1
Heimur

Breskur ferðamaður lést tíu mánuðum eftir banaslys á Lanzarote

2
Innlent

Guðný kallar eftir viðbrögðum yfirvalda vegna heimsóknar ísraelsks hermanns

3
Minning

Skúli Steinar Pétursson er fallinn frá

4
Fólk

María ræðir ferilinn, barnsmissinn og uppgjörið við fortíðina

5
Heimur

Kaffimógull ákærður fyrir að drekkja níu ára dóttur

6
Fólk

Fimm duldar ástæður fyrir því að þú laðast alltaf að röngu fólki

7
Heimur

Fegurðardrottningin Brynn Carnesecca, látin aðeins 21 árs

8
Minning

Gunnar Þórðarson látinn

9
Heimur

Geimrusl frá Musk rekst brátt á tunglið á 8.750 kílómetra hraða á klukkustund

10
Innlent

Eva segir dómarann hafa dregið „víðáttuvitlausar ályktanir“ í máli Skúla Tómasar

Til baka

„Seinna komu þeir með hund sem nauðgaði mér líka“

Ný skýrsla lýsir kerfisbundnum og hrottafengnum nauðgunum á palestínskum föngum

Palestínukonur
Konur mótmæla á VesturbakkanumKonur halda uppi myndum af ástvinum sem eru í haldi Ísraela
Mynd: JAAFAR ASHTIYEH / AFP

Euro-Med Human Rights Monitor segir í nýrri skýrslu að kynferðisofbeldi gegn Palestínumönnum í ísraelskum fangelsum og varðhaldsstöðvum sé í reynd opinber stefna ríkisins og notað sem tæki til kúgunar og eyðileggingar, sérstaklega eftir 7. október 2023. Viðkvæmir lesendur eru varaði við lestrinum.

Euro-Med Human Rights Monitor segir í nýrri skýrslu að kynferðisofbeldi gegn Palestínumönnum í ísraelskum fangelsum og varðhaldsstöðvum sé í reynd opinber stefna ríkisins og notað sem tæki til kúgunar og eyðileggingar, sérstaklega eftir 7. október 2023. auk þess sem árásir hafi verið teknar upp á myndband og framkvæmdar í viðurvist margra öryggisvarða. BBC hefur áður fjallað um frásagnir fyrrverandi fanga sem lýst hafa nauðgunum í haldi Ísraela.

Samtökin segja að markmiðið hafi verið að brjóta niður bæði einstaklinga og samfélagið í heild með alvarlegum líkamlegum og andlegum skaða.

Skýrslan byggir að stórum hluta á vitnisburði fyrrverandi palestínskra fanga frá Gaza sem hafi verið látnir lausir undanfarna mánuði og greint frá kerfisbundnu kynferðisofbeldi í haldi Ísraela.

Khaled Ahmad, rannsakandi hjá samtökunum, sagði að það hefði verið „nánast ómögulegt“ að nálgast vitnisburði um kynferðisofbeldi.

„Við vissum að um tugi nauðgana og kynferðisárása væri að ræða, en í íhaldssömu samfélagi er gríðarlega erfitt fyrir fólk að segja frá því að það hafi verið nauðgað,“ sagði hann. Bætti hann við: „Þrátt fyrir erfiðleikana tókst okkur að ná til nokkurra tilvika, en flestir voru karlmenn, því samhengi kynferðisofbeldis gegn konum í palestínsku samfélagi hefur í för með sér meiri og flóknari afleiðingar. Þess vegna er afar erfitt fyrir konu að segja frá því að hún hafi orðið fyrir árás.“

Hann bætti við að samtökin teldu raunverulegan fjölda fórnarlamba mun hærri en þau hefðu getað staðfest.

Í einni frásögn sem birt er í skýrslunni segir 43 ára gamall palestínskur maður, Wajdi, að hermenn hafi ítrekað nauðgað honum meðan á yfirheyrslum stóð.

„Í yfirheyrslunni bundu þeir mig nakinn við málmrúm og einn hermannanna spurði mig hversu mörgum ísraelskum konum ég hefði nauðgað í Ísrael. Ég neitaði því að hafa nokkurn tíma farið til Ísraels. Þá nauðgaði hermaður mér. Ég fann fyrir miklum sársauka í endaþarmi og öskraði, en í hvert skipti sem ég öskraði var ég barinn. Þetta stóð yfir í nokkrar mínútur á meðan hermenn tóku það upp og hæddust að mér. Hermaðurinn fór eftir að hafa fengið sáðlát inn í mig. Ég var skilinn eftir í niðurlægjandi stellingu. Ég óskaði mér dauða. Mér blæddi,““ sagði hann samkvæmt skýrslunni.

Hann segir einnig að hundur hafi verið notaður við ofbeldið og að hann hafi síðar verið neyddur til munnmaka og síðan hafi verið pissað á hann.

„Seinna leystu þeir mig og komu með hund sem nauðgaði mér líka. Sama dag var mér nauðgað að minnsta kosti tvisvar sinnum í viðbót eftir að hafa verið bundin við rúmið. Einn hermannanna setti liminn upp í munninn á mér og pissaði svo á mig. Nauðgunin var endurtekin tveimur dögum síðar af þremur hermönnum. Ég var í mjög slæmu líkamlegu og andlegu ástandi.“

Samkvæmt samtökunum hafa karlar og drengir verið beittir sérstaklega grófu kynferðisofbeldi, meðal annars þar sem málmstöngum, trékylfum og öðrum hlutum var stungið í endaþarm þeirra, auk raflosts og barsmíða á kynfæri.

Fangar voru einnig beittir raflostum og sparkað eða slegið var beint í kynfærin með höndum eða hermannaklossum. Þessar misþyrmingar leiddu til skráðra tilvika um varanlega líkamlega áverka, þar á meðal missi á æxlunar- eða hluta af meltingarfærum, brottnám eistna og í sumum tilfellum dauða af völdum pyntinga.

Skýrslan segir einnig að palestínskar konur og stúlkur frá Gaza hafi orðið fyrir kerfisbundnu kynferðisofbeldi frá október 2023, þar á meðal hafi þær verið þvingaðar til að afklæðast, þær orðið fyrir kynferðislegri áreitni, orðið fyrir nauðgunarhótunum og verið nauðgað.

Euro-Med Human Rights Monitor segir ísraelska dómskerfið hafa brugðist algjörlega sem eftirlitskerfi og í staðinn skapað refsileysi fyrir glæpi gegn Palestínumönnum.

Í fyrri skýrslu sem birt var í maí 2024 skrásetti Euro-Med Monitor um 100 vitnisburði sem lýstu að minnsta kosti 40 mismunandi pyntingaraðferðum sem beitt var gegn föngum. Þar á meðal voru alvarlegar og ítrekaðar barsmíðar, þvinguð fjötrun, svipting svefns, matar og vatns, niðurlægjandi og ómannúðlegar aðstæður í varðhaldi og stöðugar hótanir, ásamt munnlegu og sálrænu ofbeldi.

Samtökin telja að brotin uppfylli skilyrði fyrir stríðsglæpi, glæpi gegn mannkyninu og mögulega þjóðarmorð samkvæmt Alþjóðlega sakamáladómstólnum og Sameinuðu þjóðunum.

Þau kalla nú eftir því að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn rannsaki sérstaklega kynferðisofbeldi og pyntingar gegn palestínskum föngum og að ríki sem eiga aðild að Rómarsamþykktinni beiti lögsögu sinni til að lögsækja þá sem bera ábyrgð.

Hér má lesa skýrsluna í heild.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ólafur Haukur segir Bandaríkin ekki hafa lært af fyrri stríðum
Pólitík

Ólafur Haukur segir Bandaríkin ekki hafa lært af fyrri stríðum

„Togari með tíu dróna innanborðs gæti þurrkað herstöðina og flugvöllinn út á dagsstundu“
Ný tegund apakattar uppgötvuð í regnskógum Kongó
Heimur

Ný tegund apakattar uppgötvuð í regnskógum Kongó

Ísraelsher greindi 850 þúsund möguleg skotmörk á tveimur árum
Heimur

Ísraelsher greindi 850 þúsund möguleg skotmörk á tveimur árum

Gauti sakar Konráð um að afvegaleiða þjóðina
Innlent

Gauti sakar Konráð um að afvegaleiða þjóðina

Boy George hættir við þátttöku í Jesus Christ Superstar
Heimur

Boy George hættir við þátttöku í Jesus Christ Superstar

Edda Björgvins heldur uppi stuðinu í miðbænum
Myndband
Fólk

Edda Björgvins heldur uppi stuðinu í miðbænum

Hér verður besta veðrið um verslunarmannahelgina
Landið

Hér verður besta veðrið um verslunarmannahelgina

Tveir játa morð á rússneskum systkinum í Taílandi
Heimur

Tveir játa morð á rússneskum systkinum í Taílandi

Náttúruverndarsamtök Íslands skora á Paul Watson að hætta við aðgerðir
Innlent

Náttúruverndarsamtök Íslands skora á Paul Watson að hætta við aðgerðir

Krían á Vatnsleysuströnd í mikilli hættu
Landið

Krían á Vatnsleysuströnd í mikilli hættu

Hjón fundust myrt eftir að ICE vísaði eiginmanninum úr Bandaríkjunum
Heimur

Hjón fundust myrt eftir að ICE vísaði eiginmanninum úr Bandaríkjunum

Fjórir sjálfboðaliðar, fjögur lönd og ógleymanlegar minningar á Íslandi
Myndir
Innlent

Fjórir sjálfboðaliðar, fjögur lönd og ógleymanlegar minningar á Íslandi

Fegurðardrottningin Brynn Carnesecca, látin aðeins 21 árs
Heimur

Fegurðardrottningin Brynn Carnesecca, látin aðeins 21 árs

Heimur

Ný tegund apakattar uppgötvuð í regnskógum Kongó
Heimur

Ný tegund apakattar uppgötvuð í regnskógum Kongó

Einkennist af appelsínugulum vörum og ljósum blettum í kringum munninn.
Fegurðardrottningin Brynn Carnesecca, látin aðeins 21 árs
Heimur

Fegurðardrottningin Brynn Carnesecca, látin aðeins 21 árs

Ísraelsher greindi 850 þúsund möguleg skotmörk á tveimur árum
Heimur

Ísraelsher greindi 850 þúsund möguleg skotmörk á tveimur árum

Boy George hættir við þátttöku í Jesus Christ Superstar
Heimur

Boy George hættir við þátttöku í Jesus Christ Superstar

Tveir játa morð á rússneskum systkinum í Taílandi
Heimur

Tveir játa morð á rússneskum systkinum í Taílandi

Hjón fundust myrt eftir að ICE vísaði eiginmanninum úr Bandaríkjunum
Heimur

Hjón fundust myrt eftir að ICE vísaði eiginmanninum úr Bandaríkjunum

Loka auglýsingu