Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Gengið inn í fortíðina

Heimsókn í Óbyggða­setur Íslands er sann­kallað ævin­týri þar sem hægt er að upp­lifa gamlan tíma á gömlum sveitabæ á Aust­ur­landi. Stað­ar­hald­arar hafa lagt mik­inn metnað í stað­inn í heild sinni og óhætt að segja að setrið fram­leiði minn­ingar.

Á innsta byggða bóli í Norð­ur­dal í Fljóts­dal sáu for­svars­menn tæki­færi í sögu stað­ar­ins og nálægð­inni við mestu óbyggðir Norður-Evrópu. Þar koma gestir í kyrrð­ina til að skynja og upp­lifa núið með því að ganga inn í for­tíð­ina, sofa á safni, njóta afþrey­ingar, eins og að renna sér á end­ur­gerðum kláfi yfir Jökulsá, veiða fisk eða leita uppi hrein­dýr, fara í reið­túr um svæðið eða taka því rólega heima í hús­unum og fræð­ast þar um lífið heima­við.

Það eru hjónin Stein­grímur Karlsson, kvik­mynda­gerð­ar­maður og ferða­þjón­ustu­bóndi, og Arna Björg Bjarna­dóttir, sagn­fræð­ingur og menn­ing­ar­miðl­ari, sem hafa unnið að þessu verk­efni um nokk­urra ára skeið með það að mark­miði að skapa heildar­ó­byggða­upp­lifun gegnum gist­ingu á safni, heim­il­is­legan mat úr gæða­hrá­efni, lif­andi og sjón­ræna sýn­ingu um óbyggð­irnar og göngu- og hesta­ferðir.

Rætur þeirra hjóna liggja á lands­byggð­inni, Stein­grímur er ætt­aður úr Fljóts­dal og var þar í sveit sem barn. Ástríða þeirra fyrir nátt­úru og sögu lands­ins er það sem hefur drifið verk­efnið áfram. Stein­grímur segir að á tíma­bili hafi Íslend­ingar viljað gleyma hvers­dags­sög­unni en við ættum auð­vitað að upp­hefja það sem við eigum og erum.

Raunverulegar sögur

Óbyggða­setrið byggir á traustum grunni þar sem nokkrum árs­verkum var í heim­ilda-, þró­unar- og hönn­un­ar­vinnu áður en það opn­aði form­lega. Að auki veittu fjöldi fag­að­ila á sviðum menn­ingar, sagn­fræði og nátt­úru aðstoð og ráð­gjöf. Eftir hönn­un­ar­stigið voru svo fengnir til leiks lista­menn og leik­mynda­smiðir til að koma hug­mynd­unum í fram­kvæmd og skapa ævin­týra­ver­öld því allir, ungir sem aldnir, vilja upp­lifa ævin­týri, láta koma sér á óvart og fræð­ast um raun­veru­legar sögur í umhverfi sem gefur tón­inn.

Gestir og gang­andi fræð­ast meðal ann­ars um síð­asta bæinn í dalnum þar sem níu af fjórtán systk­inum bjuggu í félags­búi allt til dán­ar­dags, fólk fær inn­sýn inn í hönn­unar- og smíða­vinnu þeirra, nýsköp­un­ar­hæfi­leika, list­rænt auga, nýtni þeirra og skyggni­gáfu. Gestir verða margs vís­ari, fá meiri skiln­ing á nátt­úru og sögu og öðl­ast minn­ingu um eitt­hvað ein­stakt og ekta.

Opið allt árið

Það er upp­lagt að heim­sækja Óbyggða­setrið hvenær sem er árs­ins. Það hentar til dæmis vina­hópum af öllu tagi og fyr­ir­tækjum sem bjóða upp á hvata- eða vinnu­ferðir en í boði eru sér­sniðnir pakkar fyrir slíka hópa. Stað­ur­inn er hugs­aður þannig að auð­velt sé að setja upp funda­vinnu- og fyr­ir­lestr­ar­að­stöðu í óhefð­bundnu umhverfi með skjá­vörpum og ljós­leið­ara­teng­ingu. Sýningin hefur fengið góð við­brögð og tölu­verða athygli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers