Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöllunni

Fyr­ir­sætan vill að þingið ræði bann við atvinnu­hnefa­leikum og að stjórn­mála­flokkar taki afstöðu til þess.

Atvinnuhnefaleikar
Atvinnu­hnefa­leikar Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir vill að Alþingi taki bann við atvinnu­hnefa­leikum til umræðu og að stjórn­mála­flokkar taki afstöðu til máls­ins. Mynd: Facebook

Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir, fyr­ir­sæta og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, vill að Alþingi taki bann við atvinnu­hnefa­leikum til umræðu. Í grein sem birt­ist í dag á Vísi rifjar hún upp að fyrir 25 árum hafi íslenskir hnefa­leika­menn þurft að fara utan til að keppa, jafn­vel þótt um áhuga­menn væri að ræða.

„Ég myndi vilja sjá stjórn­mála­flokk­ana taka skýra afstöðu til atvinnu­hnefa­leika í stefnu­skrám sínum. Eftir að frum­vörp hafa ítrekað verið lögð fram er kom­inn tími til að Alþingi ræði málið af alvöru!“ skrifar Ásdís.

Hún vísar þar til frum­varps þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins um bar­daga­í­þróttir sem gerir ráð fyrir leyfis­kerfi og örygg­is­kröfum. Frum­varpið komst ekki til umræðu á síð­asta þingi en var lagt fram á ný í sept­em­ber. Í skrif­legu svari á Alþingi í októ­ber sagð­ist Inga Sæland, mennta- og barna­mála­ráð­herra, ekki ætla að beita sér fyrir því að atvinnu­hnefa­leikar yrðu leyfðir. Ráðherra vís­aði til hættu á höfuð- og heilaskaða.

Ásdís segir að skoða eigi hvernig hin Norð­ur­löndin fjögur fara að, en þar eru atvinnu­hnefa­leikar leyfðir. Í Noregi þarf til dæmis læknir að vera við­staddur keppni.

„Mér finnst þess vegna rétt að skoða hvernig nágranna­þjóð­irnar haga lækn­is­eft­ir­liti og hvaða örygg­is­kröfur þær gera til móts­hald­ara.“

Þingmaður sá bardagana í sjónvarpinu

Ásdís kynnt­ist bar­átt­unni fyrir því að heim­ila áhuga­manna­hnefa­leika hér á landi árið 2001. „Árið 2001 var ég að æfa kickbox og stíga mín fyrstu skref í sjón­varpi,“ skrifar hún. Hnefa­leika­fé­lag Hafn­ar­fjarðar fékk hana til að fylgja hópi íslenskra hnefa­leika­manna til Duluth í Minnesota þar sem þeir mættu banda­rískum kepp­endum.

Um haustið sagð­ist þing­maður hafa séð íslensku kepp­end­urna í sjón­varp­inu. Hann hrós­aði þeim í ræðu á Alþingi. Í febr­úar árið eftir tóku gildi lög sem leyfðu áhuga­manna­hnefa­leika hér á landi. Nú mun Ásdís kynna end­ur­fundi kepp­end­anna.

„Laug­ar­dag­inn 12. des­em­ber mæt­ast Ísland og Banda­ríkin á ný í Íþrótta­hús­inu við Strand­götu í Hafn­ar­firði. Þá kemur lið frá Duluth til lands­ins og margir af okkar bestu hnefa­leika­mönnum stíga í hring­inn,“ skrifar Ásdís um fram­tíð­ina og vill sjá aðgerðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Öskurapi með vesen

Tveir gistu í fangageymslum lögreglu í nótt.
Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu