1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Konan er fundin

4
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

5
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

6
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

7
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

8
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

9
Innlent

Bylting við flugstöðina

10
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Til baka

Sigurður Ingi gagnrýnir Kristrúnu vegna Covid-ráða

Segir að ríkisstjórnin hafi ekki gripið til nægjanlegra aðgerða til að ná tökum á verðbólgu

Sigurður Ingi
Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins
Mynd: Víkingur

Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega í færslu á samfélagsmiðlum í kjölfar ákvörðunar peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Vextirnir standa nú í 8 prósentum.

Í færslu á samfélagsmiðlum segir Sigurður Ingi að ríkisstjórnin hafi ekki gripið til nægjanlegra aðgerða til að ná tökum á verðbólgu. Hann vísar meðal annars til ummæla Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í sumar um að ekki kæmi til greina að leggja fram ófjármagnaðan aðgerðapakka vegna stöðunnar í efnahagsmálum.

Sigurður Ingi rifjar í því samhengi upp aðgerðir ríkisstjórnarinnar árið 2024 vegna langtímakjarasamninga og segir þær hafa verið mikilvægan þátt í að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta. Að hans mati hefði sú þróun getað leitt til mildrar lendingar í íslensku efnahagslífi.

Hann gagnrýnir jafnframt Kristrúnu vegna afstöðu hennar í upphafi Covid-faraldursins. Segir hann hana þá, sem óháðan hagfræðing, hafa kallað eftir 50 milljarða króna stuðningi ríkisins við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Sú krafa hafi að hans sögn verið ófjármögnuð.

Sigurður Ingi telur nú stefna í harða lendingu með vaxandi atvinnuleysi, hærri vöxtum, auknum vanskilum og minni hagvexti.

Hann tengir gagnrýnina jafnframt við komandi þjóðaratkvæðagreiðslu og segir ríkisstjórnina beina athyglinni að Evrópusambandinu í stað efnahagsmála. Aðild að ESB eða upptaka evru myndi ekki leysa efnahagsvandann sjálfkrafa.

Sigurður Ingi segist því ætla að greiða atkvæði gegn í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Fjölmiðlarnir uppljóstruðu um vitneskju forsætisráðherrans um yfirvofandi hryðjuverkaárás Hamas-liða 7. október 2023.
Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar
Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar

Sálfræðingur skorar á ráðherra
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

„Þetta eru þeir sem vilja bara skattleggja almúgann - ekki auðmenn“
Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Loka auglýsingu