Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Birgir Örn með nýja breiðskífu á vínyl og streymi – Tekin upp í Davíðshúsi

Biggi Maus
Biggi Maus

Birgir Örn Stein­ars­son, sem starfar undir lista­manna nafn­inu Biggi Maus, gefur út nýja breið­skífu þann 5. júní næst­kom­andi. Platan heitir Litli Dauði/Stóri hvellur og er öll unnin í sam­starfi við Togga Nolem (Þorgils Gíslason) sem gerði garð­inn frægan með Skytt­unum, Kött Grá Pjé og er þessa dag­anna í rokksveit­inni Leður.

Á plöt­unni fylgja þeir eftir vin­sældum lag­anna Má ég snúza meir? og Ekki vera að eyða mínum tíma, sem komu út í fyrra. Á plöt­unni má heyra ný lög auk útgáfu Bigga og Togga á lag­inu I don’t rem­em­ber your name eftir Friðrik Dór & Kiasmos.

Að sögn þeirra félaga er hljóð­heimur þeirra ein­hvers konar stökk­breyt­ing á nýróm­an­tík níunda ára­tug­ar­ins og má þar nefna sveitir á borð við Bauhaus, Bara-flokk­inn, Blondie og Grafík sem áhrifa­valda. 

Platan er öll unnin á Akureyri þar sem Birgir býr nú og starfar sem lista­maður og sál­fræð­ingur. Að sögn Birgis var ákveðið að fara alla leið í teng­ing­unni við höf­uð­stað Norð­ur­lands og fengu þeir félagar leyfi til þess að hljóð­rita stóran hluta plöt­unnar í sjálfu Dav­íðs­húsi, sem skáldið Davíð Stef­áns­son frá Fagraskógi gaf bænum að gjöf í erfð­ar­skrá sinni. Allur söngur og píanó­spil var því hjóð­ritað inn á vinnu­stofu Davíðs, með ein­tak af sjálfri Guð­brands­bibl­í­unni á flygl­inum. 

Eitthvað er um gesti á plöt­unni og má þar helst nefna Pál Ragnar Pálsson, félaga Bigga úr Maus, Valmar Valjaots úr Ljótu hálvit­unum og Rósu Ómars sem syngur í auka­lagi á vín­yl­út­gáf­unni. Einnig koma Maus­ar­arnir Eggert og Danni við sögu líka. 

Birgir und­ir­býr tón­leika­hald til þess að fylgja útgáfu plöt­unnar eftir. Þar hefur hann raðað í kringum sig tón­list­ar­fólki frá Akureyri sem mun koma fram með honum undir nafn­inu Biggi Maus & Memm.

Birgir fagnar rúm­lega 30 ára far­sælum ferli í tón­list­ar­brans­anum en hann hefur meðal ann­ars náð gull­plötu­sölu ásamt hljóm­sveit sinni Maus og unnið íslensku tón­list­ar­verð­launin fyrir texta­gerð og sem hljóm­sveit árs­ins. Birgir vann einnig Eddu verð­launin árið 2014 fyrir hand­rit árs­ins (Von­ar­stræti). 

Birgir gaf út sex breið­skífur með Maus en hans fyrsta sól­ó­skífa (Id) kom út árið 2006. Siðan þá hefur hann einnig starfað og gefið út lög og plötur á streym­isveitum með hljóm­sveit­unum Króna (2008-2010) og Bigital (2015).

Dag­setn­ingar;

15. maí – Lagið ‘I don’t rem­em­ber your name’ eftir Friðrik Dór og Kiasmos gefið út á streym­isveitum.

30 maí – For-hlust­un­ar­teiti plöt­unni á Café Lyst í Lysti­garð­inum, Akureyri.

  1. júní- Útgáfupartý í 12 Tónum.
  2. sept­em­ber – Útgáfu­tón­leikar á KEX Hostel
  3. sept­em­ber – Útgáfu­tón­leikar á Græna hatt­inum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027