Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Skora á stjórnvöld að lækka blómatolla: „Stuðla að því að blómaverð er hátt og tilteknar vörur fást ekki“

Félag atvinnu­rekenda hefur skrifað fjármála­ráðherra og land­búnaðar- og sjávar­útvegs­ráðherra samhljóða erindi og óskað viðræðna við ráðuneyti þeirra um niður­fellingu tolla á blómum.

Í erindi FA er bent á það óhagræði, háa verð og samkeppnis­hömlur sem leiði af háum blóma­tollum. Erindi FA fylgir stuðnings­yfirlýsing 25 blóma­verslana, -innflytjenda og -verkstæða víða um land, sem í sameiningu standa fyrir drjúgum meirihluta blóma­verslunar og blóma­innflutnings á Íslandi.

Á heimasíðu FA kemur fram að tollar á blóm hafi orðið eftir þegar áformum var hrint í framkvæmd um að fella niður tolla á öllum vörum nema matvörum 2016-2017. Háir tollar stuðli að alltof háu verði á blómum, en blóma­tollar saman­standa annars vegar af 30% verðtolli og hins vegar stykkja­tolli sem leggst á hverja einustu plöntu, sama hvort um er að ræða pottablóm eða afskorin blóm. Þannig leggst á flest innflutt pottablóm 30% verð­tollur og 200 króna stykkja­tollur.

Tollur hvetur til innflutnings á dýrari vörum

Stykkja­tollurinn hvetur innflytjendur til að flytja inn dýrari vörur, þar sem það einfald­lega borgi sig ekki að flytja inn ódýrari vöru. „Þetta stuðlar annars vegar að því að verð á blómum er hátt og hins vegar að því að tilteknar vörur fást ekki,“ segir á heimasíðu FA.

Innlend framleiðsla annar ekki eftirspurn

Samdóma álit allra fagaðila sem að málinu koma er að innlend fram­leiðsla anni ekki eftir­spurn. Fáar tegundir eru ræktaðar á Íslandi og magn blómabúða fyrir stærri blómadaga, til dæmis Mæðradag, Konudag og Valentínusardag, anni ekki eftir­spurn.

Háir tollar þótt innlend framleiðsla sé engin

FA segir að eina hugsunin að baki tollum á blóm geti verið sú að vernda innlenda fram­leiðslu fyrir samkeppni. Háir tollar eru hins vegar á mörgum tegundum blóma, burtséð frá því hvort einhver innlend fram­leiðsla er á þeim. Hvaða rök liggja þar að baki? er spurt í bréfi FA.

Telur FA ekki vafa leika á því að aukin velta með innflutt blóm, sem myndi fylgja afnámi tolla, myndi bæta ríkis­sjóði tekju­tapið og gott betur í formi aukinna tekna af virðis­aukaskatti.

Ósk um viðræður

Í niðurlagi bréfsins til ráðherranna lýsir FA sig reiðubúið til viðræðna við atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytið og fjármála­ráðuneytið um leiðir til að auka frelsi í innflutningi á blómum og fella niður tolla, jafnt versluninni í landinu sem neytendum til hagsbóta. Félagið leggur til að fulltrúar blóma­verslana og innflytjenda á blómum verði jafnframt kallaðir til í þeirri vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi