Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Þorsteinn beið í sjó eftir björgun í tvo og hálfan tíma: „Ég var hræddur við að deyja“

Þorsteinn Ingimarsson (til hægri) rétt lifði af sjóslys
Þor­steinn Ingi­mars­son (til hægri) rétt lifði af sjó­slys

Þor­steinn Ingi­mars­son kemur fram í tveimur af jóla­bókum árs­ins en hann var hárs­breidd frá því að týna líf­inu þegar Bjarmi VE-66 sökk á leið sinni til hafnar í Vest­manna­eyjum árið 2002, en tveir af fjög­urra manna áhöfn lét­ust í slys­inu.

Atburð­irnir gerð­ust í níu stiga frosti og brælu í febr­úar en þegar skipið hóf að síða á hlið­ina var Þor­steinn í káetu að horfa á spennu­þátt. Skarkali frá brotn­andi leir­taui varð til þess að félagar hans fór að athuga málið en Þor­steinn ákvað að halda kyrru fyrir. Í fyrstu sinnti hann ekki köllum skips­fé­laga sinna því atriðið sem hann var að horfa á var spenn­andi en stökk á fætur þegar þeir öskr­uðu á hann:

„Steini, komdu núna!“

Í íþrótta­buxum og hlýra­bol rauk hann af stað upp á dekk en strax þá var mikið magn sjávar farið að flæða inn í skipið. Hefði hann beðið nokkrum sek­úndum lengur hefði hann farist með skip­inu.

Þeir komust í björg­un­ar­bát­inn en þar sem illa gekk að finna hníf til að skera bát­inn frá barð­ist hann við mastrið á sökkvandi skip­inu sem varð til þess að það kom gat á hann og við tók bar­átta við að koma sér einn af öðrum út um eina opið á honum.

Við tók níst­ings gaddur, kaldur sjór­inn og löng bið eftir björgun.

Í við­tal­inu lýsir Þor­steinn meðal ann­ars tím­anum í sjónum.

„Á end­anum hættum við að tala til að spara orku. Fyrst verður þetta rosa­lega kalt, síðan dofnar maður með tím­anum og síðan verður maður syfj­aðri og syfj­aðri. Maður var alltaf að reyna halda sér vak­andi. Maður var bara „Minn tími er ekki kom­inn,“ ég ætl­aði að þrauka þetta af. Við vorum eig­in­lega búnir að sætta okkur við þetta að þetta væri búið, á end­anum. Það var engin hjálp á leið­inni, greini­lega. Enda vorum við þarna í tvo og hálfan tíma ofan í,“ sagði Þor­steinn um málið.

„Ég var hræddur við að deyja, ég vildi ekki deyja. Ég var í blóma lífs­ins, nýbú­inn að kaupa mér íbúð og ég átti alla fram­tíð­ina fyrir mér þannig að það var ekki tími fyrir að deyja þarna.“

Þáttinn má sjá í heild sinni hér á hlað­varpsveitu Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Leki varpar ljósi á við­skipti Deutsche Bank við Epstein

Upphæðin er meira en tvöfalt hærri en áður hafði komið fram í rannsókn bandarísks öldungadeildarþingmanns. Skjölin ná einnig til skattagagna Trumps.
Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Heimur

Banda­ríkin missa stöðu sína sem land án misl­inga

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Lögregla rannsakar einnig tilkynningu um líkamsárás í miðborginni.
Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti