Pétur H. Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar segist ekkert vera að spá í gervigreindarmyndskeiði sem Guðmundur Ingi Þóroddsson, sem leiðir lista Flokk fólksins í Reykjavík, birti en þar má meðal annar sjá Guðmund Inga berja Pétur.
Heimildin sagði frá því að oddviti Flokks fólkins í borginni, Guðmundur Ingi Þóroddsson, hafi gefið út gervigreindarmyndband þar sem hann lemur Pétur en Guðmundi var hafnað í prófkjöri Samfylkingarinnar, áður en hann gekk til liðs við Flokk fólksins. Í myndbandinu sakar hann einnig Samfylkinguna um loforðasvik.
Myndbandið er með óvenjulegustu kosningamyndböndum sem sést hafa hér á landi en þar sést hann dansa með ekki bara einni Ingu Sæland, heldur tveimur Ingum, á milli þess sem hann lemur Pétur og þau Inga dilla rassinum framan í áhorfendur. Þá má einnig sjá hóp ungra karlmanna með sólgleraugu koma aftan að konu sem líkist Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra, nærri ráðhúsinu og setja þumalinn niður. Undir glymur gervigreindarlag sem minnir helst á hljómsveitina Albatross.

Mannlíf heyrði lauslega í Pétri, sem var staddur á fundi en hann sagði þetta dæma sig sjálft.
„Ég er nákvæmlega ekkert að pæla í þessu, svona vitleysisgangur dæmir sig bara sjálfur.“
Guðmundur Ingi hefur nú tekið myndbandið út af samfélagsmiðli sínum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir