löngu áður en ég tók að mér forystuhlutverk í félaginu.“

Hann segir enginn innan hreyfingarinnar hafa lýst neikvæðri reynslu af honum, en viðurkennir að sambandið og þögnin í kringum það hafi vakið gagnrýni og valdið óöryggi, sérstaklega innan hóps sem leggur áherslu á traust og jafnrétti.

„Enginn innan hreyfingarinnar hefur lýst neikvæðri reynslu af mér, en ég geri mér grein fyrir því að sambandið og þögn mín um það hefur vakið gagnrýni og óöryggi, sérstaklega í hreyfingu sem leggur áherslu á jafnrétti, öryggi og traust.“

Karl lýsir því jafnframt að hann harma vanlíðan sem þetta mál hafi valdið öðrum og vonar að yfirlýsing hans varpi ljósi á afstöðu hans og fyrirætlanir.

„Framtíð mín liggur áfram í félagslegri baráttu, en ég mun nú beina athygli minni að öðrum sviðum, leggja mitt af mörkum með nýjum hætti og einbeita mér að því sem ég get best. Bæði innan flokksins og í öðrum félagslegum og skapandi verkefnum,“ segir Karl Héðinn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Borgaði 30 dali fyrir málverk sem reyndist gullnáma
Myndir
Heimur

Borgaði 30 dali fyrir málverk sem reyndist gullnáma

Var í leit að vínylplötum
Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Selja höll í Garðabæ með þreföldum bílskúr
Myndir
Fólk

Selja höll í Garðabæ með þreföldum bílskúr

Mögulegur sökudólgur vill ekki að það sé leitað að sökudólgi
Pólitík

Mögulegur sökudólgur vill ekki að það sé leitað að sökudólgi

Lögreglan leitar að Halldóri Inga
Innlent

Lögreglan leitar að Halldóri Inga

Hávaðinn var minnsta vandamálið þegar lögreglan mætti
Innlent

Hávaðinn var minnsta vandamálið þegar lögreglan mætti

Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé
Menning

Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Pólitík

Mögulegur sökudólgur vill ekki að það sé leitað að sökudólgi
Pólitík

Mögulegur sökudólgur vill ekki að það sé leitað að sökudólgi

Valdimar sat í meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar meðan málið var til vinnslu
Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Loka auglýsingu