
Fjöldi ökumanna var handtekinn vegna gruns um ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu frá því í gærkvöldi og fram á nótt. Sumir þeirra reyndust jafnframt vera án gildra ökuréttinda.
Samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru sex ökumenn handteknir fyrir ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur í einu lögregluumdæmi. Þá voru sex aðrir ökumenn handteknir vegna sams konar brota í öðru umdæmi.
Tveir ökumenn voru einnig handteknir vegna gruns um fíkniefnaakstur. Annar þeirra er auk þess grunaður um söludreifingu fíkniefna, peningaþvætti og brot gegn útlendingalögum. Þá var enn einn ökumaður handtekinn vegna gruns um fíkniefnaakstur.
Nokkur önnur mál komu til kasta lögreglu. Þrír einstaklingar voru kærðir vegna líkamsárása og tveir handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt. Einn einstaklingur var kærður fyrir þjófnað á hóteli og annar fyrir eignaspjöll.
Þá var einstaklingur kærður fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu og fyrir vörslu fíkniefna.
Loks var ökumaður kærður fyrir aksturslag sem varð til þess að bifreið hans missti veggrip.
